Fréttablaðið - 14.09.2015, Blaðsíða 16
The King’s Singers
Tvöfaldir Grammy–verðlaunahafar
Hinn heimsþekkti breski sönghópur
Nánari upplýsingar í síma 528 5050, á harpa.is og tix.is
Br
an
de
nb
ur
g
www.harpa.is/tks
Eldborg
16. september kl. 20:00
Hvað gerði Gylfi?
Gylfi Þór Sigurðsson var að vanda
í byrjunarliði Swansea sem tapaði
sínum fyrsta leik á tímabilinu gegn
nýliðum Watford. Gylfi var tekinn af
velli á 71. mínútu.
Stærstu úrslitin Man.
Utd fór upp í 3.
sæti deildarinnar
með 3-1 sigri á
erkifjendunum í
Liverpool sem eru
dottnir niður í 9. sæti.
Hetjan Steven Naismith gleymir
laugardeginum ekki bráð en hann
gerði sér lítið fyrir og skoraði öll
þrjú mörk Everton í 3-1 sigri á Eng-
landsmeisturum Chelsea en Skotinn
kom inn á sem varamaður snemma
leiks.
Kom á óvart Það voru ekki margir
sem könnuðust við nafnið Kelechi
Iheanacho fyrir laugardaginn en þessi
18 ára nígeríski strákur skaust upp á
stjörnuhimininn þegar hann tryggði
Man City sigur á Crystal Palace með
marki á lokamínútunni, skömmu eftir
að hafa komið inn á sem varamaður.
Nýjast
Enska úrvalsdeildin
Everton 3 –1 Chelsea
Norwich 3 – 1 Bournemouth
Crystal Palace 0 – 1 Man City
Arsenal 2 –0 Stoke City
Watford 1 – 0 Swansea
Man Utd 3 –1 Liverpool
Sunderland 0 – 1 Tottenham
Leicester City 3 –2 Aston Villa
Efst
Man. City 15
Leicester 11
Man. Utd. 10
Arsenal 10
Crystal Pal. 9
Neðst
Bournemouth 4
Chelsea 4
Newcastle 2
Stoke 2
Sunderland 2
Handbolti Önnur umferð Olís-
deildar karla í handbolta hefst í kvöld
með þremur leikjum. ÍR fær Aftur-
eldingu í heimsókn, nýliðar Víkings
sækja Fram heim og í Hertz-höll-
inni á Seltjarnarnesi mætast Grótta
og FH. Þetta er fyrsti heimaleikur
Gróttu í efstu deild í 1.275 daga, eða
síðan Seltirningar töpuðu 23-26
fyrir Fram í Hertz-höllinni 12. mars
2012. Gróttan féll það ár eftir að hafa
aðeins fengið þrjú stig í 21 leik.
Grótta endaði í 4. sæti 1. deildar
2013 og 2014 en í fyrra héldu Sel-
tirningum engin bönd og þeir unnu
1. deildina með miklum yfirburðum.
Þeir leika því í deild þeirra bestu á
nýjan leik í vetur.
Grótta teflir fram svipuðu liði og í
fyrra en hefur þó fengið nokkra nýja
leikmenn til liðs við sig. Þeir eiga
það flestir sameiginlegt að hafa áður
spilað með Gróttu. Þeirra á meðal er
hornamaðurinn Finnur Ingi Stefáns-
son en hann sneri aftur á Nesið í
sumar eftir fimm ára dvöl hjá Val.
„Það er gaman að vera kominn
aftur,“ sagði Finnur í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Þetta eru nýjar
aðstæður fyrir mig en ég er búinn
að vera í annarri stöðu með Val
undanfarin ár. Þetta er öðru-
vísi áskorun.“
Gróttumenn fóru ekki vel
af stað í Olís-deildinni en
þeir töpuðu fyrsta leik sínum,
24-21, fyrir Aftureldingu á
fimmtudaginn. Finnur segir að
stress og spenna hafi hamlað
Seltirningum framan af leik.
„Við fundum það á móti Aftur-
eldingu að við eigum fullt erindi
í þessa deild, þótt úrslitin
hafi verið óhagstæð,“
sagði Finnur sem
var markahæstur
Gróttumanna í
leiknum gegn Mos-
fellingum með sex
mörk.
„Við byrjuðum
ekki vel, og það
má kannski skrifa
það á reynsluleysi, en eftir þessa erf-
iðu byrjun vorum við á pari við þá.
Það var stress og spenna í hópnum
og við þurftum smá tíma til að hrista
það af okkur.“
Það er stutt á milli feigs og ófeigs
í Olís-deildinni en tvö neðstu liðin
falla á meðan hin átta fara öll í
úrslitakeppnina. Finnur segir að
markmiðið sé að sjálfsögðu að vera
í hópi átta efstu liða þegar deildar-
keppninni lýkur í lok mars.
„Það er ljóst mál að við ætlum í
úrslitakeppnina,“ sagði Finnur og
bætti við: „Við rennum svolítið blint
í sjóinn og það er erfitt að gera sér
grein fyrir því hvar við stöndum. En
ég held að deildin verði jafnari í vetur
en hún hefur oft verið,“ sagði Finnur
sem hefur leikið einn A-landsleik
fyrir Íslands hönd.
