Fréttablaðið - 14.09.2015, Qupperneq 8
GRÍPUR MEIRA EN ATHYGLINA
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Verð frá aðeins
2.290.000 kr.
Þér á eftir að líka vel við ŠKODA Fabia. Glæsileg hönnunin nær niður í minnstu smáatriði og gerir aksturinn
skemmtilegri hvert sem þú ferð. Það er engin tilviljun að ŠKODA Fabia skyldi vera valinn bíll ársins af WhatCar?
og hljóta Red Dot hönnunarverðlaunin 2015. Komdu og prófaðu nýjan ŠKODA Fabia. Hlökkum til að sjá þig.
Fabia – nýi verðlaunagripurinn frá ŠKODA
Húsnæðismál Gerði Harðardóttur
var eindregið ráðlagt að leigja út
íbúð sína eða selja hana, jafnvel án
þess að taka fram að í henni hefði
verið heilsuspillandi myglusveppur.
Hún segir að reynsla hennar sýni vel
að myglusveppur og veikindi vegna
hans séu ekki tekin nógu alvarlega
og óskar eftir yfirvegaðri og málefna-
legri umræðu.
Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um
leigutaka sem lenda í vandræðum
vegna myglusvepps og leigusala sem
segja ekki frá sveppnum við útleigu.
Atvikin eru fjölmörg og segir Hólm-
steinn Brekkan, framkvæmdastjóri
Leigjendasamtakanna, um það bil
eitt símtal koma á dag vegna svepps,
raka og heilsufarsvandamála vegna
bágs ástands á leiguhúsnæði. „Var-
lega áætlað hafa um hundrað mál
komið upp frá áramótum og um einn
af hverjum tíu bregst við og stendur á
rétti sínum,“ segir Hólmsteinn.
Reynsla Gerðar sýnir málin frá hlið
leigusalans en hún þurfti að flytja út
úr íbúð sinni vegna alvarlegra veik-
inda af völdum myglusvepps.
Í kjölfar þess kom það Gerði á
óvart hve lítil þekking er á þessum
málum, en henni var ítrekað ráðlagt
að leigja íbúðina út, þótt ekki væri
búið að fastákveða framkvæmdir
við sameignina, hvað þá ljúka þeim,
en hún segir algjört grunnatriði
að koma í veg fyrir upptök raka og
myglu ef ekki eigi illa að fara.
„Jafnvel þótt það sé ekki sjálfgefið
að maður veikist í húsnæði með
myglusvepp þá gat ég ekki hugsað
mér að setja heilsu og innbú fólks í
hættu,“ segir Gerður en íbúðin fór
ekki í leigu fyrr en búið var að brjóta
úr veggjum, hreinsa og framkvæmdir
komnar langt á veg og hún var full-
vissuð um það af fagaðilum að það
væri óhætt.
Gerður segir mörgum hafa fund-
ist sjálfsagt að hún seldi eða leigði
íbúðina út, án þess að láta væntan-
lega íbúa vita um að þar hefðu komið
upp vandamál tengd raka og myglu.
„Það kom bara aldrei nokkurn tím-
ann til greina af minni hálfu að vera
ekki hreinskilin varðandi þetta við
mína leigjendur, ef eitthvað var þótti
ég ofursamviskusöm varðandi þetta
atriði. Ég lét setja sérstakt ákvæði
í leigusamninginn en þar segir: Ef
leigjendur finna fyrir heilsutengd-
um óþægindum í íbúðinni verður
aðeins um mánaðar uppsagnarfrest
að ræða.
Mér er sagt að þetta sé nær algjört
einsdæmi meðal leigusala en ég vil
benda á þennan möguleika. Ég held
að það hljóti að vera farsælast fyrir
alla að lokum. Maður vill að fast-
eignin sín sé í lagi, þetta er aleiga
manns,“ segir Gerður og bendir líka
á að leigusala beri að halda húsnæð-
inu í íbúðarhæfu ástandi samkvæmt
lögum. Ef leigusalar bregðast þeirri
skyldu geta þeir fengið á sig málsókn
og verið bótaskyldir.
erlabjorg@frettabladid.is
Ráðlagt að segja ekki frá myglusvepp
Að meðaltali hringir einn leigjandi á dag í Leigjendasamtökin vegna vandamála
með svepp og raka. Fréttablaðið/Andri Marínó
Ekki alltaf sveppir þegar til kastanna kemur
„Ég hef verið í bransanum í fjörutíu ár og þekki engin dæmi um
þetta skelfingarástand sem lýst hefur verið í blöðunum,“ segir
Sigurður Helgi Guðjónsson, framkvæmdastjóri Húseigendafé-
lagsins. „Þetta kemur upp í einu og einu húsi.“
Sigurður segir leiguviðskipti vera viðkvæm viðskipti og að
umfjöllun um þau einkennist af upphrópunum. Hann gerir þó
ekki lítið úr ábyrgð leigusalans ef sannanlega er myglusveppur
í húsnæði.
„Leigjandi á rétt á íbúðarhæfu húsnæði og ef það er heilsuspill-
andi á umsvifalaust að banna búsetu. En það hafa komið mörg sveppamál á okkar
borð og svo þegar við rannsökum það eru engir sveppir. Í mörgum tilfellum tel ég þetta
vera ótta í huga fólks sem magnast upp þar.“
Það kom bara aldrei
nokkurn tímann til
greina af minni
hálfu að vera
ekki hrein-
skilin varð-
andi þetta við
mína leigjend-
ur, ef eitthvað var
þótti ég ofursamviskusöm
varðandi þetta atriði.
Gerður Harðardóttir leigusali
Varlega áætlað hafa
um hundrað mál
komið upp frá
áramótum og
um einn af
hverjum tíu
bregst við og
stendur á rétti
sínum.
Hólmsteinn Brekkan
framkvæmdastjóri
Leigjendasamtakanna
Leigusala kom á óvart hve litla þekkingu hagsmunaaðilar fasteignaeigenda hafa á myglusvepp og var henni ráðlagt að leigja út íbúð án
þess að segja frá myglusveppum. Um hundrað leigjendur hafa kvartað til Leigjendasamtakanna vegna raka á þessu ári. Framkvæmda-
stjóri Húseigendafélagsins segir málið vera storm í vatnsglasi.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 5 m á n U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A ð i ð