Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 8
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 8 Oddvitar ríkisstjórnarinnar eru ósammála um hvort unnið sé að afnámi verðtryggingar eða ekki. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sagði við Frétta- blaðið á þriðjudag að unnið væri að frumvörpum um afnám verðtrygg- ingar í fjármálaráðuneytinu og von væri á þeim fljótlega. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra sagði hins vegar í Frétta- blaðinu í gær að ekki stæði til að afnema verðtrygginguna, heldur að auka vægi óverðtryggðra lána. Til skoðunar væri að lengja lág- markstíma verðtryggðra lána úr fimm í tíu ár og þrengja að 40 ára verðtryggðum jafngreiðslulánum og fara með þau niður í 25 ár. Nú má vel vera að af stað fari umræða um að frumvörp Bjarna feli aðeins í sér fyrstu skrefin, enn standi til að afnema verðtrygg- inguna. Fjármálaráðherra var hins vegar býsna skýr um að ekki væri unnið að því. Spurningu um hvort þetta væri þá ekki afnám verð- tryggingar svaraði hann neitandi. Fjármunur, ekki bita Og fjármálaráðherra fór nánar út í þá vinnu sem er í gangi og að ekki væri verið að afnema verðtrygg- ingu. Þú getur varla bannað verð- tryggð lán? „Nei. Í hvorugu tilvik- inu erum við að ræða um það.“ Þetta rímar illa við eftirfarandi orðaskipti sem áttu sér stað á milli blaðamanns og forsætisráðherra á mánudag. Þið töluðuð um afnám verðtrygg- ingarinnar fyrir síðustu kosning- ar og áréttuðuð það á flokksfundi ykkar síðast, er það ekki? „Jú.“ Hvernig hagar þeirri vinnu? „Hún gengur eftir því sem ég kemst næst mjög vel. Það liggur fyrir formleg samþykkt í ríkisstjórn um næstu skref og nú er verið að vinna frum- vörp í fjármálaráðuneytinu í sam- ræmi við það.“ Veistu hvenær er von á þeim? „Ég treysti mér nú ekki til að fullyrða um það, en ég vona að við sjáum þau áður en langt um líður.“ Á þessu þingi? „Það væri auðvitað langbest, en ég veit ekki nákvæm- lega hve mikið menn eiga eftir þar.“ Það er ljóst að hér er ekki aðeins blæbrigðamunur á ferð, ekki deilt um skref í átt að lokatakmarki, heldur beinlínis um hvort eigi að afnema verðtryggingu. Það er því ekki þannig að það sé bitamunur en ekki fjár á afstöðu forsætis- og fjár- málaráðherra, heldur einmitt and- staða þess, fjármunur en ekki bita, ef svo má að orði komast. Allir fá eitthvað Framsóknarflokkurinn lagði áherslu á það fyrir kosningar að afnema verðtryggingar á neyslulán. Miðað við orð fjármálaráðherra þá verður óheimilt að verðtryggja lán sem tekin eru til skemmri tíma en tíu ára. En Framsókn vildi meira, eins og fram kom í viðtali við Fréttablaðið 9. mars 2013. „Framsóknarflokkurinn vill stofna nefnd sérfræðinga sem leiti leiða til að afnema verðtrygg- inguna. Sigmundur Davíð segir í sjálfu sér ekki flókið að afnema hana. Nefndin verði að skoða heildar myndina því verðtryggingin haldist í hendur við margt annað,“ sagði í því viðtali. Viku síðar, 16. mars 2013, var Bjarni Benediktsson í viðtali við Fréttablaðið. Þar sagði: „Sjálfstæð- isflokkurinn vill gera atlögu að almennri notkun verðtryggingar í landinu og tryggja það að fólk hafi val um verðtryggð eða óverðtryggð lán. Bjarni segir það vera hlutverk stjórnvalda að endurskoða húsnæð- islánamarkaðinn með það að mark- miði að tryggja óverðtryggð lán sem valkost.“ Svo má velta fyrir sér hvort raun- in verði að báðir flokkar nái sínu fram að hluta; verðtrygging verði óheimil á neyslulán en áfram við líði á lengri lán. Oddvitar ósamstíga um afnámið Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir unnið að afnámi verðtryggingar. Bjarni Benediktsson segir að ekki standi til að afnema verðtrygg- ingu. Oddvitarnir eru ósamstíga í þessu risastóra máli sem hefur áhrif á fjárhagsstöðu langflestra. Báðir hafa þó náð einhverju fram. 16. