Fréttablaðið - 14.09.2015, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 14.09.2015, Blaðsíða 2
Fjórar sýningar að eigin vali á besta verðinu. Áskriftarkort Borgarleikhússins Vertu með í vetur! Miðasala 568 8000 | borgarleikhus.is Norðaustan 8-15 m/s um landið norð- vestanvert í dag en hægur vindur í öðrum landshlutum. Þurrt að mestu og nokkuð bjart veður sunnan- og suðvestanlands, annars skýjað og víða dálítil rigning fyrir norðan og austan. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi. Sjá Síðu 20 Veður  Piltar og stúlkur spila fótbolta í Kópavogi Nokkur umræða varð fyrir nokkru um jafnræði kynjanna á fótaboltavöllum í Kópavogi. Í gær léku stúlkurnar í Val og Breiðabliki á Kópavogsvelli, þar sem leikið var til úrslita í þriðja flokki kvenna. Á meðan léku piltar í öðrum flokki, Breiðablik og Snæfellsnes, á Smárahvammsvelli. Fréttablaðið/Pjetur Vin n u d eilu r „Það komu aldrei skýr svör við neinu,“ segir Wiktoria Joanna Ginter, fyrrverandi starfsmað- ur Radio Iceland. Hún segir eiganda stöðvarinnar, Adolf Inga Erlingsson, gera allt sem í hans valdi stendur til að skaða starfsemi stöðvarinnar viljandi. „Mér þykir það mjög skrítið að okkur sé sagt að stöðin sé studd fjár- hagslega af ákveðnum einstaklingi til áramóta en Adolf virðist eyðileggja allar tilraunir til að halda stöðinni gangandi,“ segir hún. Wiktoría kom fyrst inn á stöðina í apríl síðastliðnum en á þeim tíma voru rekstrarörðugleikar á stöðinni að hennar sögn. Hún segir að sam- kvæmt samkomulagi við Adolf Inga myndi hún vinna launalaust þar til að stöðin rétti úr kútnum. Í lok júní var greint frá því að Radio Iceland myndi hætta vegna fjárhags- örðugleika. „Ég sat heima og sá þá skyndilega tilkynningu á Facebook um að stöðinni ætti að loka á mið- nætti. Mér þótti það mjög skrítið vegna þess að þeir létu ekki neinn starfsmannanna vita,“ segir hún. Yfirvofandi lokun stöðvarinnar varð þó skammlíf þar sem dularfullur styrktaraðili frá Svíþjóð hljóp undir bagga með stöðinni. Eftir fjárstuðninginn ákvað starfs- fólkið að koma með hugmyndir um hvernig væri hægt að bæta ímynd stöðvarinnar og tryggja áframhald- andi rekstur hennar. „Okkur var annt um rekstur stöðv- arinnar og spurðum ítrekað um hver framtíð hennar yrði en við fengum engin svör. Til dæmis fann ég vef- hönnuð sem var tilbúinn til að hanna nýja vefsíðu og fá greitt um leið og auglýsingatekjur kæmu í hús.“ Þrátt fyrir vilja vefhönnuðarins var honum vísað frá. „Fyrir nokkru spurði ég fram- kvæmdastjóra stöðvarinnar hvort framtíð stöðvarinnar væri örugg og hann sagði að við værum örugg fram að árslokum. Ég spurði hann þá hvort það væri ekki tímabært að ég fengi fastan samning við stöðina,“ en þá hafði Wiktoria unnið nær launalaust í fjóra mánuði. „En þegar plötusnúðarnir nálguð- ust Adolf og spurðu hann hvort stöð- in væri örugg fram að áramótum hló hann bara að þeim.“ Hann mun hafa sagt þeim að hann ætlaði sér að selja stöðina á næstunni. Hún segir að þá hafi mælirinn orðið fullur en hún er hætt að vinna fyrir stöðina og hefur sent Adolf Inga reikning fyrir þeirri vinnu sem hún lagði fram en hún telur að óvissan um áframhaldandi rekstur og sölu á stöðinni hafi verið forsendubrestur á samkomulagi þeirra. Í svari við tölvupósti sem hún sendi Adolf Inga vegna kröfunnar, sem var upp á tvær milljónir, spyr hann hvað hún hafi eiginlega verið að reykja [e. What have you been smoking?] og að ekk- ert samkomulag hafi verið þeirra á milli. Í niðurlagi póstsins segir hann að hún megi „troða“ reikningnum [e. Take the invoices and shove them.]