Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.12.2019, Síða 27

Víkurfréttir - 05.12.2019, Síða 27
Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni - leiðiskrossar - skreyttar greinar Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála Jólatréssala Jólatrésalan opnar í porti Húsasmiðjunnar á Fitjum 7. desember Opið laugardaga kl. 11–20 sunnudaga kl. 14–20 virka daga kl. 17–20 Gott golfsumar að baki í Leirunni Golfklúbbur Suðurnesja hélt aðal- fund sinn á sunnudag. Viðsnúningur varð á rekstri klúbbsins frá fyrra ári sem var mjög erfitt og skilaði GS ágætis hagnaði í ár. Um 15% fjölgun félaga varð á árinu og aðsókn að golfvellinum hin fín- asta, þátttaka í mótum og leiknum hringum fjölgaði einnig frá fyrra ári. Fundurinn var snarpur og fór vel fram. Formannsskipti í Leirunni Á fundinum var nýr for- maður kjörinn en Jóhann Páll Kristbjörnsson lét af embætti eftir fimm ár í formannssætinu. Hann sagði við það tilefni að hann muni áfram taka þátt í sjálfboðaliðastarfi klúbbsins enda næg vinna framundan. Nýr formaður Golfklúbbs Suðurnesja er Ólöf Kristín Sveins- dóttir sem hefur verið ötul í kvennastarfi klúbbsins. Ólöf er jafnframt fyrsta konan til að gegna stöðu formanns í 55 ára sögu Golfklúbbs Suðurnesja. Hún sagðist hlakka til að takast á við þetta verkefni og myndi leggja sig fram við að halda áfram því góða starfi sem hefur verið unnið að undanförnu. Fjögur gull í Svíþjóð – Langbesti árangur Njarðvíkinga á erlendri grund Um þarsíðustu helgi fór fram Södra Judo Open í Haninge í Stokkhólmi. Alls tóku 49 lið frá fjórum löndum þátt í og voru keppendur tæplega 400. Mótið er liður í sænskri mótaröð sem er ætluð börnum, unglingum og fullorðnum. Njarðvíkingar sendu sex júdókappa en Njarðvíkingurinn Heiðrún Fjóla Pálsdóttir fór á vegum landsliðs Júdó- sambands Íslands. Krakkarnir stóðu sig frábærlega og höluðu inn góð- málmum. Ingólfur Rögnvaldsson varð annar í -66 kg flokki 15–17 og 18–20 ára, Mariam Elsayd sigraði sinn flokk, Daníel Dagur Árnason sigraði í -55kg flokki 18–20 ára og varð þriðji í sama þyngdarflokki 15–17 ára, Jóhannes Pálsson sigraði í +66kg flokki 14–15 ára en varð svo annar í -90 kg flokki 15–17 ára. Systir hans, Heiðrún Fjóla Pálsdóttir, varð önnur í +78 kg flokki 18–20 ára og gerði sér lítið fyrir og sigraði +78 kg flokk kvenna. Njarðvík endaði í fimmta sæti í keppni liða og er þetta langbesti árangur júdódeildarinnar á erlendri grundu til þessa. Fráfarandi og nýkjör- inn formaður Golf- klúbbs Suðurnesja. 27ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 5. desember 2019 // 46. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.