Fréttablaðið - 14.09.2015, Page 4
BRIDS
SKÓLINN
Byrjendur (stig 1) 21. september: 8 mánudagar frá 20-23
Kerfið (stig 2) 23. september: 8 miðvikudagar frá 20-23
Stig 1 Hvað þarf að kunna fyrirfram? Ekki neitt, en það
spillir ekki að þekkja ás frá kóng. Ekkert mál að mæta ein/einn.
Stig 2 Hvað meinar makker? Sígild spurning, sem erfitt er
að svara nema kunna kerfið. Farið er vel yfir framhald sagna í
Standard og ýmsar stöður í sagnbaráttu. Námskeiðið hentar
breiðum hópi spilara, bæði þeim sem kunna töluvert fyrir sér
og eins hinum sem eru rétt að slíta fyrsta stokknum.
Mikið spilað og hægt að koma stakur.
Upplýsingar og innritun
í síma 898-5427 og á netinu bridge.is
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
♦
✿ Menntun atvinnulausra
G
ru
nn
sk
ól
am
en
nt
un
Fr
am
ha
ld
ss
kó
la
m
en
nt
un
H
ás
kó
la
m
en
nt
un
60
50
40
30
20
10
%
❚ október 2008
❚ júlí 2015
✿ Flutningar erlendra ríkisborgara til og frá Íslandi
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
❚ Aðfluttir erlendir ríkisborgarar
❚ Brottfluttir erlendir ríkisborgarar
2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015
*Spá
2.931
*2.455
1.281
*941
VinnuMarkaður Vinnumálastofnun
spáir enn frekari samdrætti í atvinnu-
leysi á næsta ári og að á ársgrund-
velli verði atvinnuleysi um 2,7 pró-
sentustig. Einnig spáir stofnunin
áframhaldandi vexti í innflutningi
vinnuafls til landsins sem og auknum
brottflutningi Íslendinga.
Hagvöxtur síðustu sex mánaða
mældist 5,2 prósent. Atvinnuleysi
minnkar hratt, verðbólga eykst og
innflutningur erlends vinnuafls eykst
einnig. Seðlabankinn hefur í tvígang
á árinu hækkað stýrivexti og ríkis-
stjórnin áformar að lækka skatta og
afnema tolla á sérvöru. Ýmsir fræð-
ingar hafa bent á að þenslumerki í
hagkerfinu ættu að vera öllum sýni-
leg.
Bjarni Benediktsson fjármálaráð-
herra telur ríkissjóð ekki standa í
þensluhvetjandi aðgerðum og bendir
á að höfrungahlaupið á vinnumark-
aði sé ekki til bóta. „Launþegahreyf-
ingin er týndi hlekkurinn á vinnu-
markaði. Ríkissjóður er ekki að vinna
að mannaflsfrekum framkvæmdum í
dag,“ segir Bjarni.
Í nýjum gögnum Vinnumálastofn-
unar kemur fram að vænta megi
meira framboðs starfa fyrir ófaglærða
og iðnaðarmenn en sem nemur fjölda
þeirra á vinnumarkaði næstu ár. Það
muni skila sér í auknum innflutningi
erlends vinnuafls til landsins. Að
sama skapi segir í gögnum Vinnu-
málastofnunar að vænta megi minna
framboðs starfa fyrir háskólamennt-
aða næstu árin en nemur fjölda
þeirra á vinnumarkaði nú þegar.
Menntunarstig Íslendinga sem komi
út á vinnumarkaðinn hafi stóraukist
síðustu áratugi. Því sé líklegt að fleiri
háskólamenntaðir verði atvinnu-
lausir á næstu árum, brottflutningur
þeirra af landi brott verði tíðari og að
í ríkara mæli muni háskólamenntaðir
sinna vinnu sem ekki hæfir menntun
þeirra.
Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingarinnar, segir stöðuna
á vinnumarkaði varhugaverða og
telur menn þurfa að skipta um kúrs í
þeim efnum. „Hér blasir við sú hætta
að á Íslandi flytjist inn vinnuafl í lág-
launastörf í vaxtargreinum eins og
ferðaþjónustu á meðan frá landinu
flytjist menntaðir Íslendingar sem
gætu búið til mikil verðmæti í þekk-
ingargreinum,“ segir hann.
Þó dregið hafi gríðarlega úr
atvinnuleysi í öllum hópum frá hruni
virðist atvinnuleysi háskólamennt-
aðra minnka hægar en annarra. Því
hefur hlutfall háskólamenntaðra
meðal atvinnulausra aukist jafnt og
þétt síðustu árin. sveinn@frettabladid.is
Á næstu árum mun erlent innflutt vinnuafl aukast hér á landi á meðan hópur Íslendinga erlendis stækkar verulega.
