Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 13

Fréttablaðið - 14.09.2015, Side 13
Með öflugu dreifikerfi Póstsins kemur þú þínum vörum hratt og örugglega hvert á land sem er. Hvort sem um ræðir stakar vörur eða bílfarma þá hefur Pósturinn lausnina. Eitt símtal og við erum að dansa. STÓRAR SENDINGAR VIÐ FÖRUM LÉTT MEÐ ÞAÐ www.postur.is Kjarasamningar framhaldsskólakenn- ara hafa orðið ýmsum að yrkisefni síðustu daga og þrátt fyrir rómaða geð- prýði get ég ekki lengur orða bundist. Helstu verkalýðsforkólfar landsins sem og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins virðast nefnilega vera þeirrar skoðunar að þessir samningar okkar hafi komið af stað skriðu sem nú ógnar efnahagslegum stöðugleika. Þannig eiga samningar okkar að hafa lagt línur fyrir gerðardóm og þar með launahækkanir BHM og hjúkrunar- fræðinga. Til upprifjunar þá skrifuðu fram- haldsskólakennarar undir kjarasamn- ing þann 4. apríl á síðasta ári sem fól í sér uppsafnaða 30% launahækkun á samningstímanum, út október 2016. Ég er reyndar almennt þeirrar skoð- unar að við sem stöndum í fylkingar- brjósti verkalýðsbaráttu í landinu (því öll erum við verkalýður sama hvaða prófgráður leynast í handraðanum) eigum að standa saman í stað þess að ráðast hvert gegn öðru, því ég kalla það ekkert annað en árásir þegar forystu- fólk annarra stéttarfélaga úttalar sig með þessum hætti um kjarasamninga annarra. Við fyrstu sýn má mögulega telja vel í lagt, þ.e. launahækkanir okkar fram- haldsskólakennara. En skoðum samn- ingsforsendur okkar og sérfræðinga á hinum almenna markaði nánar. Launaskrið lítið sem ekkert Í aðdraganda kjarasamninga vorið 2014 var unnið með gögn fá árinu 2012 og 2011. Á þeim tíma voru regluleg dagvinnulaun sérfræðinga á almennum markaði rúmum 72% hærri en framhaldsskólakennara. Já sjötíuogtvöprósent! Þrátt fyrir tæp- lega 16% uppsafnaða launahækkun á árinu 2014 munaði enn 58% á meðal- dagvinnulaunum þessara sömu hópa. Það er nefnilega þannig að nokkrir hópar opinberra starfsmanna, þar á meðal kennarar, semja jafnt um lág- marks- og hámarkslaun. Kjarasamn- ingar á almennum markaði, t.d. hjá VR og ASÍ, tryggja lágmarkslaun og sýna gögn að rétt um 5% félagsmanna VR eru á lágmarkstöxtum. Í kjarasamningum framhaldsskóla- kennara vorið 2014 var í fyrsta skipti viðurkennd sú staðreynd að launa- skrið meðal kennara er lítið sem ekki neitt. Aftur og aftur hafa þessar stéttir dregist aftur úr í launum og mátt heyja harða baráttu fyrir sínu, samt stöndum við nú sem fyrr langt að baki félögum okkar á almenna markaðinum þegar kemur að launa- kjörum. Ég vísa því algjörlega út í hafsauga að kennarar á öllum skólastigum beri einhverja ábyrgð á efnahagslegum óstöðugleika. Ég óska öðrum laun- þegum alls góðs, sem og forystufólki annarra vinnandi stétta, og vildi óska að okkur tækist að reka hvert um sig kjarabaráttu án þess að tala hvert annað niður. Eitt veit ég þó fyrir víst – framhaldsskólakennarar eru enn eftirbátar í launum í samanburði við launþega á almennum markaði svo það er óþarfi að sjá ofsjónum yfir prósentuhækkunum sem enn eru langt frá því að brúa leiðina frá okkur til þeirra. Hafa skal það sem sannara reynist Ég vísa því algjörlega út í hafsauga að kennarar á öllum skólastigum beri einhverja ábyrgð á efnahags- legum óstöðugleika. Guðríður Arnardóttir formaður Félags framhaldsskóla­ kennara Talað er um það í fréttaskýr-ingum að Jeremy Corbyn, nýr leiðtogi Verkamanna- flokksins, sé gamaldags, fulltrúi úreltra viðhorfa á borð við að útrýma fátækt, skapa jöfn tækifæri og hugsa um hagsmuni heildar- innar fremur en einstakra forrétt- indahópa. Hann hefur talað gegn hernaðarhyggju og árásum á fjarlæg lönd. Hann hefur talað um að hlut- verk stjórnmálanna sé að stuðla að gagnkvæmri virðingu, skilningi, jákvæðni – og réttlæti. Í fréttaskýringum er þetta látið hljóma eins og hann ætli að kalla Gúlagið yfir England. Frelsi, jafnrétti og bræðralag Réttlætið kann að vera gamaldags en það er líka nútildags: það fellur aldrei úr gildi. Sjálf hugmyndin um jafnrétti allra manna og jöfn tæki- færi í lífinu er hornsteinn þeirra samfélaga sem byggð hafa verið í Evrópu. Það er ekki jaðarskoðun. Hugmyndin um að ranglæti sé hag- kvæmara og þar með æskilegra en réttlæti er hins vegar öfgaskoðun, og ekki á að veita þeim stjórnmála- mönnum brautargengi sem slíkar hugmyndir aðhyllast. Corbyn stendur ekki fyrir úrelt sjónarmið þó að hann vilji (eins og flestallir samlandar hans) að járnbrautirnar