Fréttablaðið - 23.04.2015, Side 78
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 54
Leikkonan Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir leikur rannsóknar-
lögreglumann í nýrri seríu af
Rétti, þáttum í leikstjórn Bald-
vins Z. Þetta er í fyrsta sinn í þó
nokkurn tíma sem hún tekur að
sér jafn stórt hlutverk. „Já, það
eru ellefu ár síðan ég lék síðast
stórt hlutverk. Þá var það í Chi-
cago sem var sýnt í Borgarleik-
húsinu,“ segir Steinunn Ólína,
sem er einnig ritstjóri Kvenna-
blaðsins.
Í þáttunum leikur hún rann-
sóknarlögreglumann og segist
hún verja tíma með rannsókn-
arlögreglumönnum til þess að
undirbúa sig fyrir hlutverkið.
„Við erum fyrst og fremst að
gæða þessar persónur lífi en það
er gott að kynna sér starf lög-
reglumanna svo maður sé ekki
bara í einhverjum lögguleik.
Þættirnir eru mjög „aktúel og
vel skrifaðir“. Þeir kallast vel á
við íslenskan veruleika sem mér
finnst mjög spennandi.“ Stein-
unn Ólína hefur nýlokið tökum
á þáttunum Ófærð, í leikstjórn
Baltasars Kormáks, sem sýndir
verða á RÚV í vetur. Auk þess
hafa sjónvarpsstöðvar víða um
heim keypt sýningaréttinn á
þáttunum. - ka
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjalti Egilsson
hjalti@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ
SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan
Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar
Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
„AB-mjólk með ávöxtum og múslí,
en svona spari þá vel ég egg og
beikon.“
Helga Möller söngkona.
MORGUNMATURINN
Svokölluð Kylie Jenner Chal-
lenge, eða Kylie Jenner-áskorun,
hefur heldur betur rutt sér til
rúms meðal íslenskra kvenna.
Hópurinn Beauty Tips á Face-
book, sem í eru
tæplega tutt-
ugu og fjögur
þúsund íslensk-
ar konur, hefur
orðið vettvang-
ur kvennanna til
að deila mynd-
um af árangr-
inum og má með
sanni segja að
vægast sagt
misjafnlega hafi tekist til.
Margar konur keppast við að
vara kynsystur sínar við á meðan
aðrar gefa góð ráð um hvern-
ig megi blása upp varirnar án
skaða.
Sérfræðingurinn
Guðmundur Már Stefánsson, lýta-
læknir í Domus Medica, mælir
ekki með uppátækinu en þekkir
til kvenna sem hafa látið til skar-
ar skríða.
„Í stuttu máli má segja að með
þessari blóðrásarstöðvun orsakast
að bláæðarblóðið kemst ekki að.
Bláæðarnar geta þannig sprung-
ið og þá getur komið mar, eða ör.
Slíkt getur svo leitt til ójafna í
vörunum sökum vefja skemmda og
varirnar afmyndast í framhald-
inu,“ útskýrir Guðmundur.
„Hér er verið að leika sér með
áhættuna, sumar lenda ekki í
þessu en aðrar gera það og það
getur verið stórmál,“ segir hann
og bætir við að afleiðingarnar
gætu verið afar ófyrirsjáanlegar
þótt upphaflega hafi átt að fylla
varirnar sakleysislega.
Læknir mælir gegn
fl öskuvarastækkun
Útblásnar varir hafa fyllt samfélagsmiðlana upp á síðkastið og er misgott ástand á
vörunum. Guðmundur Már lýtalæknir segir að hér sé verið að leika sér að hættunni.
MÉR LEIÐ EINS OG ÉG VÆRI Í PYNTINGABÚRI
Yrja Ás Baldvinsdóttir er ein þeirra sem létu til leiðast og notaði flösku til
að stækka á sér varirnar. Rataði myndin hennar meðal annars á síður Daily
Mail, þar sem fjallað var um uppátækið. „Ég átti engan veginn von á að
þetta myndi virka. Ég saug flöskuna í korter og úr urðu risavarir,“ segir Yrja
og bætir við: „Mér leið eins og ég væri í pyntingabúri í þessar fimmtán
mínútur og þær liðu eins og heill klukkutími.“ Yrja segist hafa framkvæmt
þetta undir formerkjum gríns. „Mér fannst mjög gaman að sjá mig með
svona stórar varir. En ég notast ekki við þetta til að stækka þær í alvöru.“
RÚMLEGA ÞRÝSTIN Yrja Ás segist ekki skilja hvers vegna stelpurnar séu ennþá að
standa í þessu. Hún gerði þetta sér til gamans. FRÉTTABLAÐIÐ
GUÐMUNDUR
MÁR
STEFÁNSSON
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
ICELAND ENGIHJALLA,VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
5 4FYRIR
Þú færð alltaf fimm pizzur
á verði fjögurra í Iceland
PI
PA
R
\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
51
8
3
5
Ver tíma með lögreglumönnum
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikur í Rétti. Fyrsta stóra hlutverkið í ellefu ár.
Við erum fyrst og
fremst að gæða þessar
persónur lífi en það er
gott að kynna sér starf
lögreglumanna svo
maður sé ekki bara í
einhverjum lögguleik.
SPENNT Ólína segir það spennandi
hversu vel Réttur kallast á við íslenskan
veruleika.
FYRIRMYNDIN Kylie Jenner þykir skarta
einkar álitlegum og eftirsóknarverðum vörum.
VARIÐ YKKUR FACEBOOK LOGAR AF SÝNIDÆMUM, MISGÓÐUM ÞÓ