Brautin - 15.12.1999, Blaðsíða 15
BRAUTIN
15
Um hamingjuna
Við teljum okkur trú um að
lífið verði betra eftir að við:
göngum í hjónaband, eignumst
barn og síðan þegar við
eignumst annað barn.
Síðan verðum við ómöguleg
yfír því að börnin eru enn svo
ung og teljum að við verðum
miklu ánægðari er þau eldast.
Þegar það gerist verðum við
pirruð á því að þurfa að takast á
við unglingana okkar og teljum
okkur verða ánægðari þegar þeir
vaxa upp úr því aldursskeiði.
Við teljum okkur trú um að
við munum öðlast meiri lífs-
fyllingu loksins þegar: maki
okkar tekur sig taki, þegar við
fáum betri bfl, þegar við
komumst í almennilegt frí eða
þegar við setjumst í helgan
stein.
Sannleikurinn er sá að það er
ekki til betri tími til að verða
hamingjusamur heldur en ein-
mitt núna!... Því ef ekki núna,
hvenær þá?
Lífið er alltaf fullt af vanda-
málum. Það er best að horfast í
augu við það og ákveða að vera
hamingjusamur þrátt fyrir það.
Alfred D. Souza sagði eitt sinn:
„Lengi vel fannst mér alltaf
sem lífið væri rétt að byrja -
þetta eina sanna líf. En það var
alltaf eitthvað sem stóð í vegi
fyrir því, eitthvað sem þurfti að
yfirstíga fyrst, einhver ókláruð
mál, tími sem þurfti að eyða í
eitthvað, ógreiddar skuldir.
Síðan myndi lífið byrja. Dag
einn rann það upp fyrir mér að
allar þessar hindranir voru lífið
sjálft.”
Þetta viðhorf hjálpar okkur að
skilja að það er engin leið að
hamingjunni. Hamingjan er
leiðin. Njótum hverrar stundar
sem við eigum. Njótum hennar
enn frekar þegar okkur tekst að
deila henni með öðrum sem er
nógu sérstakur til að verja tíma
okkar með... og munum, að
nútíminn bíður ekki eftir
neinum.
Hættu að bíða þar til þú hefur
lokið námi eða þar til þú hefur
hafið nám, þar til þú hefur misst
fimm kíló eða bætt á þig fimm
kflóum, þar til þú hefur eignast
börn eða þar til þau flytjast að
heiman, þar til þú byrjar að
vinna eða þar til þú sest í helgan
stein, þar til þú giftist eða þar til
þú skilur, þar til á föstu-
dagskvöld, þar til á sunnu-
dagsmorgun, þar til þú færð þér
nýjan bfl eða hús, þar til þú
hefur borgað upp bílinn eða
húsið, þar til í vor, þar til í
sumar, þar til í haust, þar til í
vetur, þar til lagið þitt byrjar,
þar til þú ert búin að fá þér í
glas, þar til runnið er af þér, þar
til þú deyrð, þar til þú fæðist á
ný... til þ.ess eins að ákveða að
það er enginn tími betri til að
vera hamingjusamur en einmitt
núna!
Hamingjan er ferðalag ekki
áfangastaður
Til umhugsunar að lokum!
„Sinntu starfi þínu eins og þú
þarfnist ekki peningana.”
„Elskaðu eins og þú hafir
aldrei verið særð(ur).”
„Dansaðu eins og enginn sjái
til þín.”
Sendum öllum
Vestmannaeyingum
bestu óskir um
gleðileg jól
og farsælt komandi ár,
með þökk fyrir samstarfið
á árinu sem er að Ifða.
BÆJARVEITUR VESTMANNAEYJA
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi óir
Apótek VesííTíannseyjs
FEYRISSJOÐUR
VESTMAN NAEYJA
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Lögmenn
Vestmannaeyjum
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
(Veiilujémuta fjjdmi
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Raggi rakari
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Skóvinnustofa Stefáns
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
§lökkvitækjaþjónustan
Sendum Vestmannaeyingum öllum
bestu óskir um
gleðileg jól
ogfarsœlt komandi ár
Útgerðarfélag
Vestmannaeyja