Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 2
Vatnsslagur í blíðviðrinu
Heiðskírt í Reykjavík Krakkar í Ísaksskóla nýttu veðrið vel í gær og skelltu sér í vatnsslag. Gott veður var víða á landinu en í Reykjavík var heiðskírt
og hitinn í 15 gráðum þegar heitast var. Um hádegisbil dró þó fyrir sólu um stund þegar þoka sveif yfir en hún leystist fljótt upp. FRÉTTABLAÐIÐ/HANNA
Veður
Í dag er útlit fyrir ágætis veður á land-
inu, þurrt og víða sólskin en skýjað og
sums staðar þokuloft við suður- og
vesturströndina. Hiti yfirleitt 12 til 20
stig, einna hlýjast í innsveitum fyrir
norðan. sjá síðu 30
Síminn hefur ekki stoppað hjá Tryggingastofnun enda eru margir í uppnámi eftir að
hafa fengið bakreikning. FRÉTTABLAÐIÐ/PjeTuR
Velferðarmál Þar sem almanna-
tryggingakerfið er tekjutengt þarf
Tryggingastofnun (TR) að endur-
reikna greiðslur þegar staðfest skatt-
framtöl eru birt. Niðurstaða endur-
reiknings leiðir síðan í ljós hvort
lífeyrisþegi hafi fengið rétt greitt,
vangreitt eða greitt umfram rétt.
Í ár var endurreiknað fyrir 53
þúsund lífeyrisþega. Niðurstaðan
er sú að 49 prósent eiga inneign hjá
Tryggingastofnun en 38 prósent hafa
fengið ofgreitt. Meðalskuld er 128
þúsund krónur og er skuldin dregin
af greiðslum í tólf mánuði. Þeir sem
skulda hærri fjárhæðir fá að auki
senda greiðsluseðla.
Fréttablaðið hefur heimildir fyrir
að krabbameinssjúklingur, sem er
einstætt foreldri, hafi til að mynda
fengið 900 þúsund króna bak-
reikning. Næstu tólf mánuði þarf
viðkomandi að greiða 77 þúsund
krónur á mánuði til baka. Annað
dæmi er öryrki sem seldi eign og
þar sem söluhagnaðurinn dregst frá
greiðslum TR þarf viðkomandi að
greiða sem því nemur næstu mánuði.
Launþegar fengju þennan hagnað
beint í vasann.
Þetta eru eingöngu tvö dæmi af
fjölmörgum. Það staðfestir Sólveig
Hjaltadóttir, framkvæmdastjóri
samskiptasviðs TR. „Í dag er sex
hundruð símtala dagur,“ segir hún
og viðurkennir að mörg símtölin séu
erfið. En svona virki tekjutengt kerfi
og þótt reynt sé að gera nákvæmar
áætlanir geti vanáætlaðar tekjur, svo
sem greiðslur frá lífeyrissjóðum, fjár-
magnstekjur eða launatekjur, riðlað
áætluninni.
„Með endurreikningi er verið að
tryggja að allir fái rétta upphæð. Í
raun er þetta réttlætismál,“ segir
Sólveig en bendir á að ráðgjafar TR
hjálpi fólki að gera réttar áætlanir og
frekar ofmeta tekjur en hitt svo ekki
komi til skuldar. Hún viðurkennir þó
að kerfið geti verið flókið.
„Það er búið að ræða að einfalda
almannatryggingakerfið í mörg ár.
Nefndir hafa verið að störfum en
ekki enn verið sátt um niðurstöðu.
Og á meðan svo er framkvæmum við
samkvæmt núverandi lögum.“
Sólveig segir stofnunina þó mjög
fúsa til að semja við fólk. „Það er
hægt að liðka til ef þetta er íþyngj-
andi fyrir fólk og dreifa skuldinni á
fleiri mánuði.“ erlabjorg@frettabladid.is
Lífeyrisþegar með
þunga bakreikninga
Tekjutengdar greiðslur Tryggingastofnunar hafa verið endurreiknaðar og fá þá
lífeyrisþegar endurgreitt eða rukkun frá stofnuninni. Meðalskuld er 128 þúsund
krónur. Dæmi um að öryrkjar séu með mörg hundruð þúsund króna skuldir.