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 42 Bjarni Benediktsson varð formaður Sjálf-stæðisflokksins í mars 2009. Óhætt er að segja að hann hafi tekið við flokknum á erfiðum tímum og í kosningunum skömmu síðar fékk Sjálfstæðisflokkurinn minnsta fylgi í sögu sinni. Það hefur síðan sveiflast upp og niður en verið á niðurleið undanfarið. Sú niðursveifla hófst þegar Icesave- dómurinn féll og, öfugt við það sem yfirleitt gerist, jókst hún við lands- fund flokksins sem haldinn var í febrúar. Bjarni segir að flokkurinn sé ósáttur við fylgi sitt í könnunum og ætli sér að sækja fram að nýju. „Sjálfstæðisflokkurinn er einn flokka að tala fyrir raunhæfum leiðum til að lækka skatta og efla atvinnulífið í landinu en allt stendur og fellur með því þegar uppi er stað- ið. Bæði staða ríkissjóðs og staða heimilanna er algjörlega undir því komin að atvinnulífið taki við sér en sé ekki í þeim dróma sem verið hefur.“ Skattaafsláttur Bjarni segir mikilvægast fyrir heimilin að lækka skatta og skuldir. Horfa verði á greiðslugetu heimil- anna. „Það eru um 25 þúsund heimili sem á skömmum tíma voru komin með neikvæða eiginfjárstöðu. Það gerir yfir 50 þúsund framteljend- ur. Á þessu verður að taka, annars verður allt annað sem þarf að fást við miklu erfiðara. Við ætlum að gefa fólki sem greið- ir af húsnæðislánum sínum skatta- afslátt. Hann mun vara í fjögur til fimm ár og þegar horft er á dæmi- gert lán munu þessar aðgerðir gera það að verkum að höfuðstóll láns- ins verður 20 prósentum lægri en ella. Þetta gerist annars vegar með tekjuskattsafslættinum, sem fæst á móti afborgunum á lánum, og hins vegar því að við ætlum að veita fólki valkost um að taka greiðslur sem færu ella til séreignarsparnaðar og beina þeim beint inn á húsnæðis- lánin sín. Þetta tvennt, saman með tekju- skattslækkun og endurskoðun þessa þriggja þrepa skattkerfis, mun bæði auka ráðstöfunartekjur og bæta skuldastöðu heimilanna. Það er líka eitt stærsta hagsmuna- mál heimilanna að í landinu sé öfl- ugt atvinnulíf sem tryggi fólki störf og bæti lífskjör.“ 14 til 16 milljarðar Hafið þið reiknað út hvað þetta þýðir í minni tekjum fyrir ríkissjóð? „Já. Við teljum að þessar aðgerð- ir muni kosta ríkissjóð um 14-16 milljarða á ári, í þessi fjögur til fimm ár. Það er brúttókostnaður. Nettókostnaðurinn er lægri. Þetta er raunhæft en ekki byggt á ein- hverju stórkostlegu ofmati á getu ríkissjóðs til að standa undir hundr- aða milljarða loforðum sem sumir flokkar hafa gefið fyrir þessar kosningar. Í frétt RÚV í vikunni voru hugmyndir flokkanna bornar saman og þar kom fram að aðrir eru að lofa aðgerðum sem kosta á bilinu 240-400 milljarða. Þetta eru 10-15 Hörpur eða rekstrar kostnaður Landspítalans í um það bil tíu ár. Á sama tíma er kirkjan að safna fyrir lækningatækjum fyrir sjúkrahúsin og lögreglan er fjársvelt. Þetta er því ávísun á stórkostlega viðbótar- skuldsetningu ríkissjóðs, verðbólgu og lífskjararýrnun Íslendinga um ókomna tíð. Hvað aðgerðirnar okkar varðar hafa þær ekki sömu áhrifin á tekjur ríkissjóðs til skamms tíma vegna þess að séreignarsparnaðurinn hefði aldrei komið til tekna hjá rík- issjóði fyrr en hann hefði verið tek- inn út. Okkar hugmynd er að hann verði varanlega skattlaus og að því leyti má segja að hann hafi engin áhrif á tekjur ríkissjóðs til skamms tíma, en tekjuskattsafslátturinn vegna afborgana veldur einhverri tekjulækkun hjá ríkissjóði. Á móti munu ráðstöfunartekjur heimilanna