Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.2019, Síða 14

Víkurfréttir - 05.12.2019, Síða 14
Ný þjónustumiðstöð Sveitarfélagsins Voga var vígð við formlega athöfn á fullveldisdaginn sl. sunnudag. Þjónustumiðstöðin er tæplega 436 fermetra stálgrindarhús með 126 fermetra millilofti. Húsið stendur við Iðndal 4 í Vogum, í næsta húsi við bæjarskrifstofurnar. Lóðin undir þjónustumið- stöðina hafði lengi staðið auð en þar var fyrir sökkull sem aldrei hafði verið byggt á. Aðalverktaki við bygginguna var Sparri ehf. í Reykjanesbæ en Tækniþjónusta SÁ ehf. í Reykjanesbæ hannaði mannvirkið og hafði eftirlit með framkvæmdinni. Húsið mun uppfylla þarfir umhverfisdeildar sveitarfélagsins með öllum þeim tólum, tækjum og búnaði sem þeirri starfsemi fylgir. SÉRHÖNNUÐ BYGGING FYRIR UMHVERFISDEILD Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri í Vogum, segir að nýja þjónustumiðstöðin sé gjörbylting fyrir sveitarfélagið en byggingin sé sérhönnuð fyrir um- hverfisdeildina. Í húsinu eru þrír salir. Einn er hugsaður fyrir það sem almennt er kallað áhaldahús sveitarfélags. Einn salur er hugsaður til viðhalds og þrifa á tækjum og þá er þriðji salurinn slökkvistöð fyrir Brunavarnir Suðurnesja. Þar er nú varanlega staðsettur léttur slökkvibíll sem áður þjónaði á slökkvistöðinni í Reykjanesbæ. Staðsetning bílsins í Vogum mun stytta til muna viðbragð slökkviliðs í Vogum og á Vatnsleysu- strönd. Nú er verið að fá inn mann- skap í Vogum til að sjá um fyrstu við- brögð ef brunaútkall berst úr Vogum eða af Vatnsleysuströnd. Stefnt er að því að fá inn átta einstaklinga úr sveitarfélaginu sem munu hljóta við- eigandi þjálfun í slökkvistörfum. Í nýju þjónustumiðstöðinni er einn- ig góð starfsmannaaðstaða fyrir þá fjóra starfsmenn umhverfisdeildar sveitarfélagsins. Þá er einnig aðstaða vinnuskóla sveitarfélagsins í hús- inu. Á millilofti er svo góð aðstaða til Ný þjónustumiðstöð í Vogum er gjörbylting fyrir sveitarfélagið n Þjónustumiðstöðin og nánasta umhverfi hennar séð úr flygildi Víkurfrétta. Víkurfréttamyndir: Hilmar Bragin Séð yfir stærsta salinn í húsinu þar sem hið eiginlega áhaldahús verður. n Gestir við opnun þjónustumiðstöðvarinnar. n Fulltrúar Brunavarna Suðurnesja við slökkvibílinn sem verður varanlega staðsettur í Vogum. n Ásgeir Eiríksson bæjarstjóri, Vignir Friðbjörnsson forstöðumaður þjónustumiðstöðvarinnar og Arnar Jónsson aðalverktaki frá Sparra ehf. við vígslu hússins. Íbúar í Vogum fengu sitt bæjar- jólatré úr Skorradal. Jólaljósin á því voru tendruð í Aragerði á fyrsta sunnudegi í aðventu, síðastliðinn sunnudag. Þrátt fyrir slagveðursrigningu þá létu yngstu bæjarbúarnir sig ekki vanta á svæðið þegar ljósin voru kveikt, því jólasveinn hafði boðað komu sína á svæðið. Hann mætti með fullan poka af mandarínum og fengu allir sem vildu. Dagskráin við tréð var stutt. Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju söng jólalög og flutt var stutt jóla- saga. Þá sáu tvær ungar hnátur, Máney Kamilla og Hulda Ieva, um það að kveikja ljósin á jólatrénu sem tekur sig vel út baðað jóla- ljósum. Ljósmyndari Víkurfrétta smellti af meðfylgjandi myndum við þetta tækifæri. Jólatré úr Skorradal baðað jólaljósum í Aragerði í Vogum n Fallega skreytt jólatré í Aragerði. Leikskólabörn tóku þátt í að skreyta tréð. n Kirkjukór Kálfatjarnarkirkju söng jólalög. n Máney Kamilla og Hulda Ieva kveiktu ljósin á trénu. 14 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.