Fréttablaðið - 23.04.2015, Síða 38
KYNNING − AUGLÝSINGSumargrill FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 20156
Ávefsíðunni gottimatinn.is er að finna fjöldann allan af gómsætum og girnileg-
um grilluppskriftum sem gaman
er að prófa. Á síðunni er sér-
stakur flokkur fyrir sumarleg-
ar uppskriftir þar sem finna má
rétti eins og fyllt grillbrauð með
camembert, grilluð fyllt laxa-
stykki með ferskum jurtum og
gráðaosti, alls kyns ljúffenga ham-
borgara, sumar leg salöt og fleira
til. Bara lesturinn á þessum upp-
skriftum nægir til að koma manni
í sumar skap og því ekki seinna
vænna að kíkja í heimsókn og
velja sér einhvern rétt til að prófa.
Á síðunni er jafnframt haldið
úti stórskemmtilegu og fjölbreyttu
matarbloggi sem er kjörið að kíkja
á til að fá innblástur og góðar hug-
myndir. Við erum nokkuð viss um
að það er spennandi grill sumar
fram undan hjá þeim og því til-
valið að fylgjast vel með – hvernig
sem viðrar.
Gleðilegt grillsumar með Gott í matinn
Dagatalið segir að sumarið sé komið og þótt veðurguðirnir virðist ekki alltaf vera á sama máli er um að gera að reyna að líta
björtum augum á tilveruna, setja upp sólgleraugun og byrja að grilla. Það verður bara að hafa það þó að þú þurfir að halda á regnhlíf
eða klæðast úlpu á meðan því grillmatur er svo góður að það er þess virði hvernig sem viðrar.
Grilluð paprika
með kirsuberjatómötum
Það er mjög gott að grilla papriku.
Hún verður sæt og góð. Hér er aðferð
þar sem paprikan er skorin í helm-
inga og fyllt með tómötum og kryddi.
Grillaða paprikan hentar einstaklega
vel með grilluðu kjöti.
3 rauðar paprikur
1 pakki kirsuberjatómatar
2 msk. smátt skorin fersk basilíka
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
ólífuolía
salt og pipar
Skerið paprikuna til helminga og
fjarlægið kjarnann. Skerið tómatana
í tvennt og setjið í skál með basilíku,
hvítlauk og olíu. Blandið vel saman.
Bragðbætið með salti og pipar.
Setjið paprikuna á grillið með
sárið niður og grillið í nokkrar mín-
útur. Fyllið hana því næst með tóm-
atablöndunni og setjið aftur á grillið
í um það bil fimm mínútur. Gott er
að nota svokallað „indirekte“ en þá
er slökkt á miðvarmanum og matur-
inn eldast hægar.
Chilli-kartöflur
Þessar kartöflur eru einstaklega
góðar og passa vel með grilluðu kjöti.
Ef ekki er grill við höndina má gera
þetta í ofni.
12 litlar kartöflur
3 msk. ólífuolía
¼ tsk. chilli-duft
½ tsk. paprikuduft
2 tsk. nýmalaður pipar
Þvoið kartöflurnar vel og forsjóð-
ið í 15 mínútur. Best er að setja þær
á álpappír sem hefur verið útbúinn
eins og bakki, það er brett upp á hlið-
arnar.
Blandið saman olíu og kryddi.
Veltið kartöflunum upp úr blönd-
unni þegar þær hafa verið forsoðnar.
Setjið á álbakkann og grillið í u.þ.b.
15 mínútur. Snúið kartöflunum á
meðan þær eru að grillast.
Grilluð lárpera með
mangó og chilli
Hér er hollt og gott meðlæti sem
passar vel með kjúklingi eða svína-
kjöti.
4 lárperur
1 þroskað mangó,
skorið í litla bita
1 rauður chilli-pipar,
mjög smátt skorinn
safi úr 1 límónu
1 msk. ólífuolía
3 msk. ferskt kóríander
Skerið lárperuna til helminga.
Takið steininn úr. Leggið lárperu-
helmingana á heitt grillið með sárið
niður. Grillið í smástund.
Blandið mangó, chilli-pipar, lím-
ónusafa, olíu og kóríander saman í
skál. Setjið blöndu í hverja lárperu
og setjið aftur á grillið. Stillið grillið
á indirekte og grillið í 3-4 mínútur.
Þegar grillað er á indirekte er matur-
inn á minnst heita partinum á grill-
inu.
Grillaður aspas
Ferskur aspas er
ekta sumarmat-
ur. Hann pass-
ar vel með öllum
grilluðum mat.
16 grænir,
ferskir aspas
4 msk. ólífuolía
safi úr einni sítrónu
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
Skerið neðsta hlutann af aspasin-
um, þ.e. 1 cm, þar sem hann er harð-
astur. Setjið ólífuolíu, sítrónusafa,
salt og pipar í skál. Veltið aspasinum
upp úr blöndunni. Leggið á heitt grill
og eldið í 3-4 mínútur þar til hann
hefur fengið fallegan grilllit. Dreypið
smávegis af sítrónuolíunni yfir þegar
hann er kominn á disk.
Grillaður maís
Að grilla ferskan maís er bæði ein-
falt og gott. Hægt er að borða hann
heilan eða skera hann niður eftir að
hann hefur verið grillaður.
4 maískólfar, ferskir
150 g smjör
1 límóna, safi og börkur
1 rauður chilli-pipar,
fræhreinsaður og smátt skorinn
2 msk. ferskt kórí ander,
smátt skorið
salt
Fjarlægið blöðin utan af maísn-
um. Penslið hann með olíu áður
en hann er settur á grillið. Grillið á
meðalhita í 15-20 mínútur eða þar til
hann er orðinn mjúkur og gullinn á
lit. Snúið nokkrum sinnum á meðan.
Ef maísinn hefur verið soðinn fyrst
þarf hann styttri tíma á grillinu.
Hrærið saman smjör,
límónubörk, límónu-
safa og chilli-pipar.
Berið maísinn fram með
kryddsmjörinu og salti.
Grillað meðlæti gerir
matinn enn betri
Það er svo skemmtilegt að taka fram grillið á vorin og prófa sig áfram með
nýjungar í matargerðinni. Hér eru nokkrar uppskriftir að girnilegu meðlæti
með kjöti eða fiski sem hægt er að gera á grillinu. Grænmeti er sérstaklega
gott þegar það hefur verið grillað. Hægt er að grilla nánast allt grænmeti.
Grillaður aspas getur verið
forréttur eða meðlæti
með góðum fiski, til
dæmis grilluðum laxi.
Lárpera er einstaklega holl og góð. Hana
er hægt að grilla.
Grillaðar kartöflur með chilli-pipar passa
einstaklega vel með kjöti.
Paprika er einstaklega góð þegar hún
hefur verið grilluð. Hægt er að grilla hana
eina og sér eða fylla hana með tómötum.
Uppskriftin fylgir hér.
Það er eftirvænting í loftinu þegar grilltímabilið hefst. Það er svo gaman að grilla.