smám saman vaxa og þau geta orðið virkari þátttakendur í efnahagslífinu og þannig gerum við ráð fyrir að nettókostnaðurinn verði lægri. En það liggur í hlutar- ins eðli að við getum ekki gert eitt- hvað sem um munar sem kostar ekki neitt. Þetta er ábyrg og raun- hæf leið. Hvað áhrif á ríkissjóð varðar er þessu dreift á nokkur ár og þetta er almenn aðgerð sem nýtist öllum sem eru að greiða af húsnæðislánum. Hún hvetur til þess að fólk standi í skilum, hún styður fólk í þeirri við- leitni sinni að halda eignum sínum. Þannig styður hún við séreigna- stefnuna sem við höfum alltaf stutt og hún er, hvað tekjuskatts afsláttinn snertir, alveg hlutlaus gagnvart tekjuhópunum. Það skiptir ekki máli hvað þú ert með í tekjur, þú munt fá sama afsláttinn af tekjuskattinum.“ Hvetja til sparnaðar Sjálfstæðisflokkurinn vill gera atlögu að almennri notkun verð- tryggingar í landinu og tryggja það að fólk hafi val um verðtryggð eða óverðtryggð lán. Bjarni segir það vera hlutverk stjórnvalda að endur- skoða húsnæðislánamarkaðinn með það að markmiði að tryggja óverð- tryggð lán sem valkost. Hann segist vilja vinna áfram með hugmyndir ASÍ um breytta fjármögnun húsnæðislánakerfisins. Útgangspunkturinn sé að fyrst og fremst verði um óverðtryggð lán að ræða og verkefnið að tryggja fasta vexti til lengri tíma. „Að auki viljum við beita skatta- legum hvötum til að gera ungu fólki, sem er að fara í fyrstu fasteigna- kaup, kleift að eignast höfuðstól. Þetta er mikilvæg kerfis- og hugar- farsbreyting, þannig að það verði ekki meginreglan að fólk skuldsetji sig mikið við kaup á fyrstu íbúð og fái svo vaxtabætur frá ríkinu eins og verið hefur. Það skiptir öllu að tefla fram hug- myndum sem ganga upp því ella fáum við aðgerðirnar í bakið með hærri verðbólgu og vöxtum. Það má því segja að ekkert af þessu takist, þegar upp er staðið, það er að segja, að ná raunverulegum kjarabótum nema við náum stöðugleika, lækkum verðbólguna og sköpum fleiri störf.“ En er hægt að tryggja þann stöðug leika sem með þarf með íslenskri krónu? „Já. Ég tel að það sé hægt. Það hefur verið og verður áfram eitt erfið asta verkefni stjórnvalda á hverjum tíma að tryggja stöðug- leika. Ég hef lengi talað fyrir því að það þurfi, og ræddi um það í eldhúsdags umræðunum, að strax eftir kosningar yrði að ná nýrri þjóðarsátt. Það þarf að gera nýjan stöðug leika- og vaxtasáttmála í landinu. Ég hugsa í því sambandi til þjóðar sáttarinnar frá 1990 og þess hve miklu hún skipti fyrir heimilin og atvinnulífið. Stöðugleikasáttmáli, þar sem menn tryggja að kjarabætur haldist í hendur við aukna verðmætasköp- un, aukna framlegð og framleiðslu, er ein grunnforsenda þess að okkur takist að ná tökum á ástandinu. Ein helsta forsenda þess að það takist er að fyrir liggi trúverðug áætlun stjórnvalda til næstu ára.“ Skattar verða lækkaðir Hvað atvinnulífið varðar segir Bjarni að þrennt hafi staðið því fyrir þrifum í tíð núverandi ríkisstjórnar. „Í fyrsta lagi pólitísk óvissa um hvert skuli stefna. Í því samhengi nægir að benda á sjávarútveginn og orkunýtingarmál. Það verður að tryggja atvinnulífinu í landinu starfsöryggi og vissu um lagalegt og rekstrarlegt umhverfi sitt. Í öðru lagi eru skattahækkanir. Mun hærra hlutfall aðhalds aðgerða ríkisstjórnarinnar kom í gegnum auknar skatttekjur en lofað var í stöðugleikasáttmálanum. Okkar stefna verður að lækka skatta að nýju og einfalda skattkerfið. Fremst á forgangslistanum er trygginga- gjaldið sem er enn allt of hátt. Í þriðja lagi eru það höftin. Þau verða einfaldlega að fara, enda kæfa þau bæði atvinnulífið og heimilin í landinu. Tekjutap sem vinnst