Fréttablaðið - 23.04.2015, Blaðsíða 72
23. apríl 2015 FIMMTUDAGUR| LÍFIÐ | 48
BAKÞANKAR
Frosta
Logasonar
Það eina sem við getum gert er að biðja
til guðs og vonast eftir kraftaverki.
Cissy Houston, amma Bobbi Kristina Brown
Útvarp Saga hefur lengi vel verið í uppáhaldi hjá mér. Þar talar rödd
þjóðarinnar, í símatíma stöðvarinnar,
undir styrkri leiðsögn þáttastjórnand-
ans sem þorir á meðan aðrir þegja. Ég
fullyrði að í þessari viku hafi hlust-
endur náð alveg nýjum hæðum í upp-
byggilegum siðferðisboðskap og
náungakærleik. Þvílík og önnur
eins samstaða um mannréttindi
og fleiri kristin gildi er vand-
fundin.
UMRÆÐA um svokallaða
hinseginfræðslu í Hafnar-
firði hefur verið áberandi og hafa
áhangendur stöðvarinnar sýnt
aðdáunarverða samstöðu í því máli.
Út með hommaskapinn og inn með
kristnifræðsluna er meginstefið
í þættinum Línan er laus. En þótt
ótrúlegt megi virðast þá virðast þess-
ar skoðanir hlustenda útvarps Sögu
ekki eiga upp á pallborðið hjá öðrum
Íslendingum. Það er í rauninni mjög
einkennilegt. Var það ekki alveg kýr-
skýrt hjá Frelsaranum frá Nasaret
að samkynhneigð væri viðurstyggð?
Varla er íslenska þjóðkirkjan, sem
nýtur sérstaks stuðnings ríkis og er
varin af stjórnarskrá landsins, að fara
með fleipur í þessu máli.
Í TILLÖGU sem bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar samþykkti í síðustu viku segir
meðal annars að hinsegin ungmenni
upplifi skort á upplýsingum, umræðu
og fyrirmyndum og eiga í erfiðleikum
með að þróa jákvæða sjálfsmynd. Að
fræðslan geti gert þeim auðveldara
að takast á við þær tilfinningar sem
tengjast kynhneigð þeirra og kynvit-
und. Auk þess geti hinseginfræðsla
verið mikilvægur liður í að útrýma
fordómum og uppræta hatursfulla orð-
ræðu gegn hinsegin einstaklingum.
ÞIÐ afsakið. Ég er ekki viss um að
okkar kristna samfélag kæri sig um
slíkt trúboð og innrætingu af þessum
toga í blessuð börnin. Hlustendur
Útvarps Sögu telja skaðlegt að inn-
ræta ungum börnum málefni sem þau
hafa ekki þroska til að skilja. Lítil
börn eru nefnilega viðkvæmur gróður
sem verður að fá að vaxa og dafna í
friði. Að demba yfir þau kennslu um
samkynhneigð er slæmt á meðan boð-
skapur Gídeonfélagsins er hins vegar
frábær.
JÁ, góðir landsmenn. Skrúfan er svo
sannarlega laus.
Skrúfan er laus
Bobbi Kristina Brown fannst meðvit-
undar laus í baðkari á heimili sínu þann
31. janúar síðastliðinn. Henni hefur verið
haldið sofandi í öndunarvél síðan í febrúar
og var mjög tvísýnt um ástand hennar á
tímabili.
Nú hefur Bobbi Kristina verið tekin úr
öndunarvél, en hún sýnir engin viðbrögð,
ef marka má yfirlýsingu frá ömmu henn-
ar, Cissy Houston, á mánudag. Fréttir af
ástandi hennar eru þó enn umdeildar, þar
sem faðir hennar, Bobby Brown, og amma
hennar virðast ekki vera á sama máli.
„Við hittum læknana hennar til þess að
fá útskýringu á ástandi hennar. Henni er
ekki haldið sofandi lengur, en hún sýnir
engin viðbrögð önnur en að anda sjálf.
Það eina sem við getum gert er að biðja
til guðs og vonast eftir kraftaverki,“ sagði
Houston.
Lögfræðingur fjölskyldunnar tók undir
þetta í yfirlýsingunni. „Læknarnir segja
að hún muni lifa, en að líf hennar og lífs-
gæði muni aldrei verða samt aftur.“
Faðir Bobbi Kristina, Bobby Brown, til-
kynnti hins vegar á tónleikum sínum á
mánudag að dóttir hans væri á batavegi.
„Hún er vöknuð og hún horfði á mig,“
sagði hann við fögnuð áhorfenda.
Lögreglan rannsakar málið sem saka-
mál. Kærasti Bobbi Kristina, Nick Gord-
on, var einn þeirra sem komu að henni í
baðkarinu, en fjölskyldan hefur meinað
honum að koma og heimsækja Bobbi.
Bobbi Kristina heiladauð
Dóttir Whitney Huston mun aldrei ná sér eft ir að hún missti meðvitund í janúar.
ALDREI SÖM AFTUR Bobbi Kristina Brown mun ekki verða söm aftur.
KRINGLUNNI
SPARBÍÓ
AKUREYRI
KEFLAVÍK
EGILSHÖLL
CHICAGO SUN-TIMES
ÁLFABAKKA
TOTAL FILM
AVENGERS 2 3D 2, 5, 7, 8, 10(P), 11
MALL COP 2 4, 6, 8
ÁSTRÍKUR 2D 2, 4 - ÍSL TAL
FAST & FURIOUS 7 10
LOKSINS HEIM 2D 1:50 - ÍSL TAL
Tilboð í bíó. Gildir á allar sýningar merktar með rauðu.
Save the Children á Íslandi