Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 4

Víkurfréttir - 07.11.2019, Blaðsíða 4
Toyota Reykjanesbæ Njarðarbraut 19 Reykjanesbæ 420-6610 *Olía, olíusíur, loftsíur, frjókornasíur, bensín- og hráolíusíur, þurrkublöð, þurrkugúmmí, ljósaperur, rúðuvökvi, frostlögur og Adblue (afsláttur gildir eingöngu með vinnusölu). Við skulum BYRJA Á ÞVÍ AÐ SMYRJA Ökum af stað út í veturinn, vel smurð og sæl. Sértilboð á smurþjónustu dagana 4.–15. nóvember hjá Toyota Reykjanesbæ, viðurkenndum þjónustuaðila Toyota á Íslandi. 20% afsláttur af olíu, síum, rúðuþurrkum, bílaperum og fleiru.* 15% afsláttur af vinnu við smurningu hjá viðurkenndum þjónustuaðila Toyota. Engin vandamál – bara lausnir. Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður haldið fimmtud. 12. des. 2019 á Hótel Örk. Hlaðborð og gisting á mann í tveggja manna herb. kr.14.000, í eins manns herb. kr.18.000. Rúta fer frá Nesvöllum 12. des. kl.14:00 og til baka frá Hótel Örk 13. des. kl.10:30 og kostar kr.1.500, sem greiðist með reiðufé við brottför! Skráning frá 7.-18. nóvember nk. hjá Elínu, 778 6010 eða Margréti, 896 3173 Ferðanefndin. Jólahlaðborð Jólakveðjur Jólablað Faxa kemur út í desember, 79. árið í röð. Þeim sem vilja senda jólakveðju eða auglýsa í jólablaðinu 2019 er bent á að hafa samband við Eystein formann blaðstjórnar með því að senda póst á eysteinne@gmail.com eða í síma 698-1404. Málfundafélagið Faxi Nýr mánuður kominn og það styttist óðfluga í að sjómenn á bátunum sem eru gerðir út frá Suðurnesjum komi til heimahafnar og líf færist í aukana, allavega í Grindavík. Nú eru frystitogararnir að veiðum og fara næst síðasta eða jafnvel síðasta róður sinn á þessu ári. Nýjasti frysti- togarinn sem Þorbjörn ehf. gerir út, Tómas Þorvaldsson GK, átti ansi góð- an októbermánuð en togarinn landaði alls 1303 tonnum í tveimur róðrum og mest 684 tonn. Af þessum 1303 tonnum var ufsi 190 tonn, þorskur 524 tonn, ýsa 132 tonn og Gullax 112 tonn. Hinir frystitogararnir lönduðu líka en ekki þó eins mikið og Tómas gerði. Hrafn Sveinbjarnarsson GK var með 677 tonn í einum róðri og af því var mest karfi eða um 340 tonn en þorskur 283 tonn. Baldvin Njáls- son GK var með 644 tonn í tveimur róðrum og af því var ufsi 217 tonn og þorskur 141 tonn. Af Nesfiskstogurunum var Sóley Sigurjóns GK með 671 tonn í sjö róðrum en óttalegt flakk var á togar- anum, landaði á Siglufirði, Eskifirði og Fáskrúðsfirði. Berglín GK var með 399 tonn í 6 róðrum og landaði í sömu höfnum og Sóley. Aðeins rættist úr aflanum hjá línubát- unum undir lokin í október. Fjölnir GK varð aflahæstur með 467 tonn í 5 róðrum og mest 106 tonn en hann landaði á Sauðárkróki, Siglufirði og Djúpavogi. Páll Jónsson GK var með 424 tonn í fimm, öllu landað á Djúpavogi. Hrafn GK 403 tonn í sex róðrum og mest 106 tonn, öllu landað á Siglufirði. Jóhanna Gísladóttir GK 395 tonn í fjórum og mest 134 tonn. Sturla GK var með 392 tonn í sex róðrum, Sighvatur GK 391 tonn í fimm róðrum og Valdimar GK 383 tonn í sex róðrum. Af minni bátunum var Margrét GK með 145 tonn í 20 róðrum, Óli á Stað GK var með 132 tonn í 25 róðrum og þess má geta að Óli á Stað GK var sá bátur sem oftast réri allra báta á Íslandi í október. Meðalaflinn hjá bátnum var reyndar ekkert sér- stakur eða 5,3 tonn. Til dæmis var meðalaflinn hjá Margréti GK 7,3 tonn, Vésteinn GK var með 111 tonn í 12 róðrum, Daðey GK 103 tonn í 16 róðrum og með meðalafla upp á 6,4 tonn. Auður Vésteins SU var með 96 tn í 12 róðrum og mest 21,5 tonn. Guðrún GK landaði 83,5 tonnum í 17 róðrum eða 4,9 tonn í róðri. Dúddi Gísla GK landaði 68 tn í 16 róðrum. Það má geta þess að allir þessir bátar