Mosfellingur - 19.12.2019, Side 38

Mosfellingur - 19.12.2019, Side 38
 - Aðsendar greinar38 Framundan eru tímamót: vetrar- sólhvörf, jól og áramót á næsta leiti. Lífgjafi okkar allra hækkar á lofti, skammt undan lúrir janúar sem er nefndur eftir rómverska guðnum Janusi með andlitin tvö, annað sneri til fortíðar en hitt fram á veginn. Hér á eftir hyggjumst við und- irrituð drepa stuttlega á það sem hefur verið ofarlega á baugi síðustu misserin á vettvangi sveitarfélags- ins okkar, um leið og við horfum til framtíðar. Endurskoðun aðalskipulags Í Mosfellsbæ er í gildi aðalskipu- lag fyrir árin 2011–2030. Eftir síðustu bæjarstjórnarkosningar var tekin sú ákvörðun að endurskoða skipulagið, það ferli stendur yfir og áætlað að það taki um þrjú ár. Skipulagsmál snerta daglegt líf og lífsgæði okkar allra á einn eða annan hátt og því mikilvægt að þessi endurskoðun byggi á skarpri framtíðarsýn, hún sé vel ígrunduð og markviss. Fjármál 27. nóvember sl. var fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar samþykkt í bæjarstjórn. Í áætlun fyrir árið 2020 er gert ráð fyrir að rekstrarafgangur verði 340 m.kr. og fram- kvæmdakostnaður næsta árs nemi tæpum þremur milljörðum króna. Þar vega þyngst framkvæmdir við skóla-, gatna- og veitu- mannvirki, þau viðamestu sem sveitarfé- lagið hefur ráðist í til þessa. Gert er ráð fyrir hóflegri hækkun á gjaldskrám, í takti við þá stefnu sem mörkuð var í lífskjarasamning- unum og leikskólagjöld munu lækka um 5% í samræmi við málefnasamning V- og D-lista sem gerður var eftir síðustu kosn- ingar. Skólamál - íþróttamál Stór hluti tekna sveitarfélagsins fer í að sinna skólahaldi; síðustu árin hefur bygging hins glæsilega Helgafellsskóla vegið þar þyngst en síðastliðið sumar fóru einnig fram miklar endurbætur á húsnæði Varmárskóla. Samkvæmt fjárhagsáætlun verður stofn- aður nýsköpunar- og þróunarsjóður en hlutverk hans er að styrkja kennara til að vinna að verkefnum sem leiða til framþró- unar í skólum bæjarins. Stöðugt þarf að huga að uppbyggingu og viðhaldi íþróttamannvirkja í ört stækkandi sveitarfélagi líkt og Mosfellsbæ. Það nýjasta er fjölnota íþróttahús á Varmá sem mun gerbreyta að- stöðunni til knattspyrnuiðkunar. Haldin var opin samkeppni um nafn hússins og tóku 235 einstakl- ingar þátt í henni. Var það afar ánægjulegt að sjá að bæjarbúar létu sig nafngiftina varða og lögðu fram margar góðar tillögur. Nið- urstaða dómnefndar var að velja nafnið Fellið en sex einstaklingar lögðu það nafn til. Hlégarður Menningarmál skipa vegleg- an sess í Mosfellsbæ og í okkar augum leikur félagsheimilið Hlégarður þar stórt hlutverk. Í málefna- samningi núverandi meirihluta er getið um stefnumótun um Hlégarð þar sem eitt höfuðmarkmiðið er að nýta húsið betur í þágu Mosfellinga. Menningar- og nýsköp- unarnefnd bæjarins hefur haldið utan um þessa stefnumótun þar sem dregnar voru upp mismunandi sviðsmyndir, hvað varðar rekstrarform og nýtingu hússins. Niðurstaðan varð sú að velja svonefnda blandaða leið, þar sem samið verður við núverandi rekstraraðila um áframhaldandi rekstur og jafnframt mun Mosfellsbær ráða viðburðastjóra sem tryggir bæjarfélaginu og bæjarbúum greiðari aðgang að húsinu. Gera þarf töluverðar breytingar á bygging- unni svo hún nýtist sem best og styttist í að