upp Bjarni segist ósammála því að það að lækka skatta þýði tekjutap fyrir ríkið. Fjölmörg dæmi séu frá undan- förnum áratugum þar sem skattar hafi verið lækkaðir en tekjur ríkis- ins á sama tíma aukist vegna frek- ari umsvifa. Nægi þar að horfa á tekjuskattslækkanir á fyrirtæki úr 50 prósentum í 15 prósent á meðan tekjur ríkisins jukust. En geturðu lofað kjósendum því að skattalækkun þýði ekki minni tekjur? „Já, þegar upp er staðið er það alveg skýrt. Tekjutap ríkissjóðs getur hins vegar verið óhjákvæmi- legt í skamman tíma en afrakstur- inn af skattalækkunum mun koma í ljós þegar umsvifin aukast.“ Í hve skamman tíma og hve mikið? „Reynsla annarra þjóða er að á einu til þremur árum er hægt að snúa hagkerfinu við með markviss- um aðgerðum. Tekjutap í eitt til tvö ár getur ekki komið í veg fyrir að menn grípi til aðgerða sem eru skynsamlegar og borga sig marg- falt til baka til samfélagsins með meiri fjárfestingum og fjölgun starfa,“ segir Bjarni. Hann segir sem dæmi að lægra og sann- gjarnara veiðigjald muni auka fjár- festingu í greininni og útflutnings- tekjur þar með. „Það verður líka flókið mál, og ekki einnar nætur verk, að einfalda virðisaukaskattkerfið. Við viljum lægra almennt þrep þar, en í dag eru þau þrjú með tilheyrandi flækju- stigi. Þetta er ekki verkefni sem við getum leyst á fyrstu mánuðum eftir kosningar, en það er hins vegar hægt að gera það varðandi trygg- ingagjaldið. Að auki þarf að endur- skoða vöru- og aðflutningsgjöldin.“ En hafið þið reiknað það nákvæm- lega út hvað þetta kostar? „Já, en við einblínum ekki síður á hverju þetta skilar. Það er aðal- atriðið að við þurfum að hefja nýtt vaxtar- skeið. Skammtíma- tekjutap upp á 10-20 milljarða af skattalækkunum á atvinnulífið mun skila sér margfalt til baka. Að sjálf- sögðu munum við loks raða þessum skattalækkunarað- gerðum þannig að það eigi saman við stöðuna í hagkerfinu á hverjum tíma og við munum ekki gefa eftir það stóra markmið okkar að loka fjárlaga- gatinu. Ég vil setja mun strangari reglur um fjármál ríkis- i n s e n fylgt hefur verið hing- að til.“ Munum lækka skatta og skuldir Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur minnkað undanfarið og landsfundur flokksins breytti engu þar um. Fréttablaðið settist með Bjarna Benediktssyni formanni og fór yfir helstu stefnumálin í kosningabaráttunni, stöðu heimilanna, skatta og atvinnumál. Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is 2013 Bjarni segir að setja verði fram raunhæfa áætlun til að afnema gjaldeyrishöftin. „Höftin eru þarna vegna þess að við getum ekki leyft eignum í eigu erlendu kröfuhafanna að fara út á hinu opinbera skráða gengi. Það verður að ganga mjög ákveðið til verks núna og setja reglur sem miða að því að afskrifa stóran hluta af þessum kröfum og gera í framhaldi af því upp við kröfuhafana, án þess að gengi krónunnar verði sett í algjört uppnám. Ef hugmyndir um nýjar reglur leysa ekki vandann, þá er ekkert annað að gera en að taka þessi fjármála- fyrirtæki sem eru í slitameðferð og setja í þrotameðferð. Þá verða bankarnir að gjaldþrota félögum og ég get séð fyrir mér að þá verði þetta ekki leyst með skilyrðum seðlabankans um útgreiðslu gjald- eyris, heldur einfald- lega með mjög háum skatti á greiðslu fjár út úr landinu.“ ➜ Afnemum höftin 18,8% ➜ Fylgi Sjálfstæðisflokksins í formannstíð Bjarna 60% 50% 40% 30% 20% 25 .3. 20 09 7.4 .20 09 14 .4. 20 09 20 -22 .4. 20 09 28 .7. 20 09 15 .10 .20 09 7.1 .20 10 18 .3. 20 10 23 .9. 20 10 19 .1. 20 11 24 .2. 20 11 5-6 .4. 20 11 8.9 .20 11 7-8 .12 .20 11 8-9 .2. 20 12 11 -12 .4. 20 12 23 -24 .5. 20 12 16 -17 .1. 