49%
lífeyrisþega eiga inneign.
samfélagsmál Samningur milli
SÁÁ og Ístaks um byggingu nýrrar
meðferðarstöðvar við Vík á Kjalar-
nesi var undirritaður í gær.
Tilboð Ístaks var metið hag-
stæðast í útboði þar sem sex tilboð
bárust. Verkáætlun gerir ráð fyrir að
karlaálma á Vík og þjónustubygg-
ing verði uppsteyptar og tilbúnar
fyrir múrverk og lagnavinnu þann
15. desember en að viðbygging við
kvennaálmu verði tilbúin undir
múrverk og lagnavinnu 12. janúar
á næsta ári. Verklok við uppsteypu
eru áætluð 15. febrúar.
Á vef SÁÁ segir Theodór Skúli
Halldórsson, formaður byggingar-
nefndar, allt benda til að áætlanir
standist. Nýbyggingar verði tilbúnar
í maí 2017 en þá taki við um sum-
arið endurnýjun annarra bygginga.
Stefnt er að því að opna nýja með-
ferðarstöð í október 2017. – jhh
SÁÁ ákvað að
taka boði Ístaks
samfélag Rauði kross Íslands fékk
47,8 milljónir frá utanríkisráðuneyt-
inu í byrjun júní og verða 25 milljónir
af því fé notaðar í mannúðaraðstoð
Alþjóðaráðs Rauða krossins í Sýr-
landi. Þá verða 13,8 milljónir notaðar
vegna stuðnings við innviði Rauða
krossins í Líbanon og níu milljónir
vegna stuðnings við aukið fæðuör-
yggi í Malaví. Þetta kemur fram á vef
Rauða krossins.
Á vefnum segir jafnframt að sam-
tökin hafi stutt við verkefni Alþjóða-
ráðs Rauða krossins í Sýrlandi sem
hafi einstaka aðstöðu til að koma
hjálpargögnum til bágstaddra á
átakasvæðum. Heilbrigðisstarfsfólk
hafi unnið ótrúlegt starf við mjög erf-
iðar aðstæður, ekki síst þar sem heilu
þorpin og jafnvel borgir eru jafnan
í herkví. Þá segir að í Líbanon komi
Rauði krossinn til með að styðja við
færanlegar heilsugæslustöðvar sem
veita flóttafólki nauðsynlega og oft
lífsbjargandi heilsugæslu. – ngy
48 milljónir til
hjálparstarfs
samfélag „Það er mikið álag hjá
okkur núna. Fólk sendir inn tölvu-
póst, hringir inn og svo leynir áhug-
inn sér ekki á samfélagsmiðlunum,“
segir Guðjón Arngrímsson, upp-
lýsingafulltrúi Icelandair, en flug-
félagið skoðar nú möguleikann á því
að bjóða upp á beint flug til Nice í
Frakklandi á næstu dögum.
Ísland vann Austurríki 2-1 í leik í
París í gær og mætir því Englandi í
sextán liða úrslitum í Nice á mánu-
dag.
„Það getur þó reynst erfitt að fara
beint til Nice þar sem allar vélarnar
okkar eru uppteknar og svo er vel
bókað hjá okkur á þessum árstíma,“
segir Guðjón.
Hann segir fjölmarga Íslendinga
hafa sett sig í samband við flug-
félagið, bæði til að reyna að bóka
miða út og til þess að framlengja
dvölina ytra. – ngy
Mögulega flogið
beint til Nice
Í dag er sex hundruð
símtala dagur.
Sólveig Hjaltadóttir,
framkvæmdastjóri
samskiptasviðs TR
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 f I m m T u D a g u r2 f r é T T I r ∙ f r é T T a B l a ð I ð