Fréttablaðið - 23.06.2016, Síða 20
Frá degi til dags
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is og Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is
lífið: Gyða Lóa Ólafsdóttir gydaloa@frettabladid.is ljóSmyndir: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is
Halldór
Fanney Birna
Jónsdóttir
fanney@frettabladid.is
Bretar ákveða í þjóðaratkvæðagreiðslu í dag hvort þeir yfirgefi Evrópusambandið eða verði þar áfram. Viðhorfskannanir gefa til kynna að
úrslitin verði tvísýn og þjóðin virðist skiptast í tvo jafn
stóra hópa, þar sem annar vill aukið efnahagspólitískt
sjálfstæði en hinn halda Evrópusamstarfinu áfram.
Bretland er eitt mikilvægasta viðskiptaland Íslands.
Íslendingar fluttu út vörur og þjónustu til Bretlands
fyrir meira en 120 milljarða króna á síðasta ári. Á móti
fluttum við inn vörur og þjónustu frá Bretlandi fyrir
90 milljarða. Bretar eru um 19% erlendra ferðamanna
á Íslandi og eru fjölmennastir í hópi þeirra sem sækja
okkur heim. Flugferðir milli landanna voru um 6.400
talsins á síðasta ári og um 2.200 Íslendingar eru skráðir
með lögheimili í Bretlandi.
grundvallast á eeS–samningnum
Samskipti Íslands og Bretlands grundvallast að miklu
leyti á EES-samningnum. Hann kveður á um frelsi
í viðskiptum og fjárfestingum, frjálsa búsetu fólks
og samstarf á ýmsum sviðum. Samningurinn helst
óbreyttur ef Bretar velja sér áframhaldandi veru í
Evrópusambandinu. Ef Bretar segja skilið við sam-
bandið munu þeir þurfa að semja um viðskiptakjör
og ýmis samskipti sín við aðrar þjóðir, þar með taldar
aðildarþjóðir EES-samningsins. Engar breytingar yrðu
þó á samskiptum Íslands og Bretlands í a.m.k. tvö ár frá
ákvörðun um úrsögn, samkvæmt sáttmálum ESB. Með
samhljóða ákvörðun allra aðildarríkjanna má lengja
þann tíma.
í startholunum
Íslensk stjórnvöld hafa fylgst náið með þróun mála
undanfarna mánuði og búið sig undir niðurstöðuna,
hver sem hún kann að verða. Í báðum tilvikum er
markmiðið það sama; að tryggja festu og stöðugleika
í samskiptum landanna, að viðskiptakjör verði fram-
vegis a.m.k. jafn góð og hingað til og frelsi íbúanna til
ferða og búsetu í hvoru landi fyrir sig haldist óbreytt.
Leiðirnar að því markmiði hafa verið kortlagðar og við
erum í startholunum, ef á þarf að halda.
Ísland njóti bestu kjara
Lilja
Alfreðsdóttir
utanríkisráðherra
Samskipti
Íslands og
Bretlands
grundvallast
að miklu
leyti á EES-
samningnum.
Hann kveður
á um frelsi í
viðskiptum
og fjárfest-
ingum, frjálsa
búsetu fólks
og samstarf
á ýmsum
sviðum.
15. FEBRÚAR - 3. MARS 2017 NÁNAR Á UU.IS
SUÐUR AFRÍKA
CAPE TOWN
Ævintýraferð til Suður Afríku þar sem
ferðast verður frá Cape Town um vín-
löndin upp til Klein Karoo og meðfram
ströndinni. Fararstjórar ferðarinnar eru
Bói og Villi sem bjuggu þar um áratug.
KY
NN
ING
AR
FU
ND
UR
Í D
AG
KL
. 1
7:3
0 Í
HÖ
RP
U
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann sinn fyrsta sigur á stórmóti í gær og tryggði sér þar með sæti í sextán liða úrslitum. Liðið vann hið austurríska 2-1, eins og alþjóð veit, í ótrúlegum leik á Evrópumeistaramótinu og mætir því Englendingum á mánudag.
„Þetta var hreint út sagt ótrúlegt, strákarnir hættu
ekki að berjast í dag og að gefa sig alla í þetta. Það
voru allir með fulla einbeitingu og ég held að þú
finnir hvergi annan leikmannahóp sem er jafn vel
samstilltur,“ sagði Lars Lagerbäck, annar þjálfari
íslenska landsliðsins, stuttu eftir leik.