20 13 27 -28 .2. 20 13 30 -31 .1. 20 13 13 -14 .3. 20 13 Ko sni ng ar 25 .4. 20 09 treysta Bjarna Benedikts- syni best til að leiða ríkis- stjórn að loknum kosn ing- um, samkvæmt könnun Fréttablaðsins sem gerð var í lok febrúar. 29,1% 40,3% 27,3% 43,4% 23,7% 44,0% 43,7% 34,7% 24,8% 35,6% 41,2% 42,6% 30,4% 50,3% 31,1% 27,6% TÆKIFÆRI Bjarni Benediktsson segir tækifæri felast í óvissufylgi. Raunhæfar tillögur Sjálfstæðisflokksins muni laða fleiri kjósendur að honum. ÞRJÚ MÁL SEM EKKI VERÐUR HVIKAÐ FRÁ ÞEG- AR KEMUR AÐ RÍKISSTJÓRNAR- SAMSTARFI.Skattalækkanir „Skattar verða lækkaðir og einfaldaðir. Það verður einfaldlega að gera það.“ 1 Tekið á hallarekstri „Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki taka þátt í ríkisstjórnarsamstarfi sem byggir á áfram- haldandi stórkost- legum hallarekstri ríkissjóðs.“ 3 Skuldastaða heimilanna „Það verður ekki gefið eftir að taka á skulda- stöðu heimilanna og greiðsluvanda þeirra.“ 2 21,9% 49,6% 35,0% 17.11.2011 Landsfundur 27.1.2013 Icesave- dómur fellur 21.02.2013 Landsfundur 32,0% 40,7% 29,0% FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 9. mars 2013 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32 28% Framsóknarflokkurinn er á mikilli siglingu þessa dagana og mælist hátt í skoðanakönnunum. Þetta eru aðrar kosningarnar sem Sigmundur Davíð Gunnlaugsson leiðir flokk-inn í gegnum. Hann varð formað- ur 18. janúar 2009, þegar mikil endurnýjun varð í forystu flokksins. Óhætt er að segja að hann hafi átt glæsta innkomu í stjórnmálin. Þeir eru ekki margir sem hafa orðið formenn eftir jafn stuttan starfsferil í flokki. Flokksþing Framsóknarflokksins fór fram í febrúar og þar voru línurnar lagðar fyrir kosningabaráttuna. Tvö mál ber þar hæst; skuldaleiðréttingu og afnám verðtrygging- ar. Fréttablaðið sett- ist niður með Sigmundi og fræddist um stefnuna í þessum stærstu málum. 240 milljarðar afskrifaðir Sigmundur Davíð segir að flokkurinn hafi frá minnihlutastjórninni í febrúar 2009 lagt mikla áherslu á leiðréttingu skulda og rætt um 20 prósent í því samhengi. Því miður hafi tækifærin til þess ekki verið nýtt og aðstæður nú séu flóknari og málin erfiðari í útfærslu. En hvað mun þetta kosta? „Málið er orðið mun flóknara núna og nauðsynlegt er að meta hvert og eitt tilvik fyrir sig. Það þarf þó að gera eftir algildum eða almennum reglum og við teljum mikil- vægt að allir sitji við sama borð. Augljóslega mun þó þurfa að huga að því hvenær lán var tekið. Það er ekki hægt að ráðast í jafn mikla leiðréttingu láns sem tekið var í síðasta mán- uði og á því sem tekið var 2006. Við teljum óhjákvæmilegt að ráðast í þess- ar aðgerðir því eins og staðan er núna er nán- ast heil kynslóð á Íslandi eignalaus og með neikvætt eigið fé. Það er mjög hættu- legt ástand fyrir samfélag, bæði félagslega og efnahagslega, því þessar kynslóðir eru þær sem viðhalda þurfa vextinum. Því segjum við að það sé á endanum dýrara að bregðast ekki við vandanum heldur en að gera það. Það er nokkuð á reiki um hvaða tölur er að ræða en verðtryggð fasteigna- lán eru í kringum 1.200 millj- arða króna. Ef við notum 20 prósentin sem viðmið, þó að það sé ekki endilega niðurneglt, erum við að tala um 240 millj- arða króna. Það er hins vegar ekki þar með sagt að þessir 240 milljarðar séu eitthvað sem komi til greiðslu í einu lagi. Ávinn- ingurinn af leiðréttingu skulda getur farið að skila sér áður en kostnaðurinn fellur allur til,“ segir Sigmundur og ítrekar að sá kostnaður eigi að lenda á þeim sem hafi hagnast á hruninu. Einhver kostnaður Framsóknarflokkurinn leggur til að á meðal leiða sem farnar verði sé að veita þeim sem greiði af fasteigna- lánum afslátt af tekjuskatti. En geturðu upplýst kjósendur um hvað þessar leiðir muni þýða fyrir ríkissjóð í minnkandi tekjum eða útgjöldum? „Ég get sagt að þetta kunni að þýða að ein- hver langtímakostnaður lendi á ríkissjóði, þó ekki væri nema vegna flækjustigsins sem komið er í þetta. Sá langtímakostnaður verð- ur hins vegar, áður en hann fellur til, veginn upp af efnahagslegum ávinningi.