Fréttablaðið - 14.09.2015, Síða 57
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Berglindar
Pétursdóttur
Bakþankar
Rekkjan ehf ≤≥ Ármúla 44 ≥≥ 108 Reykjavík ≥≥ 588 1955 ≥≥ www.rekkjan.iS ≥≥ Opið virka d. 10–18 og lau 11–16 H E I L S U R Ú M
A
R
G
H
!!!
1
40
91
5
#6
KING KOIL
FONDNESS
Queen Size rúm
(153x203 cm)
FULLT VERÐ 211
.774 kr.
ÚTSÖLUVERÐ
99.533 kr.
= 53% AFSLÁT
TUR!
LAGER-
HREINSUN!
Sýningar- og
skiptirúm eða
dýnur á allt að
70% afslætti!
ROYAL
heilsukoddar
Sængurfatnaður
með allt að
50% afslætti
AFSLÁTTUR
53%
AFSLÁTTUR
30%
LÝKUR LAUGARDAGINN
19. SEPT.
ÚTSALAN
ÚTSÖLULOK ATH!
Einelti
er ógeð
Leggðu þitt af mörkum!
Opið allan sólarhringinn
í Engihjalla,
Vesturbergi og
Arnarbakka
Ég var að rúnta á smájeppanum á föstudaginn með fullan bíl af kanilsnúðum og hressan leik-
skóladreng í aftursætinu. Fössari í
fólki og við á leiðinni heim að njóta
helgarinnar. Í allri gleðinni misfórst
að líta til hægri og vinstri og allt í
einu var bíllinn stopp í árekstri á
miðjum gatnamótum.
Maðurinn sem steig út úr hinum
bílnum reyndist auðvitað vera hinn
viðkunnanlegasti náungi, bað mig að
hafa sig afsakaðan meðan hann léti
konuna sína vita að honum myndi
seinka örlítið. Úff, gat nú skeð, klessti
bílinn hjá besta gæjanum í bænum.
Eftir að hafa komið frúnni í ró sneri
hann sér að mér og byrjaði að fylla út
plagg. Ég var svo hissa á að hann væri
ekki að skamma mig. Ég sá á skýrsl-
unni að hann var 15 árum eldri en ég,
fæddur sama ár og stóri bróðir minn,
sem myndi heldur ekki skamma mig
ef ég myndi keyra á hann. Mögulega
átti þessi líka klaufska systur.
Ég þurfti að hafa mig alla við til að
fara ekki að skæla framan í vinalegan
þolanda þessa aulalega áreksturs
(sem var nota bene hundrað prósent
mér að kenna) svo ég kyngdi hverjum
kökknum á fætur öðrum og fyllti út
tjónaskýrslu með lélegum penna og
spjallaði um að enginn gengi lengur
með penna á sér. Ég byrgði inni til-
finningar mínar í dágóða stund.
Korteri seinna, þegar ég var komin
heim í forstofu brast stíflan og ég
byrjaði að sprengigráta framan í
kærastann minn. Hann klæddi sig í
regnföt og huggaði mig, laug því að
mér að ég væri frábær ökumaður og
svona gæti hent hvern sem er.
Nú neyðist ég til að taka það úr
ferilskránni minni að ég sé tjónlaus
ökumaður. Ég er tjónuð týpa en
hlakka til að borga fyrir glænýjan
stuðara fyrir indæla ökumanninn
sem tók þessu með svona miklu
jafnaðargeði. Ég væri örugglega enn
grátandi ef hann hefði öskrað á mig.
Takk Trausti.
Tómt tjón