Brautin - 15.12.1999, Qupperneq 13

Brautin - 15.12.1999, Qupperneq 13
BRAUTIN 13 Radiohead Framtíðin er björt Þegar Thom var í skóla hugsaði hann um lítið annað en tónlist og segir hann að hann hafi eytt mestum tíma í hljóðeinangruðu herbergi skólans og söng í pönkhljómsveit skólans, TNT. Þar spilaði Colin á bassann endrurn eins en þegar TNT lagði upp laupana bauð Thom Colin að spila á bassa í nýrri hljóm- sveit sem hann var að stofna með gæja sem leit alveg eins út og Morrissey; Ed O’Brien. Öðrum gæja, sem var ekkert líkur Morrisey, var einnig boðið að spila með þar sem hann spi- laði á trommur og voru fyrstu orð Thoms til Phils eftirminni- leg: „Geturðu ekki spilað hrað- ar?” Yngri bróður Colins lang- aði að vera lrka með og hann var þvílíkur tónlistarsnillingur að hann gat kreist tóna úr Camenbert osti. Það voru þessir snillingar sem þreyttu frumraun sína undir nafninu On A Friday á Jericho kránni í Oxford snemma árs 1987. Það var ekki fyrr en þeir félag- ar yfirgáfu æðri menntastofnanir sem tónlistin varð heilsdags- vinna. Þar sem þeir völdu úr aragrúa tónleika var spiliríið einskorðað við heimahaga þeir- ra sem samt olli því að útsendarar plötufyrirtækja hrúg- uðust til þeirra í Oxford. Um síðir skrifuðu þeir undir samn- ing hjá Capitol plötufyirtækinu og 1993 gáfu þeir út Pablo Honey, sína fyrstu skífu. Radiohead voru fyrstir að markaðssetja sjálfshatursfyrir- bærið með smáskífulagi sínu Creep og voru góðu ári á undan Loser með Beck. Smáskífan skaust á toppinn bæði í heima- landi þeirra Bretlandi og í Bandaríkjunum. En eftir að lagið féll niður vinsældarlista og var tekið úr spilun á ljós- vakamiðlum gerðu margir þau mistök að stimpla Radiohead sem eitt af „One hit wonder” hljómsveitum, skamm skamm. Árið 1995 þegar The Bends kom út ávann hljómsveitin sér þann heiður og virðingu sem þeir áttu löngu skilið. Gagnrýnendur lofuðu verkið sem dýpri og þroskaðri laga- smíðar og hljómsveitin fór í tón- leikaferðalag með REM í Evrópu. En jákvæð gagnrýni er ekki það eina sem selur plötur, heldur var það því að þakka að þeir spiluðu stíft og einnig hlaut myndbandið við lagið Just gríðarlega athygli. Platan lenti á fjölmörgum listum yfir bestu afurð ársins og í byrjun árs 1996 fór hún aftur á topp-tíu lista í Bretlandi og varð gullsala í Bandarfkjunum. Þess má geta að á The Bends tónleikaferðalaginu hitaði hljómsveitin einu sinni upp fyrir Alanis Morissette sem er ekki frá sögum færandi, nema að á tónleikunum var staddur fjöldi unglinga og barna með mæðrum sínum og brustu í grát af hræðslu við hamfarir snillingana á sviðinu. En snemma 1996 fóru Radiohead að semja efni fyrir Ok computer í æfingastúdíói sínu Canned Applause í Oxford. í september fluttu þeir sitt hafur- task til St. Catherine’s Court, sem er hefðarsetur í eigu leik- konunnar Jayne Seymoure (Dr. Quinn). Þar luku þeir við plöt- una í fjarlægð hávaða og þrýst- ings stórborgarinnar. Þrátt fyrir hið tyrfna sex og hálfs mínútu lag Paranoid Android, er Ok Computer hugsanlega rómaðasta plata hljómsveitarinnar til dagsins í dag. Hún var tilnefnd til tveggja Grammy- og fjögurra Brit verðlauna. Þegar Thom var spurður út í velgengni plötunnar svaraði hann: „Það er hægt að bregðast við á tvennan hátt, annaðhvort að halda Ríkharðs III stellingunni, eða stíga á brimbretti og láta sig berast með...” Á&Ó J5 SPARISJÓÐUR VESTMANNAHYJA Áætlun Herjólfs um jól og áramót Fra Eyjum Frá Þorl.höfn Aðfangadagur........08:15 11:00 Jóladagur...........Engin ferð 2. jóladagur........13:00 16:00 Gamlársdagur........08:15 11:00 Nýársdagur..........Engin ferð Athuaið brevtta tímatöflu Að öðru leyti gildir vetraráætlun Herjólfs Sendum viðskiptavinum okkar og starfsfólki bestu óskir um blessunarríka jólahátíð. Megi nýtt ár með nýju árþúsundi færa ykkur góða tíð. Hcrfólfur h Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi dr EYJABÚÐ Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi dr Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi dr Flamingo Hárgreiðslustofan Heiðarvegi 6 Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi dr Gámaþjónusta Vestmannaeyja Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól Sendum Vestmannaeyingum öllum bestu óskir um gleðileg jól ogfarsœlt komandi dr

x

Brautin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Brautin
https://timarit.is/publication/1411

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.