“ Samningsvilji kröfuhafa Sigmundur Davíð segir að til að hægt sé að fara í þessa skuldaleiðréttingu þurfi að semja við kröfuhafa föllnu bankanna. Lík- lega séu um 90 prósent krafnanna í eigu vog- unarsjóða sem keypt hafi kröfurnar af upp- haflegum lánveitnedum. „Þeir sem keyptu kröfur tiltölulega snemma, eins og við reyndar töldum að ríkið ætti að gera, hafa hagnast verulega á þeim. Þá spyrja menn: Er það ekki bara þeirra hagnaður, er nokkur flötur á að skipta honum með þeim sem töpuðu á hruninu? Jú, það er í fyrsta lagi réttlætanlegt og í öðru lagi framkvæmanlegt. Þeir sem keyptu kröfur bankanna á hrakvirði vissu að hverju þeir gengu. Þeir sérhæfa sig í svona við- skiptum og vissu að þeir keyptu kröfur á gjaldþrota fyrirtæki í landi sem um tíma hafði verið verið kallað gjaldþrota, og í gjaldeyrishöftum. Þau meinuðu þeim að ná fjárfestingunni til baka án þess að ein- hverjar breytingar yrðu á fyrirkomulaginu.“ Lausn Framsóknarflokksins á þessu er að gefa kröfuhöfum kost á að taka þátt í því að byggja upp íslenskt samfélag og eiga þá hlutdeild í aukinni verðmætasköpun. Að öðrum kosti geti þeir staðið frammi fyrir íþyngjandi aðgerðum, sem þó séu réttlætan- legar. „Í slíkum viðræðum þurfa menn bæði að hafa gulrót og kylfu. Það þarf að skapa hvata en menn þurfa líka að standa frammi fyrir því að ef þeir séu ekki tilbúnir til að spila með verði það þeim ekki til hagsbóta. Eins og lögin eru núna í stakk búin á að greiða úr þrotabúum íslenskra fyrirtækja í íslenskum krónum. Seðlabankinn gæti því í raun inn- kallað gjaldeyrinn, í krafti gjaldeyrishaft- anna, og greitt út í íslenskum krónum sem menn sætu þá fastir með hér.“ Þessi stefna gerir ráð fyrir samningsvilja kröfuhafanna? „Hún byggir annaðhvort á vilja þeirra eða því að ríkið nýti sér fullveldisrétt sinn, til dæmis með því að greiða út í íslenskum krónum eða sérstakri skattlagningu.“ En óttist þið ekki að það muni hafa áhrif á framtíðarkröfuhafa Íslands? Ríkissjóður mun þurfa að fjármagna sig í framtíðinni. „Ég held að menn þurfi ekki að hafa mikl- ar áhyggjur af því. Menn gera sér grein fyrir því að í þeim aðstæðum sem Ísland er í núna þarf að beita óhefðbundnum leiðum. Ísland sker sig ekki lengur úr og við höfum fordæmi frá fjölmörgum Evr- ópuríkjum þar sem verið er að fara óhefðbundnar leiðir. Menn skilja að þarna er fyrst og fremst um að ræða vogunarsjóði sem sérhæfa sig í að fjárfesta í óvissunni.“ Þarna er þó líka um að ræða lánastofnanir sem lánuðu bönk- unum í góðri trú. Kemur þetta ekki niður á þeim? „Jú, þetta getur haft áhrif á einhverja sem hafa þegar tapað, en ekki grætt. Hagur þeirra hefur hins vegar vænkast vegna þess að neyðarlögin verja eignir þeirra. Þó að tapið sé stórt er þó búið að verja hag þeirra svo mikið að eðlilegt er að þeir taki þátt í að koma til móts við hina hliðina, það er að segja skulda- hliðina.