Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.11.2019, Side 16

Víkurfréttir - 07.11.2019, Side 16
Hvatningin: UMSJÓN Ásta Rún Arnmundsdóttirog Birgitta Rós Jónsdóttir Uppáhalds: -kennari: Rósa. -skólafag: Lýðheilsa. -sjónvarpsþættir: How I Met Your Mother. -kvikmynd: Divergent. -hljómsveit: One Direc- tion. -leikari: Post Malone. Helsti kostur FS er Rósa dönskukennari, segir Halldór Már Jónsson sem er FSingur vikunnar að þessu sinni. Hall- dór Már er 16 ára nemandi við skólann sem stefnir á að verða forseti. Hvað heitir þú á fullu nafni? Halldór Már Jónsson Á hvaða braut ertu? Almennri braut. Hvaðan ertu og hvað ertu gamall? 16 ára fæddist í Keflavík en bý í Njarðvík. Hver er helsti kostur við FS? Rósa dönskukennari. Hver eru áhugamálin þín? Vera með vinum. Hvað hræðistu mest? Ég myndi segja köngulær og trúðar. Hvaða FS-ingur er líklegur til þess að verða frægur og hvers vegna? Steini því hann er svo duglegur að búa til tónlist. Hver er fyndnastur í skólanum? Jónas Dagur og Rúnar Smári. Hvað sástu síðast í bíó? The Joker. Hvað finnst þér vanta í mötuneytið? Orkudrykki og súkkulaðistykki. Hver er helsti gallinn þinn? Get verið dónalegur. Hver er helsti kostur þinn? Vinalegur Hvaða þrjú öpp eru mest notuð í símanum þínum? Snapchat, Instagram og Safari. Hverju myndir þú breyta ef þú værir skólameistari FS? Aðeins lengra vetrarfrí. Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari fólks? Heiðarleiki. Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum? Alveg nóg fyrir mig. Hver er stefnan fyrir framtíðina? Forsetinn. Hvað finnst þér best við að búa á Suðurnesjum? Maður þekkir flesta. Stefnir á forsetann FS-ingurinn: Við veljum ekki hvaða verkefni lífið færir okkur. En þannig er nú lífið. Hins vegar hefur maður val um hvernig mann langar til þess að takast á við þau lífsverkefni. Í flestum tilfellum er lífið skemmtilegt og við fáum jákvæð verkefni til að takast á við. Flestir fá tækifæri til að mennta sig og útskrifast, gifta sig, eignast börn, ferðast og mér hefur borið gæfa til að gera allt þetta. Einnig fáum við sum þau erfiðu verkefni eins og að lenda í veikindum, fá krabbamein, ekki bara einu sinni heldur tvisvar. Það hefur verið lífssýn mín og eiginleiki að vera jákvæð og alltaf full bjartsýni. Kannski hjálpar það við að lækna krabbann, það alla vega hjálpar mér að takast á við hann. Það er val með hvaða hugarfari maður tekst á við verkefnin. Þess vegna segi ég að betra er að vera með glasið hálf-fullt frekar en hálf-tómt því það gerir lífið svo miklu jákvæðara og skemmtilegra. Eigið góðan dag. Kveðja, Steina Þórey Ragnarsdóttir, ljósmóðir. Jákvætt viðhorf hjálpar í öllum aðstæðum Í maí 2019 var Jazzfjelag Suður- nesjabæjar formlega stofnað. Til- gangur félagsins er að efla menn- ingu í Suðurnesjabæ og á Suður- nesjum öllum með því að standa fyrir tónleikum í bænum. Þegar hafa þrennir tónleikar farið fram á bókasafni Sandgerðis; Gola tríó í maí 2019, Kvartett Andrésar Þórs gítarleikara í september 2019, tríó Jazz í október 2019 og n.k. fimmtudag 7. nóvember mun kvintett Sigurðar Flosasonar og sænska gítarleikarans Hans Olding koma fram á bókasafni Sandgerðis. Kvintettinn skipa þeir Sigurður Flosason - saxófónn, Hans Olding - gítar, Nils Janson - tromp- et (einnig frá Svíþjóð), Þorgrímur Jónsson - kontrabassi, Einar Schev- ing - trommur. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl.20:00 og er aðgangur ókeypis. Heitt verður á könnunni. Stefnan er að næstu tónleikar verði í janúar 2020 í sal tónlistarskólans í Garði. Ef allt gengur að óskum verða tónleikar mánaðarlega út árið 2020 ýmist í Garði eða Sandgerði og von- andi um ókomna framtíð. Jazzfjelagið stefnir á að ávallt verði aðgangur ókeypis. Tónleikar Jazzfjelags Suðurnesja- bæjar eru einnig hugsaðir til að gera nemendum tónlistarskólanna kleift að stunda tónleika í heimabyggð og fá tækifæri til að hlusta á tónlistarfólk á heimsmælikvarða. Efling menn- ingarlífs og stuðningur við tónlistarlíf á Suðurnesjum er tilgangur félags- ins sem er óhagnaðardrifið áhuga- mannafélag. Nýstofnað Jazzfjelag Suðurnesjabæjar með tónleika á fimmtudagskvöld 7. nóvember mun kvint- ett Sigurðar Flosasonar og sænska gítarleikarans Hans Olding koma fram á bókasafni Sandgerðis. Efling menningarlífs og stuðningur við tónlistarlíf á Suðurnesjum er tilgangur félagsins Síðastliðið sunnudagskvöld var Allra heilagra messa í Keflavíkurkirkju en messan er haldin í samstarfi við HSS og hefur verið undanfarin ár. Í messunni voru lesin upp, af hjúkr- unarfræðingum D álmu, nöfn allra þeirra 70 sem létust á sjúkrahúsinu í Keflavík frá 1. nóvember í fyrra og líka þeim 47 sem skráðir voru í prest- þjónustubækur kirkjunnar á þessu tímabili, nöfn sem séra Erla las upp. Þetta var mikill fjöldi látinna, þegar maður heyrði öll nöfnin lesin upp í einu. Það mátti heyra tilfinningaleg viðbrögð sumra kirkjugesta þegar nöfn nákominna voru lesin upp og óskar maður þeim öllum alls hins besta og guðsblessunar. Kór Keflavíkurkirkju söng undir stjórn Arnórs organista. Systurnar Elíza Geirsdóttir Newman og Hulda Geirsdóttir Newman tóku þátt í at- höfninni. Elíza söng frumsamið lag um móður sína sem lést snögglega á jólanótt fyrir þrettán árum og Hulda var með hugvekju um hvernig hún tókst á við skyndilegan móðurmissi. Fróðlegt erindi. Fallegt kvöld, falleg messa, falleg tónlist, fallegt veður og frábært bakkelsi sem starfsfólk D álmu deildar útbjó ásamt Sigurjóni bakara og móður séra Erlu. Hafið öll þökk fyrir, þið sem stuðlið að því að svona fallegar kvöldstundir geti orðið að veruleika á hverju ári. Án ykkar er samfélagið fátækara. Með kveðju, Sigurbjörn Arnar Jónsson. Falleg kirkjustund sem heiðrar minningu látinna Er ég var á leið inn í kirkjuna blasti við þessi skemmtilega sýn af fallegri kisu sem beið hin rólegasta fyrir utan bleiklitaða kirkjuna. Kannski viðeigandi í ljósi þess að kettir eru sagðir eiga níu líf, sagði Sigurbjörn í pistli sínum. Sigurbjörn Arnar Jónsson. 16 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.