Vesturbæjarblaðið - ágú. 2015, Blaðsíða 8
8 Vesturbæjarblaðið ÁGÚST 2015
Skúli S. Ólafsson tók við
embætti prests í Neskirkju
f y r r á þ e s s u á r i . S k ú l i
var áður sóknarpr es tur í
Keflavíkurprestakalli, en einnig
hafði hann þjónað á Ísafirði
og verið prestur Íslendinga í
Svíþjóð. Skúli lauk doktorsnámi
frá Háskóla Íslands fyrir um
ári. Tíðindamaður settist með
Skúla á notalegu kaf fihúsi í
safnaðarheimili Neskirkju á
dögunum. Fyrsta verk prestsins
var að búa til gott espressó kaffi
fyrir komumann.
„Ég hef lengi haft augastað
á þjónustu í þessum söfnuði og
fyrir áratug sótti ég um um hér
í Neskirkju. Að mínu mati býður
Neskirkja upp á einhverja bestu
aðstöðu sem þekkist í kirkjum
hérlendis. Safnaðarheimilið er vel
skipulagt og kaffihúsið sem tekið
var í notkun fyrir rúmum áratug,
gefur því skemmtilega vídd.
Kirkjuskipið er tilgerðarlaust og
notalegt, stíllinn minnir helst á
stássstofu frá sjötta eða sjöunda
áratug liðinnar aldar. Hugsunin
var að fólki liði hér vel og ég er
viss um að sú sé einmitt raunin.
Kirkjan er hönnuð í módernískum
stíl sem farin var að ryðja sér
rúms þegar hún var hönnuð um
miðja síðustu öld. Slíkar byggingar
hafa ekki alls staðar komið
vel út og sumar eru kaldar og
fráhrindandi,” segir Skúli. ,,Ágústi
Bjarnasyni arkitekt og hönnuði
kirkjunnar tókst á hinn bóginn
vel til við að brjóta hefðbundið
kirkjuform upp og laga það að
nýrri hugsun. Kirkjubyggingin
var framsækið verk á þeim
tíma en hefur elst og reynst vel.
Hún er orðin klassísk og er ein
þeirra þriggja bygginga í þessum
anda sem risu á Melunum, með
skömmu millibili og styðja vel
hver aðra. Þær eru auk Neskirkju,
Háskólabíó og Hótel Saga.“
Ekki að ástæðulausu að
hverfin eru eftirsótt
S k ú l i s e g i r þ a ð e k k i a ð
á s t æ ð u l a u s u a ð H a g a - o g
Melahverfin eru jafn eftirsótt
og raun ber vitni, enda hafa
byggingarnar staðist tímans
tönn. „Þegar við leituðum að
húsnæði í Reykjavík nú um
áramótin, stóð hugur okkar til
þessa borgarhluta en vegna
þess hversu eftirsóttur hann er
var lítið að hafa og verðlagið æði
hátt. Húsnæðisleitin endaði því
með kaupum á húsnæði rétt við
Laugardalinn. Það er líka ágætur
staður. Skammt út í náttúruna
og ekki það langt í burtu að við
hjónin hjólum daglega til og frá
vinnu. Frúin mín er lögreglustjóri
á H ö f u ð b o rg a r s v æ ð i n u o g
leggur því hjólhesti sínum við
lögreglustöðina á Hverfisgötu
þar sem hún sinnir krefjandi
þjónustu.“
Á flakki í tvo áratugi
„Talið berst lengra aftur í
tímann, vestur á Ísafjörð og til
Svíþjóðar. Skúli segir fjölskylduna
hafa verið á flakki í heila tvo
áratugi. Árið 1995 héldum við til
náms í Kaupmannahöfn. Þaðan
lá leiðin vestur á Ísafjörð, svo til
Svíþjóðar og aftur á gamlar slóðir
á milli fjallanna vestur á fjörðum.
Konan mín hafði fengið veitingu
fyrir sýslumannsembætti þar
og ég fór að starfa við skóla- og
æskulýðsmál hjá bæjarfélaginu.
Þar lærði ég margt einkum er
snertir stefnumótun og rekstur
nokkuð sem ekki er kennt í
guðfræðinni en hefur síðan nýst
mér vel í prestsstarfinu. Þarna
dvöldum við fram til 2006 að ég
var valin sóknarprestur í Keflavík.
Þar var ég svo í níu ár eða þangað
til ég kom hingað í Neskirkju.“
Tugur milljóna í
velferðarsjóð
Talið berst að Keflavík og
Suðurnesjum. , ,Á þeim tíma
er mig bar þar að garði, voru
blikur á lofti, sem tæpast fóru
fram hjá mér fremur en öðrum.
