Vesturbæjarblaðið - júl. 2015, Blaðsíða 9

Vesturbæjarblaðið - júl. 2015, Blaðsíða 9
9VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2015 Sérstök vinnustofa og sýnin­ garrými er nú opið í húsnæði Crymogeu við Barónsstíg. Vin­ nustofan ber heitið góðir vinir segja aðstandendur hennar það dregið af vináttu þeirra. Þau eru Brynjar Sigurðarson vöruhön­ nuður, Veronika Sedlmair innan­ hússarkitekt og Frosti Gnarr sem er grafískur hönnuður sem standa að opnu vinnusto­ funni. Brynjar og Veronika eru búsett í Berlín þar sem þau eru með stúdíó og á dögunum hlaut Brynjar svissnesku hön­ nunarverðlaunin Swiss Design Awards í flokki vöru­ og hlu­ tahönnunar fyrstur Íslendinga. Hann segir þau Veroniku oft hafa hugleitt að koma til Íslands og gera eitthvað skem­ mtilegt og stefnir þríeykið á að vinna áfram hugmyndir og hluti auk þess að skapa eitthvað sem er nýtt í hönnunar ­ og listaflórunni. Brynjar segir þau hafa langað að skoða hvort þau gætu sjálf framleitt einhverja hluti og selt þá beint frá vinnustofunni ­ hluti sem væru ekki framleiddir í einhverju upplagi heldur bara hannaðir og unnir á staðnum af þeim sjálfum. Nokkuð sem líktist hugsuninni um „beint frá býli“ í matvörunni. Hann segir þau hafa mikinn áhuga á íslensku ullinni og hafi meðal annars verið að vinna handprjónuð ullarteppi en þau vilji einnig vinna með fleiri efni og nefnir gler og sand sem dæmi. Sótti innblástur í sjávarþorp Saga Brynjars er á þá leið að hann útskrifaðist af vöruhön­ nunarbraut Listaháskóla Íslands árið 2009. Þegar hann vann að útskriftarverkefni sínu fór hann meðal annars til Vopnafjarðar þar sem hann dvaldi um mánaðar skeið til þess að kynnast mannlífi, sögu og menningu þessa fámenna byggðarlags á norðaustanverðu landinu. Hann kveðst hafa hitt alls konar fólk, spjallað við það og reynt að kynnast því andrúmslofti sem var í samfélaginu auk þess að taka mikið af myndum. Eitt sem Brynjar gerði á Vopnafirði var að læra hnúta af öldnum hákarlasjómanni sem hann hefur nýtt sér í hönnun og listsköpun. Brynjar er í raun ekki sé fyrsti sem nýtir hnúta sem grunn að listsköpun vegna þess að ein af þekktari bókum vestanhafs The Shipping News eftir Annie Proulx er að nokkru byggð á Hnútabók Ashleys en er að öðru leyti skáldsaga sem fjallar um sögu fjölskyldu sem vitjar róta sinna á Nýfundnalandi á hnignunartíma þess. Í Hnútabók Ashleys segir að hnútur með átta brögðum sé nálægt því að vera meðalhnútur og eigi 256 yfir og undirbrögð möguleg. Eftir að Brynjar yfirgaf Vopnafjörð hefur hann að sögn verið að færa þetta umhverfi og handverk og framleiðsluaðferðir sem hann kynntist á staðnum þar sem land og haf mætast yfir á form hluta bæði með meðvituðum og ómeðvituðum hætti. Hann segir að með ýmsu öðru hafa notfært sér hnúta sem hann lærði af hákarlasjómanni­ num við framleiðslu húsgagnalí­ nunnar Þögult þorp fyrir franska hönnunargalleríið Galerie Kreo. Útfærsla Brynjars á hönnun sem að hluta er byggð á hnútum hefur vakið athygli víða. Sýningin eða sýningarrýmið Góðir vinir er opið öllum og verður eitthvað af mununum til sölu auk þess sem hægt verður að spjalla við hönnuðina, tylla sér niður og fá sér kaffibolla. Við ætlum að halda okkur við hugmyndina beint frá býli nema að kalla hana réttnef­ ninu beint frá vinnustofu,“ segja þau Byrnjar og Veronika. Beint frá vinnustofu á Barónstígnum LÁTTU ÞAÐ EFTIR ÞÉR, VERTU FRJÁLS, NJÓTTU LÍFSINS. Sumar er Sangría KOMDU Á TABASBARINN OG SMAKKAÐU Á SUMRINU Glas 1.790 kr. RESTAURANT- BAR Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík Sími 551 2344 | www.tapas.is Ísköld og svalandi Sangríameð ferskum ávöxtum, SOLAZ rauðvíni, appelsínusafa og blöndu af sterku áfengi og líkjörum. Brynjar Sigurðarson vöruhönnuður og Veronika Sedlmair innanhússarkitekt á tröppum húsnæðis Crymogeu við Barónsstíg. Vor- og sumarhátíð Vor­ og sumarhátíð leikskólans Gullborgar við Boðagranda fór fram 5. júní sl. Gullborg er 25 ára og var þeirra tímamóta sérstaklega minnst á sumarhátíðinni með glens og gaman. Farið var í skrúðgöngu í kringum Gullborgu sem er árlegur viðburður í leikskólastarfinu og í framhaldi hennar skemmti Sirkús Íslands börnunum og fjölskyldum þeirra. Einnig var andlitsmálning í boði og leiktæki fyrir börnin.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.