“ Verðtryggingin afnumin Framsóknarflokkurinn vill stofna nefnd sér- fræðinga sem leiti leiða til að afnema verð- trygginguna. Sigmundur Davíð segir í sjálfu sér ekki flókið að afnema hana. Nefndin verði að skoða heildarmyndina því verð- tryggingin haldist í hendur við margt annað. „Margir hafa bent á að verðtryggingin sé ekki vandamálið heldur verðbólgan. Auð- vitað þarf, samhliða afnáminu, að haga hag- stjórn þannig að haldið sé aftur af verðbólg- unni. Einn af göllum verðtryggingarinnar er hins vegar að síðan hún var sett hefur efna- hagslífið lagað sig svo að henni að verðtrygg- ingin er farin að ýta undir verðbólguna. Menn hafa til dæmis verið hvað eftir annað að reyna að hafa áhrif á verðbólgu með stýrivöxtum Seðlabankans. Engu máli skiptir hvort þeir eru færðir upp eða niður, samhengið við verðbólguna birtist ekki. Það er vegna þess að áhrifin hafa verið tekin úr sambandi við verðtrygginguna með því að hafa í raun annan gjaldmiðil á lánum. Afnám verðtryggingarinnar er því hluti af því að vinna á verðbólguvandanum.“ Peningar eru ekki verðmæti Tökum einfalt dæmi. Ef ég lána þér fyrir bjór vil ég geta keypt mér bjór fyrir þann pening sem þú borgar mér til baka. Ég vil að virði peninganna sé það sama þegar þú end- urgreiðir mér lánið. Hvernig tryggið þið það ef verðtryggingin er afnumin? „Þessi rök eru gild svo langt sem þau ná. Það má segja að 30 milljóna fasteignalán í dag sé ekki jafn hátt og 30 milljóna fast- eignalán fyrir fimm árum, þar sem verð- mæti hverrar krónu sé minna. Það sem vantar hins vegar í þennan rök- stuðning er að peningar eru ekki eiginleg verðmæti. Peningar eru, rétt eins og aðrar eignir, hlutir sem geta sveiflast að verðmæti. Þegar einn lánar öðrum verða báðir aðilar samnings að taka áhættu af þeim sveiflum í verðmæti. Eins og þetta er núna er áhættan aðeins hjá lántakanum. Hann þarf alltaf að borga jafn mikinn bjór til baka, eða hvaða viðmiðun við notum, þannig að áhættan, sem hlýtur að þurfa að skiptast á milli manna þegar þeir gera samning, liggur eingöngu öðru megin. Kostnaðurinn við sveiflujöfnun má ekki bara lenda á lántakanum.“ Óttumst ekki vaxtahækkun En óttist þið ekki að lánveitendur tryggi hag sinn með því einfaldlega að hækka vexti? „Við höfðum áhyggjur af því í byrjun en ég fellst á þau rök að svo eigi ekki að vera. Við afnám verðtryggingar geta markaðslögmálin farið að virka með fjármagn eins og annað. Menn þurfa að hafa þau kjör á fjármagni þegar þeir lána það út að fólk vilji kaupa, það er að segja að taka lán. Ef vextir eru með þeim hætti að menn sjái sér ekki hag í að taka lánið, þá auðvitað taka menn það ekki.“ Sigmundur segir óskiljanlegt hve vextir á verðtryggðum lánum séu háir. Verðtrygging- in tryggi að lánveitandi fái allt sitt til baka en engu að síður bætist við háir vextir. Glöggt hafi komið í ljós að markaðslögmálin gildi ekki á lánamarkaði þegar bankarnir hækk- uðu vexti sína á húsnæðislánin til að draga úr fasteignabólunni. „Þrátt fyrir það dró ekki úr lántöku sem neinu nam. Ástæðan fyrir því var að mark- aðslögmálin virkuðu ekki, fasteignabólan hélt áfram að blása út. Fólk hugsaði aðeins um hvað það þurfti að borga fyrstu mán- uðina. Heildarkostnaðurinn við lánið var ekki það sem réð ákvörðuninni. Þegar verðtryggingin er ekki til staðar til að rugla þessa mynd, þá sjá menn heildar- kostnaðinn og geta tekið ákvörðun út frá því. Við teljum því að þetta verði gegnsærra og jafni stöðu samningsaðilanna, lánveitandans og lántakans.