Fréttablaðið/Vilhelm
Þenslumerki gera vart við sig
Hratt dregur úr atvinnuleysi og erlent vinnuafl hefur margfaldast frá hruni. Brottflutningur menntaðs
íslensks vinnuafls eykst einnig. Búist er við að atvinnuleysi minnki áfram næstu ár. Hagfræðingar benda á
þenslueinkenni í hagkerfinu.
Grikkland Yfir þrjátíu manns fór-
ust, þar á meðal að minnsta kosti
eitt barn, þegar trébáti með um 130
flóttamenn hvolfdi við gríska eyja-
klasann Farmakonisi í gærmorgun.
Daily Mail hafði um kvöldmatarleyt-
ið í gær eftir grísku strandgæslunni að
34 lík hefðu fundist.
Gríska strandgæslan fékk tilkynn-
ingu um að þó nokkur fjöldi væri í
hættu á svæðinu og var í kjölfarið
send björgunarþyrla á svæðið. Tutt-
ugu og níu eru sagðir hafa náð að
synda í land á Farmakonisi, en 68 var
bjargað úr sjónum.
Þá streymdi fólk á bátum frá Tyrk-
landi til grísku eyjarinnar Lesbos. Þar
segir fréttastofa AP að ljósmyndari frá
Reuters hafi talið 10 báta á 90 mín-
útna tímabili í gærmorgun.
Tugir voru hætt komnir þegar stór
gúmbátur með um 70 flóttamenn
innanborðs gaf sig um hundrað
metra frá strönd Lesbos. Þar eru
eyjaskeggjar sagðir hafa brugðist
skarpt við og hjálpað fólki í land, en í
hópnum var fjöldi barna.
Meirihluti flóttafólks sem kemur
til Grikklands heldur för sinni áfram
til annarra landa, flestir til Þýska-
lands. Evrópulönd hafa enn ekki
náð saman um tillögur Jean-Claude
Juncker, forseta framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins, um að löndin
taki saman á flóttamannavandanum
og deili álaginu af móttöku flótta-
fólksins. – gj, óká
Tugir drukknuðu á flótta sínum í gær
Baðstrandargestir á grísku eyjunni Lesbos fylgjast hér með komu sýrlensks flótta-
fólks á bátskrifli yfir hafið frá Tyrklandi. Fréttablaðið/EPA
noreGur Stjórnmálamenn úr norska
Græningjaflokknum hafa óskað
eftir því við landstjóra Svalbarða að
kannað verði hvort eyjan í norðri
geti tekið við flóttafólki. Frá þessu er
greint í Aftenposten.
Svalbarði er ekki hluti af Schengen-
svæðinu og því þarf að kanna hvort
aðgerð af þessum toga væri lögleg.
Fulltrúar Græningjaflokksins telja
að vera flóttamanna á Svalbarða geti
gætt þetta 2.600 manna samfélag lífi
og aukið atvinnutækifæri. Á Sval-
barða eru þó fleiri ísbirnir en þeir eru
um 3.000 talsins. – srs
Vilja senda
flóttamenn til
Svalbarða
Græningjar telja að koma flóttafólks verði
samfélaginu til bóta. NordicPhotos/AFP
uMhVerFisMál Opnaður hefur
v e r i ð v e f u r i n n Ve r n d u m
Þjórsá (www.verndumthjorsa.is.) Á
vefnum er fjallað um áform Lands-
virkjunar um að reisa enn fleiri virkj-
anir í neðri hluta Þjórsár.
„Við teljum að það muni valda
óbætanlegum skaða á lífríki árinn-
ar, sem og allri hinni stórbrotnu
umgjörð hennar,“ segir á vefnum.
„Enn fremur munu framkvæmdirnar
skerða lífsgæði íbúa og sumarhúsa-
eigenda varanlega, bæði í sveitunum
við Þjórsá, á Hellu og víðar á Suður-
landi. “
Að baki síðunni standa samtök
og einstaklingar sem vilja vernda
umhverfi og lífríki Þjórsár. Þar á
meðal Sól á Suðurlandi og vefritið
grugg.is. Kallað er eftir frekari rann-
sóknum á áhrifum virkjana þar, svo
sem á fiskistofnum, ferðamennsku,
leirfoki, loftgæðum og fleiri hlutum.
– óká
Nýr vefur um
virkjanir í
Þjórsá
Urriðafoss í Flóahreppi er einn þeirra
fossa í Þjórsá sem uppi hafa verið ráða-
gerðir um að virkja. Fréttablaðið/Vilhelm
Hér blasir við sú hætta að á
Íslandi flytjist inn vinnuafl í
láglaunastörf í vaxtargreinum
eins og ferðaþjónustu á
meðan frá landinu flytjist
menntaðir Íslendingar sem
gætu búið til mikil verð-
mæti í þekkingargreinum.
Árni Páll Árnason
formaður Samfylkingarinnar
Launþegahreyfingin er
týndi hlekkurinn á vinnu-
markaði. Ríkissjóður
er ekki að vinna að
mannaflsfrekum
framkvæmdum í dag.
Bjarni Benediktsson
fjármálaráðherra