tillögur arkitekta þar um líti dagsins ljós. Ný umhverfisstefna Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur sam- þykkt nýja umhverfisstefnu fyrir árin 2019– 2030. Stefnan tekur mið af heimsmark- miðum Sameinuðu þjóðanna og má lesa hana á heimasíðu bæjarins. Við hvetjum bæjarbúa til að kynna sér þessa metnaðar- fulla stefnu og láta sig umhverfismál varða í víðustum skilningi þess orðs, minnugir þess að heimsbyggð og heimabyggð eru eitt og hið sama. Þegar öllu er á botninn hvolft. Vinstri-græn í Mosfellsbæ óska öllum bæjarbúum gleðilegra jóla, árs og friðar. Bjarki Bjarnason, bæjarfulltrúi VG og forseti bæjarstjórnar. Bryndís Brynjarsdóttir, varabæjarfulltrúi VG. Hækkar sól um jól Það hefur eflaust ekki farið fram- hjá Mosfellingum frekar en öðrum landsmönnum að eftir um 12 ára ferli þá munu ný umferðarlög taka gildi um áramótin. Margt nýtt er í lögunum sem vert er að taka eftir. Hér eru nokkur nýmæli. Snjalltæki Í lögunum eru ákvæði er varða snjalltæki og bann við notkun þeirra gert skýrt, jafnt fyrir ökumenn vélknúinna ökutækja sem og fyrir hjólreiðamenn. Létt bifhjól Létt bifhjól eru nú skráningar- og skoð- unarskyld. Ölvunarakstur Í lögunum telst ökumaður ekki geta stjórnað ökutæki örugglega ef vínanda- magn mælist 0,2‰ í blóði hans. Hlutlægu mörkin sem segja til um það hvort ökumað- ur geti stjórnað ökutæki örugglega eru því lækkuð úr 0,5‰ í 0,2‰. Öryggisbelti í hópbifreiðum Ekki er heimilt að veita undanþágu frá notkun öryggis- og verndarbúnaðar í hóp- bifreiðum í almenningsakstri í dreifbýli á vegum þar sem heimilt er að aka hraðar en 80 km á klst. Akstur í hringtorgum Sett eru sérstök ákvæði um akstur í hringtorgum. Þannig er lögfest að öku- maður í ytri hring skal veita þeim sem ekur í innri hring forgang út úr torginu. Þá skal ökumaður í hringtorgi, sem skipt er í tvær akreinar, velja hægri akrein (ytri hring), ætli hann að aka út úr hringtorginu á fyrstu gatnamótum. Bannað að leggja bílum í botn- langagötu Í lögunum er sérstaklega áréttað að ekki megi leggja í snúningssvæði í botn- langagötum. Hjólreiðamaður skal gefa hljóðmerki Í lögunum er kveðið á um að hjólreiða- maður skal gefa hljóðmerki þegar hann nálgast gangandi vegfarendur ef ætla má að þeir verði hans ekki varir. Framhaldsskólar Í umferðarlögunum er nú sérstaklega kveðið á um það að umferðarfræðsla skuli fara fram í framhaldsskólum. Ráðherra sem fer með fræðslumál ákveður að fenginni umsögn Samgöngustofu nánari tilhögun fræðslu og sveitarstjórnum ber að fræða almenning um þær sérreglur er gilda á hverjum stað. Af þessum fáu punktum má sjá að það eru allmargar þarfar breytingar sem nú komast inn í lögin. Margar aðrar breytingar mætti hér kynna en best að að skoða lögin í heild sinni. Lögin er að finna á heimasíðu Alþingis. Umferðarlög nr. 77/2019. Bestu jólakveðjur Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson Ökukennari – 820 1616 Umferðarlög – breytingar um áramótin Næsta blað kemur út: 9. jaNúar Efni og auglýsingar skulu berast fyrir kl. 12, mánudaginn 6. janúar. Leikfiminámskeið veL sótt M yn d/ Ra gg iÓ la Leikfimi fyrir 67 ára og eldri heldur áfram að slá í gegn. Hér má sjá glæsilegan hóp eftir 12 vikna námskeið ásamt þjálfurunum Höllu Karen og Bertu.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.