“ 2013 Einfalt að afnema verðtryggingu Leiðrétting skulda og afnám verðtryggingar eru stóru mál Framsóknarflokksins fyrir kosningarnar. Flokkurinn nýtur góðs fylgis í könnunum og er í uppsveiflu. Fréttablaðið fór yfir þessi mál með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni formanni. ➜ Fylgi Framsóknarflokksins í formannstíð Sigmundar 25% 20% 15% 10% 5% 22 .01 .09 27 .02 .09 11 .03 .09 25 .03 .09 07 .04 .09 14 .04 .09 25 .04 .09 Ko sni ng ar 28 .07 .09 15 .10 .09 07 .01 .10 18 .03 .10 23 .09 .10 19 .01 .11 24 .02 .11 05 - 0 6.0 4.1 1 08 .09 .11 07 - 0 8.1 2.2 01 1 08 - 0 9.2 .20 12 11 - 1 2.4 .20 12 23 - 2 4.5 .20 12 16 - 1 7.1 .20 13 30 - 3 1.1 .20 13 27 - 2 8.2 .20 13 20 - 2 2.0 4.0 9 treysta Sigmundi Davíð best til að leiða ríkisstjórn, samkvæmt könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í lok febrúar. Hann nýtur mests stuðnings allra stjórnmálamanna til þess. 16.8% 16.8% 15.8% 12.4% 12.3% 14.8% 14.1% 14.6% 9.9% 9.4% 6.8%7.5% 7.3% 11.3% 11.8% 11.9% 26.1% 11.7% 13.7% 13.8%13.3% 12.5% ÞRJÚ MÁL SEM EKKI VERÐUR KVIKAÐ FRÁ ÞEGAR KEMUR AÐ RÍKISSTJÓRNAR- SAMSTARFI Málefni heimilanna „Við stöndum fast á þeim. Ekki bara af því að það er rétt heldur er það óhjá- kvæmilegt til að byggja upp íslenskt efnahagslíf.“ Atvinnuuppbygging „Við þurfum framtíðarsýn og stöðugleika í anda þjóðarsáttar. Einfalda verður skattkerfið.“ ESB „Við erum ekki á leið í Evrópu- sambandið.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA 26,1% Framsóknarflokkurinn nýtur stuðnings 26,1 prósents kjósenda samkvæmt könnun Fréttablaðsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segir málefni heimilanna vera stóru málin í kosningabaráttunni. 1 2 3 20.8% 13.5% Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Kosningastefnuskrá Sjálf- stæðisflokksins vorið 2013: „Valfrelsi lántakenda tryggt– verðtrygging verði ekki almenn regla. Allir eigi kost á sambæri- legum óverðtryggðum lánum og tíðkast hjá nágrannaþjóð- unum.“ Hvað var sagt? Stoð í áli ársfundur Samáls 2015 Þann 28. apríl heldur Samál árs fund sinn í Kalda lóni í Hörpu undir yfir skrift inni Stoð í áli. Fjallað verður um stöðu og fram tíð ál iðn aðar ins með áherslu á hring rás ina frá fram leiðslu til fjöl breyttrar notkunar og endur vinnslu. Samhliða ársfundinum verður sýn ing á stoð tækjum Össurar þar sem ál gegnir mikil vægu hlut verki. Fundarstjóri er Ólafur Teitur Guðnason. Dagskrá 8:00 Morgunverður. 8:30 Ársfundur. Sterkar stoðir Ragnar Guðmundsson, stjórnar- formaður Samáls og forstjóri Norðuráls. Ávarp Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra. Stoðtæki úr áli Bjarni Andrésson og María G. Sveinbjörnsdóttir, vöruhönnuðir hjá Össuri. Aerospace Aluminum – The Empire Strikes Back Daniel Goodman, markaðsstjóri Alcoa í flugsamgöngum. Kolefnisfótspor áls – Ísland og umheimurinn Þröstur Guðmundsson PhD, framkvæmdastjóri álsviðs HRV. 10:00 Kaffispjall að loknum fundi. Skráning er öllum opin og fer fram á vef Samáls, samal.is. Kosningastefnuskrá Framsóknarflokksins vorið 2013: „Við viljum afnema verð- tryggingu á neytendalánum. Fyrsta skrefið verði að setja þak á hækkun verðtrygg- ingar neytendalána.“ Fréttablaðið 16. mars 2013: „Sjálfstæðisflokkurinn vill gera atlögu að almennri notkun verðtryggingar í landinu og tryggja það að fólk hafi val um verðtryggð eða óverðtryggð lán. Bjarni segir það vera hlutverk stjórnvalda að endurskoða húsnæðislána- markaðinn með það að markmiði að tryggja óverðtryggð lán sem valkost.“ Fréttablaðið 9. mars 2013: „Framsóknarflokkurinn vill stofna nefnd sérfræðinga sem leiti leiða til að afnema verðtrygginguna. Sigmundur Davíð segir í sjálfu sér ekki flókið að afnema hana. Nefndin verði að skoða heildarmyndina því verðtryggingin haldist í hendur við margt annað.“ Úr stefnuyfirlýsingu ríkis- stjórnarinnar: „Æskilegt er að nýta það tækifæri sem gefst samhliða skuldaleiðréttingu til að breyta sem flestum verð- tryggðum lánum í óverð- tryggð.“ Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is 9. mars 201316. mars 2013
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.