Þegar herinn fór tók að bera
á atvinnuleysi sem skall á af
fullum þunga í kjölfar hrunsins.
Þrátt fyrir þetta þá hefur margt
gott verið gert á Suðurnesjum
sem vakið hefur verðskuldaða
athygli. Skólakerfið hefur gengið
í gegnum endurnýjun og leik- og
grunnskólar í bænum eru nú í
fremstu röð hérlendis. Þá sýndi
samfélagið einstakan samtakamátt
og fólk gaf af fádæma rausnarskap
til nauðstaddra mitt í þrengingum
sínum. Leiðtogar sem störfuðu á
vegum Keflavíkurkirkju stofnsettu
Velferðarsjóð sem kirkjan sinnti
og hélt utan um. Sjóðurinn varð
einn helsti samnefnarinn fyrir
það jákvæða sem átti sér stað á
þessu svæði á þessum tímum, en
í hann söfnuðust tugir milljóna af
frjálsum framlögum. Fyrir vikið
tóks að draga úr félagslegum
ójöfnuði og beindum við kröfum
okkar einkum að börnum sem
nutu stuðnings til tómstundastarfs
og menntunar.“
Spennandi tímar
framundan
Víkur nú talinu aftur vestur
á Melana. , ,Framundan eru
spennandi tímar í Neskirkju.
Safnaðarstarf á okkar dögum
þarf að fylgja skýrum línum. Við
eins og aðrir eigum í samkeppni
viljum nýta vel þann tíma sem fólk
nýtir í okkar umhverfi. Hlutverk
okkar er ekki síst að skapa jarðveg
fyrir samtal um mikilvæg málefni
sem brenna á fólki. Sum þeirra
varða trú okkar og tilvist, önnur
snerta á þeim dýrmæta tilgangi
sem ég held að búi innra með
okkur öllum - að gera gagn. Í því
sambandi efnum við til Samtals
á Kirkjutorgi, þar sem sjónum
verður beint að Þjónandi forystu
- hugmyndafræði sem tengir
saman leiðtogasýn og viljann
til að starfa í þágu góðra verka.
Fleira mætti nefna. Í samstarfi
við Dómkirkjuklerka bjóðum við
upp á sjö kvölda námskeið sem
ber það gegnsæja heiti, ,,Hvað er
kristin trú?” Söfnuðurinn býr að
góðum rekstri, öflugu æskulýðs-
og tónlistarstarfi. Nýverið lukum
við námskeiði fyrir fermingarbörn
s e m e r f y r s t i h l u t i n n a f
fermingarfræðslu vetrar ins.
Hópurinn er alveg frábær og það
var gaman að kynnast þessum
krökkum. Þar sem endranær lítum
við á það sem hlutverk okkar að
taka þátt í samtali, við viljum ekki
bara svara heldur líka spyrja og
það var einstaklega fróðlegt að
heyra sjónarmið þessa unga fólks.
Fermingarfræðslan tengist líka því
læsi sem við teljum nauðsynlegt
að hafa á menningu okkar
samfélags. Tungumálið, siðferðið
og hinar ýmsu listgreinar hafa sótt
mikið í sjóði Biblíunnar og á sama
tíma og skólakerfið hefur dregið
úr fræðslu á því sviði verður
hlutverk kirkjunnar enn brýnna.“
Kirkjan á eftir að
spjara sig
Í framhaldi af þeim orðum væri
fróðlegt að vita hvað Skúla kann
að finnast um stöðu kirkjunnar
á okkar tímum. ,,Ég er í engum
vafa um að kirkjan á eftir að
spjara sig. Það mótlæti sem á
henni hefur dunið undanfarið á
eftir að styrkja hana og stuðla að
því að kirkjunnar fólk endurskoði
ýmislegt í skipulagi og boðun
þessa gróna samfélags sem
kirkjan er. Mér er vel kunnugur
sá kraftur sem býr í söfnuði,
það þekki ég frá þjónustu minni,
ekki síst í Keflavík. Hvað sem
bíður á komandi tímum er ljóst
að erindi kirkjunnar er mikilvægt
og kröfurnar sem til okkar eru
gerðar verða sífellt meiri. Því ber
vitaskuld að fagna.“
Spennandi tímar framundan
Sr. Skúli Ólafsson.
... segir Skúli Ólafsson prestur í Neskirkju