Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 4

Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 4
afar ólíklegt. Þá ítrekaði Cameron ein helstu rök Evrópusinna: „Brexit myndi skapa gríðarlegan vanda fyrir Bretland og valda efnahag okkar meiri skaða en maður getur ímyndað sér. Störf myndu tapast og lífsgæði komandi kynslóða minnka.“ Johnson og aðrir liðsmenn Vote Leave, samtaka sem berjast fyrir Brexit, ítrekuðu hins vegar þá sýn að Bretland utan ESB hefði frelsi til að stýra sér sjálft, til að mynda í efna- hagsmálum. „Það er kominn tími til að brjótast út úr hinu misheppnaða Evrópusambandi,“ sagði Johnson. Þá fagnaði Nigel Farage, aðskiln- aðarsinni og formaður Sjálfstæðis- flokks (UKIP), því að loksins væri komið að kosningum. Hann sagði flokk sinn hafa barist fyrir aðskilnaði í tvo áratugi og að atkvæðagreiðslan hefði ekki verið möguleg án flokks- ins. „Stuðningsmenn okkar myndu skríða á glerbrotum til að fá að kjósa Brexit,“ sagði Farage. Niðurstöður í fyrramálið Búist er við að fyrstu tölur berist um miðnætti en endanlegar niður- stöður liggi fyrir um klukkan sex í fyrramálið. Samkvæmt meðaltali skoðana- kannana sem The Financial Times tók saman munar einu prósentu- stigi. 45 myndu kjósa áframhaldandi veru í Evrópusambandinu en 44 prósent aðskilnað. BBC gefur sömu niðurstöðu á meðan meðaltalið sem Bloomberg tók saman sýnir öfuga niðurstöðu. Vert er að hafa í huga að skoðana- kannanir fyrir þingkosningar í Bret- landi í fyrra reyndust nærri allar rangar. thorgnyr@frettabladid.is Frá kr. 49.995 m/hálft fæði innifalið MALLORCA 28. júní í 7 nætur Netverð á mann frá kr. 49.995 m.v. 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Netverð á mann frá kr. 69.995 m.v. 2 fullorðna í íbúð. Ola Tomir Aparthotel Allt að 60.000 kr. afsláttur Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. H eim sfe rð ir á ski lja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra. Bretland Bretar kjósa í dag um framtíð sambands Bretlands við Evr- ópusambandið (ESB). Valkostirnir eru tveir. Annars vegar „remain“, að vera áfram hluti af ESB, og hins vegar „leave“, aðskilnaður Bretlands frá Evrópusambandinu sem kallaður hefur verið Brexit. Kristjana Guðbrandsdóttir, blaða- maður Fréttablaðsins, sótti í gær minningarathöfn um þingkonuna Jo Cox á Trafalgartorgi í Lundúnum en hún var myrt á fimmtudaginn af einstaklingi sem var ósammála henni í Brexit-baráttunni. Cox var ötull talsmaður áframhaldandi veru Bretlands innan Evrópusam- bandsins. „Þetta var afar hjartnæm athöfn,“ sagði Kristjana en óljóst er hvort morðið á Cox muni hafa áhrif á kosningarnar í dag. Kosningabaráttan hefur verið löng og ströng og afar mjótt er á munum á milli fylkinganna tveggja. Ljóst er að Brexit myndi hafa umtalsverð áhrif á Bretland sem og Evrópusambandið. Bretar myndu, að minnsta kosti fyrst um sinn, missa aðgengi að opnum markaði ríkja ESB, varað hefur verið við því að pundið gæti veikst um allt að tuttugu prósent og íbúum annarra ríkja ESB væri ekki frjálst að flytja til Bretlands. Veikara pund kæmi sér illa fyrir Íslendinga sem fluttu rúm 70.000 tonn af fiski út til Bretlands í fyrra. Hamrað á málstaðnum Samflokksmennirnir David Came- ron, forsætisráðherra og Evrópu- sinni, og Boris Johnson, fyrrverandi borgarstjóri og aðskilnaðarsinni, fóru víða í gær og reyndu að sann- færa sem flesta. Cameron varaði við því að niður- staðan væri endanleg. Hins vegar eru kosningarnar ekki bindandi heldur gæti þingið tekið ákvörðun um að hundsa niðurstöðuna. Það