Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 66
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 42
Magnús Emilsson Löggiltur fasteignasali.
Nýkomið í einkasölu gott nýlegt 25 fm. sumarhús við
Laugaland/Landssveit á 15 hektara góðu landi Hallstúns.
Tilvalin eign fyrir hestamenn eða skógræktarfólk.
Frábær staðsetning. Verð 15,9 millj.
Hraunhamar kynnir nýkomið í einkasölu mjög fallegt
sumarhús 64,5 fm. á einni hæð, (byggður 1992). Stór sólpall-
ur í kringum bústaðinn, heitur pottur. Glæsilegt kjarrivaxið
eignarland tæpur hektari. Hitaveita. Frábær staðsetning í
Vaðneslandi Grímsnesi. Myndir á netinu. Verð 19,5 millj.
Höfum fengið í einkasölu nýbýlið Lynghóll við Selfoss
30 hektara land. Afstúkað í 4 beitahólf með rennandi vatni.
Frábær staðsetning og útsýni. Góðar reiðleiðir. Lynghóll er við
þjóðveg 1 sami afleggjari og Hjálmholt í Flóa. Sökklar af 80 fm.
sumarhúsi. Rafmagn komið og kalt vatn, hitaveita á staðnum.
Verð 18,9 millj.
Hallstún við Laugaland
- Sumarhús auk 15 hektara
Sumarhús í Vaðnesi
Lynghóll - Nýbýli við Selfoss
1 Vanalega er ég hrifnari af haust- og vetrartískunni en
af sumartískunni, einfaldlega
því hún hentar betur veðurfarinu
hérna. Í sumar er hún hins vegar
óvenju fjölbreytt. Gallaefnin
koma sterk inn í ólíkum myndum,
rúskinn, hvítur alklæðnaður, stutt-
ar buxur með víðum skálmum, síð
og flæðandi pils, hattar og klútar.
Á sumrin verður allt aðeins létt-
ara og bjartara, stígvélin víkja
fyrir opnum skóm, berum leggjum
og ullarkápunni er skipt út fyrir
gallajakka eða léttari frakka.
2 Ein stærsta tískubóla sumars-ins, og vonandi nær hún lengra
inn í árið, eru útvíðar buxur. Ég
er mjög hrifin af „70’s glam rock“
sem tröllríður tískunni í ár. Hún
tónar vel við skandinavíska ein-
faldleikann sem hefur ráðið ríkj-
um og eru þessir tveir stílar góð
blanda í sumarfataskápinn.
3 Útvíðar gallabuxur, hvítir strigaskór og rúskinnsjakki/
kápa.
4 Hvítt er litur sumarsins en blái liturinn slæðist líka með.
5 Klútar, þunnir. Munstraðir sem og einlitir. Hattarnir eru
líka vinsælir, með stóru barði og
hin svokallaða „sjóaraderhúfa“ er
líka að koma sterk inn.
6 Það eru fullt af tískutrendum sem gera tilkall til titilsins
trend sumarsins. Hvítir striga-
skór og einfaldir sandalar í anda
Birkenstock halda áfram en við
það bætist kögur, smekkbuxur,
víðar gallabuxur, bert á milli … ég
gæti haldið lengi áfram. Hlakka til
að sjá hvaða trend verður í fyrsta
sæti þegar líða tekur á sumarið.
Útvíðar buxur og rúskinnsjakkar
Álfrún Pálsdóttir, ritstjóri Glamour.
1 70’s áhrifin eru mjög áberandi. Flare og palazzo-buxur, kögur,
rúskinn, heklaðar flíkur og auð-
vitað fullt af blómamunstri. Galla-
efnið er líka að koma sterkt inn í
alls konar útgáfum. Gallajakkar,
gallabuxur, gallakjólar, skokkar og
skyrtur. 70’s áhrifin, bland í poka
með 90’s og minimal tísku.
2 Gallajakkinn virðist vera að koma með sterkt kombakk.
3 Efst á mínum óskalista fyrir sumarið er nýr gallajakki,
loose-fit boyfriend gallabuxur og
falleg hvít skyrta eða nýr, ferskur
t-shirt.
4 Mildir og fallegir tónar virð-ast vera vinsælir. Fölbleikur
og aquamarine blár, ljós khaki og
army grænn líka.
5 Bakpokar, töskur í lit og prenti, sailor-hattar og blóma-
kransar fyrir Secret Solstice.
6 Mér finnst hvítir strigaskór vera must fyrir hvert vor.
Ég hugsa að Adidas superstar og
Stan Smith-skórnir verði vinsælir.
Er ansi hrædd um að Birkenstock
haldi velli. Verð að viðurkenna
að ég og Birkenstock eigum ekki
saman.
Kögur og hvítir strigaskór
Hildur Ragnarsdóttir, eigandi verslunarinnar Einveru og bloggari á Trendnet.
1 Það er rosalegur 70’s fílingur í gangi og pínu svona bóhem/
vintage blær yfir tískunni. Við
sjáum víðar buxur aftur eftir
gott hlé. Stígvél, skyrtur, rúllu-
kragabolir, rúskinn og munstur
sem við höfum ekki séð í svolítinn
tíma eru að koma aftur. Ég elska
þennan 70’s fíling, það er allt svo
áreynslulaust, þægilegt og brjál-
æðislega flott. Ponsjó, kimonóar,
kögur, samfestingar og síðkjólar.
Já, takk!
2 Skyrtur, bæði einlitar, tein-óttar og í alls konar munstr-
um og efnum, víðar buxur og litrík
munstur í bæði kjólum, bolum og
samfestingum.
3 Mér finnst möst að eiga sam-festing, síðan kjól og flotta
töffaralega skyrtu, helst í herra-
legu sniði, og fallega kápu.
4 Blár, hvítur og pastellitir eins og púðurbleikur, brúnir/kamel
tónar eru líka að læða sér inn og
eru flottir með til dæmis dökk-
bláu. Röndótt, teinótt, köflótt og
svo alls konar flott litrík mynstur
með smá „vintage“ blæ.
5 Það er líka retro blær yfir fylgihlutum, bæði sólgleraug-
um og skarti. Hringlaga sólgler-
augu og síð hálsmen í hippalegum
fíling. Eins finnst mér nauðsynlegt
að eiga fallegan klút í flottum lit
en þeir setja oft punktinn yfir i-ið.
6 Já, víðar buxur. Það tekur okkur smá tíma að melta það,
en það er klárlega það sem koma
skal.
Seventís og samfestingar
Andrea Magnúsdóttir, fatahönnuður og eigandi Andrea boutique
1. Hvernig myndir þú lýsa tískunni í sumar?
2. Hvað er að koma nýtt inn í sumar?
3. Hvað er nauðsynlegt að eiga?
4. Hvaða litir verða allsráðandi í sumar?
5. Hvaða fylgihlutir verða vinsælir í sumar?
6. Í fyrra voru það hvítu strigaskórnir og
Birkenstock; er eitthvert álíka trend í
uppsiglingu?
Gallaefni, skyrtur
og seventís buxur
Nú þegar sumardagurinn
fyrsti er genginn í garð er
tímabært að huga að sum-
artískunni. Fréttablaðið
fékk þrjá tískusérfræðinga
til þess að færa okkur í
sannleikann um hvað verði
móðins í sólinni í sumar.
LÍFIÐ
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR