Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 1
Átt þú rétt á slysabótum? Við hjálpum þér að leita réttar þíns TORT INNHEIMTA SLYSABÓTA HAFÐU SAMBAND 511 5008 UMFERÐASLYS VINNUSLYS FRÍTÍMASLYS Opnunartími Hringbraut: Allan sólarhringinn Opnunartími Tjarnabraut: 08.00 - 23.30 Virka daga 09.00 - 23.30 Helgar Opnum snemma lokum seint Nýlagað kaffi og croissant með skinku Combo tilboð 298 kr/stk VINKONURNAR ÁSTA RÚN OG BIRGITTA RÓS Í VIÐTALI SÍÐA 8 UNGT FÓLK MÁ EKKERT Í DAG Undanfarin misseri hafa farið fram gagnkvæm samskipti milli Grindavíkurbæjar og Uniejów í Póllandi varðandi vinabæjarsam- skipti bæjanna. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Grindavíkur var lagt fram erindi um að gengið verði frá formlegum vinabæjar- samningi milli bæjarfélaganna. Bæjarstjórn samþykkti á fundinum samhljóða að gengið verði frá form- legum vinabæjarsamningi við Unie- jów. Grindavík eignast vina- bæ í Póllandi Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga ræddi á síðasta fundi sínum hvort ástæða sé til að skoða öryggismál í skólum Sveitarfélagsins Voga með það að markmiði að auka öryggi nemenda og starfsmanna. „Skólastjórar vilja hafa skólana opna að vissu marki. Þeir munu ræða þessi mál á starfsmannafundum og auka vitund starfsmanna á þessum málum í tengslum við skoðun á aðgangs- málum sveitarfélagsins í heild,“ segir í gögnum fundarins. Fræðslunefnd Sveitarfélagsins Voga hvetur stjórn- endur leikskólans til að skoða hvaða möguleikar eru á að koma upp eftir- litsmyndavélakerfi í leikskólanum. Öryggismál í skólum í Vogum til skoðunar 128 stöðvaðir Lögreglan á Suðurnesjum stöðv- aði 128 bifreiðir á sunnudag við gömlu steypustöðina í Njarðvík. Um var að ræða hefðbundið eftir- lit. Voru ökumenn beðnir um að blása í áfengismæli og réttindi þeirra athuguð. Er skemmst frá því að segja að allir voru með sitt á hreinu, að einum undan- skildum sem var ekki í öryggis- belti. Á síðustu dögum hafa tugir öku- manna verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæminu og fáeinir verið teknir úr umferð vegna gruns um vímuefnaakstur. Lögreglan á Suðurnesjum er ekkert að grínast en hún kvaddi fíkni- efnaleitarhundinn sinn með því að baka fyrir hana súkkulaðitertu og rjómapönnuköku. Í færslu á Facebook kemur fram að Clarissa hafi byrjaði að vinna fyrir lögregluna fyrir átta árum og hafi skilað góðu starfi. Hún hlaupi í öll verkefni og fari hraðar yfir en margir aðrir. „Clarissa hefur fundið ótrúlega mikið magn af fíkniefnum í gegnum tíðina en nú er aldurinn farinn að segja til sín og er því komið að leiðar- lokum hjá henni og viljum við nota þetta tækifæri til að þakka henni og umsjónarmanni hennar fyrir vel unnin störf í gegnum árin og við vonum að hún njóti eftirlauna áranna vel og „leyfi sér soldið“. Clarissa var kvödd með súkkulaði- köku og rjóma- pönnsu við lok vaktarinnar í dag,“ segir að lokum í pistl- inum. Löggan gaf hundinum súkkulaðitertu og pönnsu Ljósmynd: Marinó Már Magnússon Ljósmynd: Hilmar Bragi Bárðarson Ljósmynd: Lögreglan Á Fitjum í ljósaskiptunum fimmtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg. S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.