Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 15
Lystauki Rjúpusúpa Nýbakað brauð Forréttaplatti Létt grafin klaustursbleikja Reyktur Ólafsfjarðar lax Jólasíld og rúgbrauð Grafin gæs Tvíreykt hangikjöts tartar Jóla pate Aðalréttur Reykt lambafilé Sviðakjamma rillete Heilsteikt nautalund Hægelduð kalkúnabringa Eftirréttahlaðborð Créme brulée kókos ganach Skyr-ostakaka með piparkökum Mangó-ástaraldinmús Karamellubúðingur og vanillurjómi Lakkrís pannacotta Sarah Bernhard Riz a la mandle Dagsetningar Föstudagur 29. nóv - FULLT Laugardagur 30. nóv Föstudagur 6. des Laugardagur 7. des Föstudagur 13. des Laugardagur 14. des Sitjandi hlaðborð Borðapantanir í síma 426 8650 eða á max@nli.is Verð 8.950 kr. Max Veitingastaður • Northern Light Inn • Norðurljósavegi 1 • Grindavík Jólahlaðborð á Max Veitingastað Njóttu aðventunar í góðum félagsskap Grófin 19, Keflavík Símar: 456-7600 & 861-7600 bilathjonustan@bilathjonustan.is Þjónustuskoðanir OPNUNARTÍMI: MÁNUDAGA TIL FIMMTUDAGA FRÁ 8 TIL 17 FÖSTUDAG FRÁ 8 TIL 16 smurþjónusta og almennar viðgerðir fyrir Skoda, Audi, WV og Mitsubishi Viljum einnig fá skóla í heim- sókn yfir vetrartímann „Sérstaða okkar er rannsóknaað- staðan og staðsetningin. Við erum staðsett alveg niðri við sjó. Við erum með borholu fyrir utan húsið og dælum tandurhreinum sjó beint inn í hús sem hentar einstaklega vel til rannsókna á sjúkdómum í fiski og í eiturefnarannsóknum okkar. Þetta heillar erlenda vísindamenn og þykir einstakt á heimsmælikvarða. Við fáum oft erlenda vísindamenn til okkar í tvær til sex vikur og erum með gistiaðstöðu fyrir þessa vísinda- menn og háskólahópa sem eru að vinna á svæðinu. Nú erum við með einn vísindamann hjá okkur frá Spáni sem er mikill sérfræðingur í bursta- ormum, sem hann er að rannsaka meðal annars. Svo vorum við nýlega með erlenda og íslenska tónlistar- nemendur sem gistu hér og unnu í háskólaverkefni sínu. Við fáum einn- ig almenna skólahópa, flestir koma að vori og höfum við verið að taka á móti ríflega 1200 nemum á ári. Flestir eru grunnskólanemendur, en einnig elstu krakkar í leikskólum og einstaka hópar koma úr framhaldsskólum. Þá fara nemendur fyrst út á Garðskaga í fjöruna og safna lífverum. Svo koma þeir til okkar með lífverurnar og fá að skoða í víðsjá og greina það sem þeir fundu. Krakkarnir fá einnig að vinna skemmtileg verkefni hér hjá okkur. Við viljum endilega efla þetta sam- starf við skóla og skemmtilegast væri auðvitað að fá fleiri skóla yfir veturinn og á öðrum tímum ársins, ekki bara á vorin. Gaman væri ef skólar sæju hag sinn í því að nýta heimsóknirnar betur til vettvangsnáms og útikennslu því hér er aðstaðan tilvalin í slíkt,“ segir Hanna María. Sýningar fyrir almenning „Við erum með fjórar sýningar í hús- inu sem eru allar fastar sýningar. Þær eru í eigu Suðurnesjabæjar en við rekum þessar sýningar fyrir sveitar- félagið. Þetta er náttúrugripasýning og þar eru lifandi sjávardýr sem krökkum finnst sérlega gaman að skoða. Síðan er glæsileg sýning sem heitir Heimskautin heilla, sem fjallar um ævi heimskautafarans Jean Bapt- iste Charcot en rannsóknarskipið hans fórst við Íslandsstrendur. Sýn- ingin er í tveimur sölum þar sem líkt er eftir brú og káetu í skipi frá tíma heimskautafarans. Síðan er listasýning á neðri hæð húss- ins sem heitir Huldir heimar hafsins - ljós þangálfanna. Ótrúlega falleg og skemmtileg sýning sem fjallar um hafið og þær hættur sem steðja að því. Síðast en ekki síst er ljósmynda- sýning sem segir sögu hússins, sem er merkileg, því þetta hús sem hýsir Þekkingarsetur Suðurnesja, á Garð- vegi 1 í Sandgerði, var byggt sem frystihús og þjónaði þeim tilgangi í áratugi áður en rannsóknarstöðin og rannsóknastarfið fór að byggjast upp hérna,“ segir Hanna María að lokum og hvetur alla til að koma í heimsókn sem vilja fræðast meira. Þekkingarsetrið er einnig aðili að alþjóðlegu neti rann- sóknastöðva á arktískum og fjalllendum svæðum á norðurhveli jarðar sem kallast INTERACT (International Network for Terrestrial Research and Monitoring in the Arctic). Meginhlutverk INTERACT er að byggja upp að- stöðu og þekkingu til að skilgreina og bregðast við um- hverfisbreytingum á norðlægum slóðum og hefur starf- semin verið fjármögnuð með styrkjum úr rammaáætl- unum Evrópusambandsins um rannsóknir og þróun. Þekkingarsetur Suðurnesja er aðili að Reykjanes UNESCO Global Geopark. UNESCO, Menningarmálastofnun Sam- einuðu þjóðanna viðurkenndi Reykjanes sem UNESCO Global Geopark árið 2015. UNESCO Global Geoparks eru svæði þar sem minjum og landslagi sem eru jarðfræðilega mikilvægar á heimsvísu er stýrt eftir heildrænni stefnu um verndun, fræðslu og sjálfbæra þróun. Sölvi Rúnar Vignisson, líffræðingur, Þekkingarsetri Suðurnesja. Aron Alexander Þorvarðarson, líffræðingur Náttúrustofu Suðvesturlands. Hanna María Kristjánsdóttir, forstöðumaður Þekkingarseturs Suðurnesja. Mar ta Eiríksdóttir marta@vf.is VIÐTAL 15MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.