sem að ofan eru nefndir lönduðu afla sínum fyrir austan eða norðan. Ef einungis er horft á bátana sem voru að veiða hérna og lönduðu á Suður- nesjum þá var Addi Afi GK með 6,7 tonn í þremur róðrum og Guðrún Petrína GK með 4,9 tonn í tveimur, og Alli GK 5,3 tonn í þremur róðrum. Allir þessir bátar lönduðu í Sandgerði. Reyndar eru nokkrir bátar byrjaðir á veiðum núna í nóvember en það byrjar rólega hjá þeim. Sævík GK er með 12,7 tonn í tveimur róðrum, Mar- grét GK 12,6 tonn í tveimur, Óli á Stað GK 9,3 tonn í þremur og Geirfugl GK 7,3 tonn í tveimur róðrum en það má geta þess að Geirfugl GK er balabátur. Daðey GK var með 6,7 tonn í einum túr, Katrín GK 1,9 tonn í einum en Katrín GK var að hefja veiðar í lok október og var þá báturinn búinn að liggja við bryggju síðan í byrjun maí 2019. Þótt svona langt sé liðið á árið þá voru nú samt nokkrir handfæra- bátar að róa í október, t.d í Grindavík var Grindjáni GK með 4,8 tonn í níu róðrum, Þórdís GK með 4 tonn í sjö róðrum, Hrappur GK 342 kíló í einum róðri. Í Sandgerði var Fengur GK með 2 tonn í fjórum túrum og má geta þess að Fengur GK hefur líka landað núna í nóvember 278 kíló í einni löndun. Steini GK var með 1,2 tonn í 4 róðrum, Staksteinn GK 897 kíló í tveimur, Alla GK 313 kíló í tveimur og Mjallhvít KE 159 kg í einum túr. Enginn færabátur landaði í Keflavík og reyndar var mjög lítið um að vera í Keflavík og Njarðvík. Netaveiðin var léleg og þótt Maron GK hafi farið í 20 róðra þá var aflinn aðeins 39,3 tonn eða 1,9 tonn í róðri. Grímsnes GK var aðeins með 21 tonn í 13 eða 1,6 tonn í róðri. Sunna Líf GK var með 9,2 tonn í 11 róðrum og landaði í Sandgerði. Í Sandgerði voru reyndar tveir bátar sem voru á skötuselsnetaveiðum og voru það Neisti HU sem var með 1,4 tonn í sex róðrum og Garpur RE með 53 kíló í einum túr. Reyndar fór síðan Garpur RE til Húsavíkur og lék þar smá hlutverk í bíómynd sem verið var að taka upp á Húsavík og inn á Skjálfandaflóa þar sem Garpur RE var í hlutverki. AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM Gísli Reynisson gisli@aflafrettir.is AFLA FRÉTTIR Styttist í líf í höfnum Suðurnesja Norræna félagið í Suðurnesjabæ, áður Norræna félagið í Garði, var stofnað árið 2007 og varð gerð nafnabreyting á félaginu við sameiningu sveitar- félaganna í Garði og Sandgerði árið 2019. Félagið er deild í Norræna félag- inu á Íslandi þar sem áhugasamir aðilar um norrænt samstarf og vináttu Norðurlanda starfa saman að ýmsum verkefnum m.a. á sviði tungumála, menningar og umhverfismála. Í haust tekur Norræna félagið í Suður- nesjabæ þátt í Norrænu bókmennta- vikunni 11.-17. nóvember í samstarfi við grunnskólana í Suðurnesjabæ. Þemað er ,,fest” – veislur. Settar verða upp litlar sýningar um Línu Langsokk í grunnskólunum og nemendum sem eru að læra um Norðurlöndin boðið að taka þátt í getraun. Föstudaginn 15. nóvember er félagsmönnum og áhugasömum íbúum Suðurnesja- bæjar boðið að sjá óskarsverðlauna- myndina Babettes gæstebud, frá 1987, sem byggð er á sögu Karen Blixen. Myndin er á dönsku og verður sýnd með dönskum texta í Miðgarði í Gerðaskóla kl. 20. Norræna félagið í Suðurnesjabæ er með Facebook síðu, með sama nafni, þar sem hægt er að fylgjast með fréttum, tilkynningum og við- burðum frá Norðurlöndum og úr félagsstarfinu. Þeir sem vilja ganga í þennan öfluga og jákvæða félags- skap er velkomið að hafa samband í gegnum Facebook síðu félagsins til að skrá sig í félagið. Með þökk og kveðju Margrét I. Ásgeirsdóttir, formaður Norræna félagsins í Suðurnesjabæ. Norræna félagið í Suðurnesjabæ tekur þátt í Norrænu bókmenntavikunni 4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.