þykir þó Bretar ganga að kjörborðinu í dag Kosið verður um úrsögn Bretlands úr Evrópusambandinu í dag. Hart var barist á lokametrum kosningabaráttunnar og hamrað var á málstaðnum. Afar lítill munur mælist í skoðanakönnunum en skoðanakannanir í Bretlandi hafa ekki reynst áreiðanlegar hingað til. alþingi Af þeim 39 grunnskólum sem sóttu Skólaþingið síðasta vetur eru aðeins þrír utan suðvesturhornsins. Á Skólaþinginu gefst grunnskóla- nemendum kostur á að setja sig í spor þingmanna og efla skilning sinn og þekkingu á stjórnskipulagi landsins og lýðræðislegum vinnubrögðum. Skólaþingið er kennsluver Alþingis þar sem tækifæri gefst til að setja sig í spor þingmanna. Með Skólaþinginu er komið til móts við áhuga skóla á því að koma með nemendur í vett- vangsferðir á Alþingi. Skólaþinginu er þannig ætlað að auka fjölbreytni í fræðslu um Alþingi. Hins vegar eru engir styrkir veittir til grunnskóla fjarri höfuðborgarsvæðinu til að kynnast störfum löggjafarvaldsins. Brynhildur Pétursdóttir, þing- maður Bjartrar framtíðar, segir mikil- vægt að tryggja að allir hafi jafnan aðgang að þessu námi. „Þarna fer fram mikilvæg fræðsla um Alþingi og mér sýnist aðsóknin mjög góð. Þessi fræðsla er hins vegar illa aðgengileg skólum utan höfuðborgarsvæðisins enda staðsett í miðbæ Reykjavíkur. Auðvitað eiga öll börn rétt á þessari fræðslu óháð búsetu og það verður að tryggja. T.d. mætti styrkja skóla til ferðalagsins, nú, eða gera Skólaþingið að hluta hreyfanlegt.“ Þeir þrír skólar sem sendu nem- endur utan SV-hornsins eru grunn- skólarnir á Seyðisfirði, Flúðum og á Drangsnesi. Hinir 36 grunnskól- arnir eru allir í borginni eða nágrenni hennar. Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, segist vera sammála Bryn- hildi. – sa Ójafnt aðgengi barna að Skólaþingi sökum búsetu HeilBrigðismál Tannheilsa barna á Íslandi hefur batnað til muna á síð- ustu 15 árum. Sjúkratryggingar Íslands (SÍ) hafa á árunum 2001 til 2015 tekið saman upplýsingar sem sýna fjölda barna sem leituðu til tannlæknis ár hvert ásamt hlutfallslegum fjölda viðgerðra tanna í hverju barni. Samkvæmt upplýsingunum hefur hlutfall barna sem búa við það góða tannheilsu að ekki þarf að gera við neina tönn hækkað töluvert frá árinu 2001, eða úr rúmlega 56 prósentum í rúmlega 72 prósent á síðasta ári. Þetta hlutfall hefur aldrei verið hærra sam- kvæmt SÍ. Þá hefur hlutfall viðgerðra tanna hjá börnum lækkað um nærri 60 prósent á sama tíma. Árið 2001 voru viðgerðar tennur að meðaltali 1,57 í hverju barni en á umræddu tímabili lækkaði hlutfallið niður í 0,65. Samningur um gjaldfrjálsar tann- lækningar barna tók gildi árið 2013. Markmiðið var bætt tannheilsa. – þv Færri börn þurfa að leita til tannlæknis Tannheilsa barna á Íslandi hefur batnað til muna á síðustu árum. NordicpHoTos/GeTTy skólabörn eiga misgreiðan aðgang að Alþingi. FréTTAblAðið/dANÍel Þarna fer fram mikilvæg fræðsla um Alþingi og mér sýnist aðsóknin mjög góð. Brynhildur Péturs- dóttir, alþingis- maður Heimild: Meðaltal skoðanakannana samkvæmt Financial Times ✿ meðaltal spáa n Aðskilnaður n Áframhaldandi vera í ESB n Óákveðin 43% 44% 13% evrópusinnar flugu með borða fram hjá parísar- hjólinu london eye í gær til að hvetja fólk til að kjósa áframhaldandi veru innan evrópusambandsins. Ekki er búist við því að endanlegar niðurstöður liggi fyrir fyrr en um klukkan sex í fyrra- málið. NordicpHoTos/AFp 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F i m m t U d a g U r4 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.