Hann segir mikla stemningu fyrir
handboltanum á Seltjarnarnesi en
síðasta ár var án nokkurs vafa það
besta í sögu Gróttu; kvennaliðið varð
deildar-, bikar- og Íslandsmeistari í
fyrsta sinn og karlaliðið vann sér
aftur sæti í deild þeirra bestu eftir
þriggja ára fjarveru.
„Það er gríðarlegur
á h ug i f y r i r h a n d -
boltanum úti á Nesi
eftir árangur beggja
liða í fyrra og von-
andi getum við nýtt
okkur þennan með-
byr,“ sagði Finnur
Ingi Stefánsson að
lokum. – iþs
Við eigum fullt erindi í
þessa deild
Fótbolti Það voru margir sem ráku
upp stór augu þegar Manchester
United greiddi Monaco 36 milljónir
punda fyrir franska unglinginn Ant-
hony Martial á lokadegi félagaskipta-
gluggans. Hinn 19 ára Martial var
ekki þekktasta nafnið í bransanum
og hafði aðeins skorað 11 mörk í
52 deildarleikjum í Frakklandi. Við
fyrstu sýn virtist hann því ekki vera
augljósa svarið við vandamálum
United í sóknarleiknum.
Í dag er nafn Anthony Martial hins
vegar á allra vörum eftir að þessi
dýrasti unglingur í fótboltasögunni
skoraði þriðja mark United í 3-1 sigri
á erkifjendunum í Liverpool á Old
Trafford á laugardaginn.
Fyrri hálfleikurinn í leik þessara
fornu fjenda var afar tíðindalítill
svo ekki sé fastar að orði kveðið.
United var þó sterkari aðilinn og hélt
boltanum vel, án þess þó að skapa sér
opin færi. David de Gea, sem skrifaði
óvænt undir nýjan fjögurra ára
samning við United á föstudaginn,
kom inn í byrjunarliðið og hann
hafði það afskaplega náðugt í fyrri
hálfleiknum.
Það lifnaði yfir leiknum í seinni
hálfleik og hann var aðeins fjögurra
mínútna gamall þegar Daley Blind
kom heimamönnum yfir með góðu
skoti eftir vel útfærða aukaspyrnu.
Martial kom inn á sem varamaður
fyrir Juan Mata á 65. mínútu og fimm
mínútum síðar tvöfaldaði Ander
Herrera forystu heimamanna með
marki úr vítaspyrnu sem hann fiskaði
sjálfur. Sigurinn virtist vera kominn í
höfn en Christian Benteke var ekki á
sama máli og Belginn hleypti spennu
í leikinn þegar hann skoraði með
stórkostlegri klippu á 84. mínútu.
En þá var röðin komin að Martial.
Frakkinn hafði lítið sést eftir að hann
kom inn á en á 86. mínútu kviknaði
á honum. Martial fékk þá boltann
frá Ashley Young vinstra megin á
vallarhelmingi Liverpool og réðist til
atlögu á vörn gestanna. Frakkinn fór
inn á völlinn, lék svo skemmtilega
á Martin Skrtel og kláraði færið af
mikilli yfirvegun framhjá Simon
Mignolet í marki gestanna.
Og þetta gerði hann fyrir
framan hörðustu stuðn-
ingsmenn United í Stret-
ford End-stúkunni sem
fögnuðu sínum manni vel
og innilega.
„Hann hefur staðið sig vel á
æfingum og þess vegna valdi ég
hann í hópinn,“ sagði Louis van Gaal,
knattspyrnustjóri United, eftir leik-
inn á laugardaginn en þetta var þriðji
sigur hans á Liverpool í jafn mörgum
leikjum sem stjóri United. „Þegar þú
skorar svona mark, þá er ekki hægt
að biðja um mikið meira.“
Tilþrifin og afgreiðslan minntu um
margt á annan Frakka sem spilaði í
ensku úrvalsdeildinni, sjálfan Thierry
Henry sem skoraði nokkur svona
mörk á sínum tíma. Það er auðvitað
alltof snemmt að setja hann í sama
flokk og snillinginn Henry og það er
ekkert öruggt í þessum efnum. Marti-
al á langt í land og svo gæti farið að
hann reyndist vera næsti David Bel-
lion en ekki næsti Henry sem lék
einnig með Monaco á sínum tíma.
En byrjunin lofar allavega góðu og
Martial virðist koma með nýja vídd
inn í sóknarleik United sem
hafði ekki verið góður fram
að leiknum um helgina.
Hvað sem síðan
gerist, þá
mun
Martial sennilega aldrei gleyma
frumraun sinni í rauða búningnum.
ingvithor@365.is
Er hinn nýi Henry fundinn?
Hinn 19 ára Anthony Martial, dýrasti unglingur fótboltasögunnar, stimplaði sig inn með látum í sínum
fyrsta leik fyrir Manchester United. Og það gegn erkifjendunum í Liverpool sem hafa tapað tveimur í röð.
1 4 . S E p t E m b E r 2 0 1 5 m Á n U d a G U r16 S p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð