Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 59
FIMMTUDAGUR 23. apríl 2015 | MENNING | 35
HVAÐ?
HVENÆR?
HVAR?
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2015
Tónleikar
11.00 Kammerhópurinn Nordic Affect
býður í ferðalag í tali og tónum þar
sem barokkhljóðfærin og tónlistin sem
samin var fyrir þau er kynnt í Iðnó.
Flytjendur eru Halla Steinunn Stefáns-
dóttir barokkfiðluleikari, Guðrún Hrund
Harðardóttir víóluleikari og Guðrún
Óskarsdóttir semballeikari. Aðgangur
er ókeypis.
14.00 Óskasteinar, 20 ára afmælistón-
leikar Stúlknakórs Reykjavíkur í Norður-
ljósasal Hörpu. Eitt hundrað stúlkur á
aldrinum 4-25 ára flytja þekkt kórlög
ásamt hljóðfæraleikurum. Miðaverð
2.500 krónur.
14.00 Vorvítamín Hamrahlíðarkóranna
undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur í
Menntaskólanum við Hamrahlíð. Seinni
tónleikarnir hefjast klukkan 16.00 og er
aðgangur ókeypis.
16.00 Vortónleikar Kvennakórs Háskóla
Íslands í Hátíðarsal Háskóla Íslands.
Aðgangseyrir er 2.000 krónur.
17.00 Tónleikarnir Konur í hundrað ár
verða í Norðurljósasal Hörpu. Miðaverð
er 3.000 krónur.
20.30 Saxófónleikarinn Sigurður Flosa-
son, píanóleikarinn Eyþór Gunnarsson
og bassaleikarinn Daninn Lennart leika
lög Billy Holiday í Vídalínskirkju. Tón-
leikarnir eru hluti af jazzhátíð Garða-
bæjar og er aðgangur ókeypis.
21.00 Tónleikar með Eivör Pálsdóttur á
Græna hattinum Akureyri. Eivör flytur
ný og gömul lög en hún gaf nýverið
út plötuna Bridges. Miðaverð er 3.990
krónur.
21.00 Anne Andersson, Magnús
Trygvason Eliassen og Richard And-
ersson spila á tónleikum í Mengi í
kvöld. Miðaverð er 2.000 krónur.
21.00 Mammút og Alda Dís
Arnardóttir koma fram á sumar-
tónleikum Frystiklefans á Rifi.
Miðaverð er 2.900 krónur.
21.00 Hljómsveitin Nátthrafnar sem
samanstendur af þeim Ólafi Tryggva
Pálssyni, Herði Vídalín Magnússyni og
Magnúsi Einarssyni spilar á Dillon í
kvöld.
22.00 Hljómsveitin Flakk heldur tón-
leika á Ob-La-Dí-Ob-La-Da, Frakkastíg 8.
Aðgangur er ókeypis.
Opnanir
17.00 Þorvaldur Jónsson opnar sýningu
á blekteikningum í Kunstschalger stofu
í Listasafni Reykjavíkur. Einnig verður
ný vídjódagskrá opnuð í sérstökum
vídjóbás. Léttar veitingar í boði og
aðgangur ókeypis.
Sýningar
16.00 Bára Kristinsdóttir sýnir ljós-
mynda- og vídeóverk sitt Verkstæðið í
Kubbnum í Ljósmyndasafni Reykjavíkur.
17.00 Tískusýning útskriftar-
nema í fatahönnun við
hönnunar- og arkitektúrdeild
Listaháskóla Íslands verður í
Hörpu, Flóa. Allir velkomnir og
aðgangur ókeypis.
Uppákomur
13.00 Matarmarkaður-
inn Krás á Loft Hostel í
dag. Bergsson mathús,
Coocoo’s Nes, Ramen
Momo og matsöluvagn-
ing Don’s Donuts með
veitingar. Plötusnúðurinn Óli Dóri kætir
eyru viðstaddra með glaðlegri sumar-
tónlist.
14.00 Bókaverðlaun barna verða veitt í
Borgarbókasafninu Grófinni. Ævar vís-
indamaður verður á staðnum og boðið
verður upp á kaffi, djús og kökur.
20.00 Sumardanceoke á skemmtistaðn-
um Húrra í kvöld.
Uppistand
21.30 Tilraunauppistand á Bar 11 í
kvöld. Aðgangur ókeypis.
Tónlist
21.00 Dj Introbeats þeytir skífum á
Prikinu í kvöld.
21.00 Trúbadorarnir Eiki og Steini
halda uppi stemningu á English Pub í
kvöld.
21.00 Dj Moonshine þeytir skífum á
Boston í kvöld.
21.00 Dj SimSimma þeytir skífum á
Frederiksen Ale House í kvöld.
21.00 Dj Terrordisco þeytir skífum á
Kaffibarnum í kvöld.
21.00 Dj Vala þeytir skífum á Lebowski
Bar í kvöld.
22.00 Trúbadorinn Hreimur heldur uppi
stemningu á American Bar í kvöld.
Upplýsingar um viðburði sendist á
hvar@frettabladid.is og einnig er hægt að
skrá þá inni á visir.is.
Heiða Dóra Jónsdóttir, sem notast
við listamannsnafnið Bara Heiða,
gefur út lagið Þynnkublús í dag.
Í laginu er dregin fram skop-
leg hlið á illa lukkuðu djammi en
Heiða segist að miklu leyti vera
að gera grín að sjálfri sér. „Maður
er fullur, þannig að það eru engin
skynfæri sem eru í lagi. Það er
dimmt, maður heyrir ekki neitt
og er í einhvers konar mjög skertu
ástandi,“ segir hún hress og bætir
sposk við: „Svo vaknar maður
kannski daginn eftir, illa farin á
taugum og kannski ekki einu sinni
heima hjá sér.
Svo er fólk kannski einhvern
veginn að velja sér framtíðarmaka
undir þessum kringumstæðum,
þetta er svo skrýtið,“ segir hún og
skellihlær.
Heiða hefur samið lög síðan á
unglingsaldri en það var ekki fyrr
en nýlega sem hún fór að taka þau
upp og koma í útvarpsvænt form.
„Þá kannski fór að bera meira á
manni þó maður hafi alltaf verið
einn heima inni í herbergi að
semja lög.“
Heiða myndi sjálf seint lýsa sér
sem liðtækum rappara en í laginu
er samt sem áður stuttur rapp-
kafli en að hennar sögn fannst
henni stemningin í laginu bjóða
upp á þess konar flutning. „Þegar
maður rappar þá getur maður bara
sagt svo ógeðslega mikið á stuttum
tíma,“ segir hún hress og bætir við
að hún eyði töluverðu púðri í texta-
gerðina.
Hægt er að hlusta á Þynnkublús
á baraheida.bandcamp.com. - gló
Á þynnkublús með
illa farið taugakerfi
Bara Heiða gefur út lag sem ber nafnið Þynnkublús
sem fj allar um skoplegar hliðar illa lukkaðs djamms.
ÞYNNKU-
BLÚS Heiða
veltir fyrir
sér djamm-
inu og
afleiðingum
þess í nýju
lagi.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
EIVÖR
MAMMÚT