. Adolf Ingi Erlingsson vildi ekki tjá sig um málið. stefanrafn@frettabladid.is Segir viljandi skemmt fyrir hjá Radio Iceland Fyrrverandi starfsmaður Radio Iceland segir mikla óvissu ríkja um rekstur stöðvarinnar þrátt fyrir utanaðkomandi aðstoð. Hún segir útvarpsstjórann, Adolf Inga Erlingsson, ekki aðhafast neitt til að bæta stöðuna. Í tölvupósti til Wiktoriu segir Adolf Ingi að ekkert samkomulag hafi verið gert við hana um störf hennar á stöðinni. Fréttablaðið/Pjetur SVeitarStjórnarmál Fyrir árið 2020 á að verða kominn  4,7 kílómetra langur hjólastígur meðfram Bústaða- vegi í Reykjavík, allt frá Elliðaárdal að Snorrabraut. Þetta er meðal þess sem fram kemur í  nýrri endurskoðaðri hjól- reiðaáætlun Reykjavíkurborgar. Þá stendur til að leggja hjólastíga um Elliðaárdal milli Höfðabakka og Reykjanesbrautar og  með fram Kringlumýrabraut milli Bústaðavegar og Laugavegar. Þá verður komin samfelld og greið norður-suður hjólaleið í gegnum borgina allt frá Fossvogsdal í suðri til sjávar í norðri. Áætlunin, sem enn er óbirt en til stendur að kynna á ráðstefnu um hjólreiðar í Smáralind næsta föstu- dag, er afrakstur starfshóps um endur skoðun á hjólreiðaáætlun borg- arinnar sem borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti að skipa 7. október 2014. Fyrri áætlun er frá árinu 2010.  – vak Hjólafólk fær nýjar leiðir í borginni ÞýSkaland Þýska ríkisstjórnin ætlar að taka upp tímabundið landamæra- eftirlit við landamæri Þýskalands og Austurríkis. „Landamæraeftirlitið er sárnauð- synlegt fyrir Þýskaland svo hægt sé að takmarka flæði flóttafólks inn til Þýskalands og koma skipulagi á mót- töku þess,“ sagði Thomas de Maizière innanríkisráðherra þegar hann til- kynnti um aðgerðirnar í gær. Þýskaland er hluti af Schengen og samkvæmt reglum samstarfsins mega ríki innan þess ekki takmarka för fólks innan svæðisins. De Maizière bendir hins vegar á heimild til að herða landa- mæraeftirlit af þjóðaröryggisástæðum. „Maður sér að Þjóðverjar eru að fara af miklum þunga fram á endursamn- ing á öllu kerfinu. Þeir eru farnir að tala mjög harkalega í garð þeirra ríkja sem neita að taka þátt í því að koma upp kvótafyrirkomulagi,“ segir Eiríkur Bergmann stjórnmálafræðingur. „Ég held að þarna sé mikil togstreita og að það muni verða þarna skjálfta- hrinur sem muni ganga eftir þessum flekaskilum sem eru að verða milli austurs og vesturs,“ segir Eiríkur og veltir því fyrir sér hvort vesturveldin, sem vilja dreifa  ábyrgð vandans, muni loka á ríki á borð við Ungverja- land en  Eiríkur segir þá fylgja harð- línustefnu sem feli í sér mjög alvarleg mannréttindabrot. „Ég held að íslensk stjórnvöld þurfi að ákveða hvorum megin hryggjar þau verði,“ segir Eiríkur. – þea Þjóðverjar hefja eftirlit á landamærum Flóttabörn að leik í þýsku borginni München. NordicPhotos/AFP Ég sat heima og sá þá skyndilega til- kynningu á Facebook um að stöðinni ætti að loka á mið- nætti. Mér þótti það mjög skrítið vegna þess að þeir létu ekki neinn starfsmann- anna vita. Wiktoria Joanna Ginter 1 4 . S e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n u d a G u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.