verði aftur færðar í almannaeigu. Hann stendur fyrir klassísk sjónarmið. Hitt virðist augljóst, að sú þjóðfélagstilraun sem hófst fyrir alvöru í valdatíð Margrétar Thatcher í Englandi og Ronalds Reagan í Bandaríkjunum – og Davíðs Oddssonar hér hjá okkur – er runnin út í sandinn; græðgis- hyggjan með tilheyrandi áherslu á misskiptingu, óréttlæti, stórfyrir- tækjadekur, glundroða, sýndar- gróða og hirðuleysi um náttúru og önnur verðmæti hefur unnið ómældan skaða og er vonandi búin að syngja sitt síðasta sem ráðandi hugmyndafræði í þjóðfélaginu. Í Englandi háttar svo til að stétta- skipting er miklu rótgrónari en við erum svo lánsöm að hafa átt að venjast hér á landi. Þar er hún nánast innbyggð, óorðuð en liggur í loftinu og litar öll samskipti fólks á flestum sviðum þjóðlífsins, og eitrar alls staðar andrúmsloftið. Hér á landi var um hríð lagt mikið kapp á að búa til svipað andrúms- loft, þar sem sumt fólk reyndi að telja sig yfir aðra hafið vegna ríki- dæmis – en fram að þessu hefur verið hlegið að slíku fólki hér á landi, og verður vonandi enn um hríð. Reynt var að koma því inn hjá okkur að tiltekin borgarhverfi væru fínni en önnur, tilteknir skólar fínni en aðrir og tiltekin störf fínni en önnur. Slíkar hugmyndir stríða gegn sjálfri grundvallar-sjálfsmynd þjóðarinnar: að við sitjum hérna meira og minna öll saman í þessari súpu: að vera Íslendingar. Áhrifin hér á landi Hér á landi er áreiðanlega mikill hljómgrunnur fyrir þau sjónarmið sem Corbyn heldur á lofti. Gott ef þetta eru ekki almenn ríkjandi sjónarmið hér. Í Englandi rúmast þeir hins vegar í einum og sama flokknum Tony Blair og Jeremy Corbyn – enn að minnsta kosti. Hér á landi eru jafnaðarmenn ekki í rónni fyrr en þeir eru búnir að stofna nýjan flokk gegn „fjór- flokknum“, með þeim árangri að hægri menn hafa stjórnað Íslandi meira og minna alla okkar full- veldistíð; þegar vinstri flokkarnir komust loks til valda þurftu þeir að vísu að endurreisa efnahags- kerfið eftir mestu efnahagsófarir Íslandssögunnar, heimatilbúnar að mestu, en sökum þess að vinstri flokkunum tókst ekki, á fjórum árum að færa til betri vegar allt sem aflaga hafði farið á Íslandi öll full- veldisárin – með markvisst málþóf minnihlutans í gangi frá morgni til kvölds og um nætur – þá ákváðu kjósendur að leiða á ný til valda hægri flokkana og refsa vinstri flokkunum. Það væri sami rassinn undir þeim öllum, sem er eitt af þessum íslensku orðtökum sem ég hef aldrei almennilega skilið: hvaða rass? Einum rassi svipar vissulega til annars, en mér er ekki ljóst hvers vegna ég eigi að draga svo altækar ályktanir af því. Það eru einkum tvö mál sem valda því að SF og VG geta ekki átt von á fylgisaukningu alveg á næst- unni. Annað er Icesave, sem vinstri flokkarnir áttuðu sig aldrei á að snerist ekki nema í aðra röndina um peninga; hitt er stjórnarskráin sem er mál sem neitar að hverfa, enda hefði samþykkt nýrrar stjórnar skrár leitt til mikilla umbóta á að minnsta kosti kosningakerfi okkar; komið á raunverulegu lýðræði hér, þar sem atkvæði væru jafngild burtséð frá búsetu. Síðasta ríkisstjórn færðist of mikið í fang í stjórnarskrármálinu og hafði ekki afl til að leiða það til lykta; og hefði raunar ekki veitt af meiri stuðningi, til dæmis frá þeim sextíu og fjórum prósentum lands- manna sem sniðgengu kosningarnar til stjórnlagaþings, sem þar með hafði mjög veiklað umboð og var útsettara en ella fyrir árásum öflugra óvina. Þau þrjátíu og sex prósent landsmanna sem þó sýndu málinu áhuga eru hins vegar ekki reiðubúin að fyrir- gefa SF, VG og BF að hafa samið við minnihlutann um að setja stjórnar- skrármálið í nefnd, í stað þess að láta hægri menn um að drepa málið með málþófi. Við það situr. Sum sé Jeremy. Ensk stjórnmál hafa löngum haft furðu mikil áhrif hér á landi, sé haft í huga hversu ólíkt kerfið þeirra er okkar og raunar samfélagsgerðin öll. Mun sigur hans hrista upp í vinstriflokkunum okkar? Alveg áreiðanlega. Og mun ekki af veita. Gamaldags réttlæti Guðmundur Andri Thorsson Réttlætið kann að vera gamaldags en það er líka nútildags: það fellur aldrei úr gildi. Sjálf hugmyndin um jafnrétti allra manna og jöfn tækifæri í lífinu er horn- steinn þeirra samfélaga sem byggð hafa verið í Evrópu. Jeremy Corbyn er nýr leiðtogi Verka- mannaflokksins í Bretlandi. NordicPhotos/AFP s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13M Á n u D A G u R 1 4 . s e p T e M B e R 2 0 1 5

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.