Fyrir leikinn, og raunar þá tvo leiki sem liðið
hafði þegar spilað á mótinu án taps, var það ótrú-
legt afrek í sjálfu sér að komast á mótið. Flestir
Íslendingar hefðu almennt ekki gert neinar kröfur
til liðsins aðrar en að gera sitt besta og bera höfuðið
hátt. Árangurinn vakti athygli út fyrir landsteinana,
enda Ísland miðað við höfðatölu eins og smáþorp, í
samanburði við önnur þátttökuríki í mótinu.
En strákarnir okkar, eins og þeir eru jafnan kall-
aðir, vilja ekki vinna neina höfðatölusigra. Þeir eru
hreinir sigurvegarar. Þeir hafa sýnt heiminum hvað
hægt er að gera þrátt fyrir mótlæti og litlar líkur.
Stærsta stjarnan á mótinu sem liðið hefur mætt
hingað til er Portúgalinn Cristiano Ronaldo, en
liðið gerði jafntefli við hið portúgalska í síðustu
viku. Ronaldo var gagnrýndur töluvert fyrir hegðun
sína eftir leikinn, en hann mun hafa neitað að taka
í hönd íslensku leikmannanna, auk þess sem hann
sagði eftir leikinn að fagnaðarlætin í Íslendingunum
væru merki um lélegt hugarfar. Með orðum sínum
sameinaði leikmaðurinn heimsbyggðina í lið með
litla Íslandi.
Það er nefnilega þannig að fátt er betra en að sjá
lítilmagnann verða ofan á. Sjá Davíð sigra Golíat.
Einn allra besti leikmaður heims, sem unnið hefur
titla með bestu liðum heims og er súperstjarna langt
út fyrir raðir knattspyrnuáhugamanna náði með
athugasemdum sínum að sameina þá sem trúa á
lítilmagnann. Þá sem sækjast eftir árangri umfram
það sem hægt er að ætlast til.
Það er ekki annað hægt en að fyllast stolti þegar
fylgst er með frammistöðu landsliðsins. Auðvitað
hefur leikur þeirra verið bæði góður og slæmur, eins
og svo oft í boltanum. En staðfestan, baráttan og
leikgleðin skín úr andliti hvers einasta manns, frá
fyrirliða til varamanna og þjálfara og árangurinn
hefur verið eftir því.
Leikurinn á mánudag verður, eins og þeir sem
liðið hefur leikið á mótinu hingað til, sá stærsti í
sögunni. Enska landsliðið stendur Íslendingum
nærri, enda enska knattspyrnudeildin afar vinsæl
hér heima og margir góðkunningjar í liðinu sem
skartar hverri stórstjörnunni á fætur annarri.
Sama hvernig fer geta strákarnir okkar gengið
stoltir frá borði. Hver leikur héðan í frá er meira en
hægt var að biðja um en samtímis nákvæmlega það
sem við vonuðumst eftir og bjuggumst við. Áfram
Ísland!
Áfram Ísland
Það er nefni-
lega þannig
að fátt er
betra en að
sjá lítilmagn-
ann verða
ofan á. Sjá
Davíð sigra
Golíat.
höfðatalan jarðsungin
Þjóðarstolt Íslendinga hefur
ætíð verið mikið. Við erum og
höfum verið hreykin af eigin
afrekum á erlendri grundu og
stutt samlanda okkar. Ef gengið
hefur verið rysjótt þá höfum
við samt sem áður unnið þótt
við töpum og gjarnan minnst á
höfðatölu. En nú hefur árangur
strákanna okkar í íslenska
landsliðinu gert það að verkum
að þjóðarstolt okkar hefur náð
áður ófyrirséðum hæðum. Við
erum gjörsamlega að springa
úr stolti. Litla eyríkið, lengst
norður í Atlantshafi, hefur grýtt
höfðatölunni út í hafsauga og
stendur jafnfætis stórþjóðum.
Til hamingju með það afrek.
Stade de france > Bessastaðir
Menn eru að skrifa sögu
íslenskrar knattspyrnu í Frakk-
landi þetta sumarið. Þegar
þessu ævintýri lýkur, þótt við
vonum að því ljúki aldrei, mun
öll sveitin koma heim, lands-
liðsmenn verða sæmdir orðum
og vonandi verður hnýtt í Lars
okkar elskaða æðsta orða sem
hægt er að veita erlendum ríkis-
borgara. Össur Skarphéðinsson
kallar eftir því einnig að honum
verði veittur heiðursríkisborg-
araréttur ekki seinna en strax.
Næsti leikur landsliðsins fer
fram á mánudaginn. Áður en að
honum kemur munum við velja
okkur forseta. En íslensk þjóð
virðist vera með hugann við allt
annað. sveinn@frettabladid.is
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R20 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð
SKOÐUN