Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 2
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
845 0900
FERÐIR Á DAG
ALLTAF PLÁSS
Í BÍLNUM
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 898 2222, hilmar@vf.is
// Blaðamenn: Marta Eiríksdóttir, sími 857 8445, marta@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir,
vf@vf.is // Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, sími 421 0001, andrea@
vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís
Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun:
Landsprent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn
útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið andrea@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00
á mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur frétta,
vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt
fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
HREINSUM
RIMLAGARDÍNUR OG
MYRKVUNARGARDÍNUR
NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS
Tómas Már Sigurðsson hefur verið ráðinn forstjóri HS Orku. Mun
hann taka við starfinu frá og með næstu áramótum.
Tómas Már
kemur til liðs
við HS Orku
eftir farsælan
feril hjá Al-
coa, þar sem
hann gegndi
síðast stöðu
a ð s t o ð a r -
forstjóra á
heimsvísu.
„Það er mér mikil ánægja að
ganga til liðs við HS Orku. Fyrir-
tækið hefur verið frumkvöðull í
jarðhitanýtingu auk margs konar
nýsköpun og þróun henni tengdri,
líkt og Auðlindagarður HS Orku
ber vitni um, en hann er einstakur
á heimsvísu og til marks um það
hvernig hægt er að nýta auðlindir
með sjálfbærum hætti, samfélaginu
og umhverfinu til heilla. Þau tæki-
færi sem blasa við HS Orku eru
afar spennandi og ég hlakka til að
vinna að þeim með því afburðar-
fólki sem hjá fyrirtækinu starfar,“
segir Tómas Már Sigurðsson, ný-
ráðinn forstjóri.
Tómas Már hefur starfað um árabil
hjá Alcoa, þar sem hann gegndi
stöðu forstjóra Alcoa á Íslandi, í
Evrópu og Mið-Austurlöndum,
og nú síðast frá 2014 stöðu að-
stoðarforstjóra fyrir Alcoa Cor-
poration. Áður starfaði Tómas sem
framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá
Norðuráli. Tómas Már er mennt-
aður umhverfisverkfræðingur frá
Háskóla Íslands og með meistara-
próf í skipulagsverkfræði frá Cor-
nell-háskólanum í New York. Hann
hefur setið í fjölda stjórna og var
m.a. formaður Viðskiptaráðs frá
2009-2012, sat í stjórn Samtaka
iðnaðarins frá 2005-2011 og hefur
verið í stjórn evrópskra álfram-
leiðenda frá 2012.
Tómas ráðinn
forstjóri HS Orku
Miðvikudaginn 30. október var haldinn 161. fundur bæjarstjórnar Sveitar-
félagsins Voga. Á þeim fundi sat bæjarfulltrúinn og formaður bæjarráðs,
Bergur Brynjar Álfþórsson, sinn 100. fund í bæjarstjórn.
Fyrsti fundur í bæjarstjórn Sveitar-
félagsins Voga var haldinn þann 12
janúar 2006. Fram til þess tíma var
nafn sveitarfélagsins Vatnsleysu-
strandarhreppur og æðsta stjórn-
valdið á hendi hreppsnefndar. Bergur
var kjörinn varabæjarfulltrúi í bæjar-
stjórn Voga í sveitarstjórnarkosning-
unum sem fram fóru í maí 2006. Ell-
efti fundur bæjarstjórnar var haldinn
þriðjudaginn 5. september 2006. Í
fundargerð kemur fram að þá hafi
Bergur Álfþórsson setið fundinn, sem
varamaður fyrir Birgi Örn Ólafsson
og mun þetta hafa verið fyrsti fundur
Bergs í bæjarstjórn Sveitarfélagsins
Voga.
Bergur hefur setið óslitið í bæjar-
stjórn frá 2006, fyrst sem varabæjar-
fulltrúi en frá árinu 2010 sem bæjar-
fulltrúi.
Sveitarfélagið óskar Bergi til ham-
ingju með þennan áfanga á heimasíðu
sinni og þakkar honum störf hans í
þágu sveitarfélagsins. Af þessu tilefni
færði sveitarfélagið Bergi bókargjöf
og á meðfylgjandi mynd má sjá Ingþór
Guðmundsson forseta bæjarstjórnar
afhenda Bergi gjöfina.
Bergur setið eitthundrað
fundi í bæjarstjórn Voga
Bergur Álfþórsson, til vinstri, tekur við bókargjöf úr hendi Ingþórs Guðmundssonar.
Hvenær finnst þér passlegt
að skreyta fyrir jól?
Ágúst Hrafnsson:
„Ég bý í blokk og
fylgist með ná-
grönnum mín-
um. Þegar þeir
byrja að skreyta
svalirnar þá geri
ég það einnig.
Svo set ég jólaljós í
gluggana um mánaða-
mótin nóvember, desember.“
Áróra Karlsdóttir:
„Ég er til dæmis
búin að setja
fyrsta ljósið
út í glugga
en það er
hvítur ljós-
hringur og
ætla að bæta
við næstu daga
alveg eins ljósum
í hina gluggana. Svo finnst
mér allt í lagi að setja upp jóla-
skrautið upp úr miðjum nóvem-
ber því það er svo mikið myrkur
úti.“
Guðbrandur
Sigurðsson:
„Málið er að
strákurinn
minn á af-
mæli 11.
desember
og ég hef
haft það fyrir
sið að skreyta
ekki fyrr en í kringum afmælið
hans og vil halda þeim sið
áfram.“
Sigríður Sig-
urðardóttir:
„Mér finnst
passlegt að
setja upp
jólaljós í
glugga svona
1. des og geri
það.“
SPURNING VIKUNNAR
ÆFT AF MIKLU KAPPI FYRIR
FIÐLARANN Á ÞAKINU Í STAPA
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar, í samstarfi við Óperufé-
lagið Norðuróp, setur upp söngleikinn „Fiðlarinn á
þakinu“ um aðra helgi en frumsýning verður í Stapa 15.
nóvember nk. Tilefnið er 20 ára afmæli Tónlistarskóla
Reykjanesbæjar á þessu ári en Óperufélagið Norðuróp
verður einnig 20 ára.
Undirbúnings- og æfingatímabilið hefur verið langt og
strangt en æfingar fyrir söngleikinn hófust í október á
síðasta ári. Grunnurinn í sýningunni eru söngnemendur
úr Tónlistarskóla Reykjanesbæjar en einnig úr kórum
af svæðinu en söngvarar koma úr Grindavík, Sandgerði
og Garði ásamt söngvurum úr Reykjanesbæ. Þá tekur 35
manna hljómsveit frá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
þátt í uppsetningunni.
Suðurnesjamagasín Víkurfrétta kíkti á æfingu á Fiðlar-
anum á þakinu um síðustu helgi en veglegt innslag
verður í þættinum á fimmtudagskvöld á Hringbraut
og vf.is þar sem rætt er við söngfólk og sýnd tóndæmi
frá æfingu.
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.