Víkurfréttir - 07.11.2019, Page 23
Saman náum við árangri
Samskip eru með gáma af ýmsum gerðum og stærðum til sölu.
Gámar eru ódýr lausn sem má nýta á marga vegu, sem tækjageymslu,
kaffiskúr, vörugeymslu, vinnuskúr og margt fleira.
Fáðu tilboð hjá okkur á gamar@samskip.is
eða í síma 458 8000
Við flytjum ekki bara vörur.
Við seljum líka gáma.
AÐALFUNDUR
MÁNA 2019
Aðalfundur hestamannafélagsins Mána fer fram
þriðjudaginn 26. nóvember kl. 20 í reiðhöll Mána.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og nefnda
2. Kosning stjórnar og nefnda
3. Reikningar
4. Viðurkenningar
5. Ákvörðun félagsgjalda
6. Lagabreytingar
7. Inntaka nýrra félaga
8. Önnur mál
Stjórn Mána
Körfuknattleiksdeildir Keflavíkur
og Njarðvíkur sneru bökum saman
síðasta laugardag og lögðu sitt af
mörkum í að kolefnisjafna. Um var
að ræða fjáröflunarverkefni á vegum
Kadeco í samvinnu við Skógrækt
ríkisins en gróðursetning er ein leið
til að draga úr magni koltvísýrings í
andrúmsloftinu.
Vaskur hópur var saman komin á
Ásbrú, nánar tiltekið við vatnstankinn
sem blasir við fyrir ofan Grænás og
gróðursetti ríflega 500 plöntur og tré.
„Virkilega skemmtilegt verkefni
sem gaman var að taka þátt í með
nágrönnum okkar úr Njarðvík. Að
lokinni gróðursetningu buðu snilling-
arnir í SB málun svo öllum hópnum
í pizzuveislu á Langbest,“ segir á
heimasíðu körfunnar í Keflavík.
Sex leikmenn kvenaliðs Keflavíkur í knattspyrnu sem spilar í
Inkassodeildinni á næsta ári hafa framlengt samninga sína við
knattspyrnudeildina.
Þetta eru þær: Amelía Rún Fjeldsted, Birgitta Hallgrímsdóttir,
Eva Lind Daníelsdóttir, Kara Petra Gylfadóttir, Marína Rún Guð-
mundsdóttir og Valdís Ósk Sigurðardóttir. Nýlega voru kláraðir
nýir samningar við þjálfarana, Gunnar M. Jónsson og Hauk Bene-
diktsson ásamt fyrirliðanum Natöshu Anasi.
Tvíburarnir og landsliðskonurnar Katla María og Íris Una Þórðardætur
gengu nýlega til liðs við Fylki og líklegt þykir að Sveindís Jane Jóns-
dóttir fari til liðs í Pepsi-deildinni. Það er skarð fyrir skildi hjá Keflavík.
Andri og Sigurbergur til Keflavíkur
Karlalið Keflavíkur í knattspyrnu gekk nýlega frá samningi við þá
Andra Fannar Freysson og Sigurberg Bjarnason en þeir hafa lengst
af leikið með Njarðvík og eru uppaldir þar.
Andri Fannar er 27 ára gamall miðjumaður en hann lék með Keflavík
2013-2014 og lék sextán leiki með liðinu. Sigurbergur Bjarnason
sem leikið hefur sem kantmaður lék sína fyrstu leiki með Njarðvík
í Inkasso-deildinni í fyrra en meiddist og lék ekkert með liðinu í
sumar. Hann lék einn leik með Vestra í sumar en faðir hans er Bjarni
Jóhannsson, þjálfari liðsins. Andstæðingar sneru bökum saman
Keflavíkurstúlkur framlengja
Andri og Sigurbergur til Keflavíkur
Sveindís Jane gæti verið á
leið frá Keflavík en nýlega
fóru tvíburasysturnar
Katla og Íris.
Andri Freyr í
Njarðvíkurbúningi
í sumar.
Andstæðingar í gróðursetningu
Starfskraftur óskast
til að sinna sölu- og
markaðsstarfi
Æskilegt að viðkomandi hafi
reynslu í sölubókhaldi.
Umsóknir ásamt starfsferilsskýrslu sendist
á egill@arcticsea.is fyrir 10. nóvember.
23ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 7. nóvember 2019 // 42. tbl. // 40. árg.