Vesturbæjarblaðið - jul. 2015, Síða 9
9VesturbæjarblaðiðJÚLÍ 2015
Sérstök vinnustofa og sýnin
garrými er nú opið í húsnæði
Crymogeu við Barónsstíg. Vin
nustofan ber heitið góðir vinir
segja aðstandendur hennar það
dregið af vináttu þeirra. Þau eru
Brynjar Sigurðarson vöruhön
nuður, Veronika Sedlmair innan
hússarkitekt og Frosti Gnarr
sem er grafískur hönnuður
sem standa að opnu vinnusto
funni. Brynjar og Veronika eru
búsett í Berlín þar sem þau
eru með stúdíó og á dögunum
hlaut Brynjar svissnesku hön
nunarverðlaunin Swiss Design
Awards í flokki vöru og hlu
tahönnunar fyrstur Íslendinga.
Hann segir þau Veroniku
oft hafa hugleitt að koma til
Íslands og gera eitthvað skem
mtilegt og stefnir þríeykið á
að vinna áfram hugmyndir og
hluti auk þess að skapa eitthvað
sem er nýtt í hönnunar og
listaflórunni.
Brynjar segir þau hafa langað
að skoða hvort þau gætu sjálf
framleitt einhverja hluti og selt
þá beint frá vinnustofunni hluti
sem væru ekki framleiddir í
einhverju upplagi heldur bara
hannaðir og unnir á staðnum af
þeim sjálfum. Nokkuð sem líktist
hugsuninni um „beint frá býli“ í
matvörunni. Hann segir þau hafa
mikinn áhuga á íslensku ullinni og
hafi meðal annars verið að vinna
handprjónuð ullarteppi en þau
vilji einnig vinna með fleiri efni og
nefnir gler og sand sem dæmi.
Sótti innblástur í
sjávarþorp
Saga Brynjars er á þá leið að
hann útskrifaðist af vöruhön
nunarbraut Listaháskóla Íslands
árið 2009. Þegar hann vann að
útskriftarverkefni sínu fór hann
meðal annars til Vopnafjarðar þar
sem hann dvaldi um mánaðar
skeið til þess að kynnast mannlífi,
sögu og menningu þessa fámenna
byggðarlags á norðaustanverðu
landinu. Hann kveðst hafa hitt
alls konar fólk, spjallað við það og
reynt að kynnast því andrúmslofti
sem var í samfélaginu auk þess
að taka mikið af myndum. Eitt
sem Brynjar gerði á Vopnafirði
var að læra hnúta af öldnum
hákarlasjómanni sem hann hefur
nýtt sér í hönnun og listsköpun.
Brynjar er í raun ekki sé fyrsti
sem nýtir hnúta sem grunn að
listsköpun vegna þess að ein af
þekktari bókum vestanhafs The
Shipping News eftir Annie Proulx
er að nokkru byggð á Hnútabók
Ashleys en er að öðru leyti
skáldsaga sem fjallar um sögu
fjölskyldu sem vitjar róta sinna á
Nýfundnalandi á hnignunartíma
þess. Í Hnútabók Ashleys segir
að hnútur með átta brögðum sé
nálægt því að vera meðalhnútur
og eigi 256 yfir og undirbrögð
möguleg. Eftir að Brynjar yfirgaf
Vopnafjörð hefur hann að sögn
verið að færa þetta umhverfi og
handverk og framleiðsluaðferðir
sem hann kynntist á staðnum
þar sem land og haf mætast
yfir á form hluta bæði með
meðvituðum og ómeðvituðum
hætti. Hann segir að með ýmsu
öðru hafa notfært sér hnúta sem
hann lærði af hákarlasjómanni
num við framleiðslu húsgagnalí
nunnar Þögult þorp fyrir franska
hönnunargalleríið Galerie Kreo.
Útfærsla Brynjars á hönnun sem
að hluta er byggð á hnútum hefur
vakið athygli víða. Sýningin eða
sýningarrýmið Góðir vinir er
opið öllum og verður eitthvað
af mununum til sölu auk þess
sem hægt verður að spjalla við
hönnuðina, tylla sér niður og fá
sér kaffibolla. Við ætlum að halda
okkur við hugmyndina beint frá
býli nema að kalla hana réttnef
ninu beint frá vinnustofu,“ segja
þau Byrnjar og Veronika.
Beint frá vinnustofu
á Barónstígnum
LÁTTU ÞAÐ EFTIR ÞÉR, VERTU FRJÁLS, NJÓTTU LÍFSINS.
Sumar er Sangría
KOMDU Á TABASBARINN OG SMAKKAÐU Á SUMRINU
Glas 1.790 kr.
RESTAURANT- BAR
Vesturgötu 3B | 101 Reykjavík
Sími 551 2344 | www.tapas.is
Ísköld og svalandi Sangríameð ferskum ávöxtum, SOLAZ
rauðvíni, appelsínusafa og blöndu af sterku áfengi og líkjörum.
Brynjar Sigurðarson vöruhönnuður og Veronika Sedlmair innanhússarkitekt á tröppum húsnæðis
Crymogeu við Barónsstíg.
Vor- og sumarhátíð
Vor og sumarhátíð leikskólans Gullborgar við Boðagranda
fór fram 5. júní sl. Gullborg er 25 ára og var þeirra tímamóta
sérstaklega minnst á sumarhátíðinni með glens og gaman.
Farið var í skrúðgöngu í kringum Gullborgu sem er árlegur
viðburður í leikskólastarfinu og í framhaldi hennar skemmti Sirkús
Íslands börnunum og fjölskyldum þeirra. Einnig var andlitsmálning
í boði og leiktæki fyrir börnin.