Fréttablaðið - 23.04.2015, Síða 49
| FÓLK | 5
Ég ákvað að prófa Femar-elle síðasta vetur eftir að hafa lesið frásögn konu í
blaði þar sem hún lýsti ánægju
sinni með vöruna,“ segir Soffía
Káradóttir sem á þeim tíma var
að byrja á breytingaskeiðinu en
vildi ekki nota hormóna. „Ég fann
fyrir hitakófum, fótaóeirð, skap-
sveiflum, líkamlegri vanlíðan og
vaknaði oft á nóttunni.“
Eftir að Soffía hafði tekið Fem-
arelle inn í aðeins tíu daga hurfu
öll einkenni breytingaskeiðsins.
„Nú fæ ég samfelldan svefn, finn
ekki lengur fyrir hitakófum eða
fótaóeirð og líður mun betur á
allan hátt og er í góðu jafnvægi.“
Soffía mælir hiklaust með Fem-
arelle við vinkonur sínar. „Ein
þeirra hætti á hormónum og not-
ar Femarelle í dag. Ég mæli með
því að allar konur á breytinga-
aldrinum prófi Femarelle og get
ekki ímyndað mér hvernig mér
liði í dag ef ég hefði ekki kynnst
þessu dásamlega undraefni.“
Virkni Femarelle hefur verið
staðfest með fjölda rannsókna á
undanförnum þrettán árum.
FEMARELLE – ÖRUGG-
UR KOSTUR FYRIR
KONUR
● Slær á óþægindi eins og höfuð-
verk, svefntruflanir, nætursvita,
skapsveiflur, óþægindi í liðum og
vöðvum
● Þéttir beinin
● Hefur ekki áhrif á móðurlíf eða
brjóstavef
● Náttúruleg lausn, inniheldur tofu-
extract og flaxceed-duft
● Inniheldur engin hormón eða ís-
óflavóníða
● Staðfest með rannsóknum síð-
ustu þrettán ár
FRÁBÆR LAUSN
Loksins er komin á markaðinn náttúruleg lausn
fyrir konur á breytingaaldri. Femarelle er gert úr
jurtaefnum sem slá á einkenni tíðahvarfa.
MÆLIR MEÐ FEMARELLE Soffía getur
ekki ímyndað sér hvernig henni liði í dag
ef hún hefði ekki kynnst Femarelle.
Svefntruflanir geta stuðlað að vanlíðan. Við búum í hröðu og erilsömu sam-
félagi sem veldur því að svefn-
truflanir eru gríðarlega algengar.
Ef þú færð ekki nægan svefn get-
urðu fengið bauga undir augun,
húðin orðið föl og einnig getur
það valdið þyngdaraukningu
þar sem þú eykur framleiðslu
á hormónum sem kalla fram
hungurtilfinningu.
EKKERT HEFUR REYNST EINS
VEL
„Ég hafði verið í vandræðum
með svefn og slökun í töluverð-
an tíma,“ segir Elsa Ásgeirs-
dóttir. „Ég starfa sem klæðskeri
og hönnuður og starfinu fylgir
oft mikið álag. Stundum er ég
nánast ofvirk og hausinn oft
fullur af hugmyndum sem ég
þarf að framkvæma,“ segir hún
og brosir.
„Ég náði alltaf að sofna en
náði ekki að sofa alla nóttina,
var oft vöknuð um klukkan
fjögur á næturnar og átti erfitt
með að sofna aftur. Það sem er
líka gott við Melissu er að nú
heyrir fótapirringur sögunni til,
en ég átti það til að vera slæm af
fótapirringi þegar ég var komin
í háttinn.“
Elsa las sér til
um Melissa Dream-
töflurnar eftir að
hún sá þær aug-
lýstar og ákvað að
prófa. „Mér leist
líka vel á þær þar
sem þetta er nátt-
úruleg lausn, mér
líkar það betur. Ég
hef prófað mjög
margt til að ná að
hvílast og sofna
en ekkert annað
hefur reynst mér
svona vel. Þetta er
það eina sem hefur
hjálpað mér hingað
til!
Mér líður svo
miklu betur eftir
að ég næ fullum
svefni, er í betra
jafnvægi allan dag-
inn og þá verður
allt annað líka í
betra jafnvægi.“
SKAÐLEGT FYRIR LÍKAMANN
Svefnleysi veldur því að líkam-
inn endurnýjar sig hægar, sem
getur veikt ónæmiskerfið. Í raun
getur svefnleysi verið mjög
skaðlegt fyrir líkamann. Það er
ekki óalgengt að vinir og sam-
starfsmenn hafi áhyggjur af
þér. Svefnleysi er svo skaðlegt
fyrir fólk að það er viðurkennt
sem áhrifarík pyntingaraðferð.
Til þess að hjálpa þér við að
losna við hvíldar- og svefnlausar
nætur ættir þú að prófa Melissa
Dream-töflurnar.
SOFÐU BETUR MEÐ MELISSA
DREAM
Í gegnum aldirnar hefur sítrónu-
melis (lemon balm), Melissa offic-
inalis, verið vinsæl meðal grasa-
lækna. Þaðan dregur varan nafn
sitt, Melissa Dream. Þessar vís-
indalegu samsettu náttúruvörur
eru hannaðar til að aðstoða þig
við að sofa betur og vakna endur-
nærð/ur og innihalda ekki efni
sem hafa sljóvgandi áhrif. Sítr-
ónumelis-taflan inniheldur nátt-
úrulegu amínósýruna L-theanine,
sem hjálpar til við slökun auk
alhliða B-vítamína, sem stuðla að
eðlilegri taugastarfsemi. Auk þess
inniheldur taflan mikið af magn-
esíum, sem stuðlar að eðlilegri
vöðvastarfsemi og dregur þar
með úr óþægindum í fótum og
handleggjum og bætir svefn.
Í BETRA JAFNVÆGI OG SEFUR VEL
ICECARE KYNNIR Melissa Dream-töflurnar fá þig til að slaka á, sofa betur og vakna endurnærð/ur. Þetta er ekki lyf heldur nátt-
úruleg vítamín og jurtir.
EINA SEM HJÁLPAR Elsa hefur prófað margt til að ná að hvílast og sofna en Melissa
Dream-töflurnar eru það eina sem hefur virkað hingað til. MYND/GVA
Margrét Alice Birgisdóttir heilsumarkþjálfi mælir með því við viðskipta-
vini sína að þeir fái meltingu
sína góða. „Mér finnst sérstak-
lega mikilvægt að meltingar-
færin starfi eins og þau eiga að
gera. Ef bakteríu flóra líkamans
er í ójafnvægi starfar hann ekki
eins og hann á að gera. Bio-Kult
hefur reynst afar vel til að bæta
starfsemi meltingarinnar,“ segir
Margrét.
Sjálf greindist Margrét með
colitis ulcerosa, eða sáraristil-
bólgu, fyrir fjórtán árum. „Í dag
er ég lyfja- og einkennalaus og
hef verið það að mestu til margra
ára. Ég er sannfærð um að
bakteríurnar sem ég hef tekið í
gegnum tíðina samhliða jákvæð-
um breytingum á lífsstíl hafi sitt
að segja varðandi það hve vel
mér gengur.
Ég mæli heils hugar með Bio-
Kult, bæði Candéa með hvítlauk
og grape seed extract til að halda
einkennum niðri og með Bio-Kult
Original til að viðhalda batanum,
báðar tegundir hafa reynst mér
vel.“
Bio-Kult Candéa-hylkin geta
virkað sem öflug vörn gegn can-
dida-sveppasýkingu en hún getur
komið fram með ólíkum hætti
hjá fólki, svo sem munnangri,
fæðu óþoli, pirringi og skap-
sveiflum, þreytu, brjóst sviða,
verkjum í liðum, mígreni eða
ýmsum húðvandamálum.
BIO-KULT FYRIR ALLA
Innihald Bio-Kult Candéa-
hylkjanna er öflug blanda af vin-
veittum gerlum ásamt hvítlauk
og grape seed extract. Bio-Kult
Original er einnig öflug blanda af
vinveittum gerlum sem styrkja
þarma flóruna. Bio-Kult Candéa og
Bio-Kult Original henta vel fyrir
alla, einnig fyrir barnshafandi
konur, mjólkandi mæður og börn.
Fólk með mjólkur- og soja óþol má
nota vörurnar. Mælt er með Bio-
Kult í bókinni Meltingarvegurinn
og geðheilsa eftir dr. Nat asha
Campbell-McBride.
● Bio-Kult reynist vel til að bæta
meltinguna.
● Mikilvægt er að viðhalda réttri
bakteríu flóru líkamans.
● Hægt er að fá bakteríur úr fæðu
en þeir sem borða ekki slíkan mat
geta tekið bakteríur í hylkjum.
● Margrét Alice mælir bæði með
Bio-Kult Candéa og Bio-Kult
Original.
MÆLIR HEILSHUGAR MEÐ BIO-KULT
Bio-Kult er öflug blanda vinveittra gerla sem styrkja þarmaflóruna. Margrét
Alice Birgisdóttir mælir með Bio-Kult fyrir meltinguna.
VILTU VINNA ÁRSBIRGÐIR AF BIO-KULT?
Endilega skráðu þig í klúbbinn okkar. www.icecare.is
ÁNÆGÐ Margrét Alice er ánægð með Bio-Kult-hylkin og mælir með þeim til að bæta melt-
inguna.