Fréttablaðið - 23.06.2016, Page 21
Charles de Gaulle forseti Frakklands 1959-1969 efaðist um að Bretar ættu heima í
ESB. Honum þóttu þeir sérlundaðir
og hallir undir Bandaríkin og taldi
ESB betur borgið án Breta. Þegar de
Gaulle féll frá 1970 sagði eftirmaður
hans, George Pompidou: Frakkland
er ekkja. Tveim árum eftir fráfall
de Gaulles var Bretum hleypt inn
í ESB. Þá var við völd í Bretlandi
ríkisstjórn Íhaldsflokksins undir
forustu Edwards Heath forsætisráð-
herra. Þjóðaratkvæðagreiðsla um
málið var haldin þrem árum síðar,
1975, þegar Verkamannaflokkurinn
hafði tekið við landstjórninni undir
forustu Harolds Wilson forsætis-
ráðherra, og lýstu 67% kjósenda sig
hlynnta inngöngunni eftir á.
Friður og vörn gegn frekari
hnignun
Rökin fyrir inngöngu Breta í ESB
voru tvíþætt. Í fyrsta lagi þótti
Bretum rétt að eiga aðild að friðar-
sambandi sem var ætlað að binda
Þjóðverja og aðrar Evrópuþjóðir
svo traustum böndum að Þjóðverjar
myndu aldrei aftur hefja stríð gegn
grönnum sínum. Í annan stað hafði
Bretland dregizt aftur úr öðrum
þjóðum í efnahagslegu tilliti, ekki
bara Bandaríkjunum heldur einnig
Frakklandi og Þýzkalandi. Efna-
hagshnignun Bretlands var á allra
vörum. Heimsveldið þar sem sólin
hneig aldrei til viðar leið undir
lok eftir heimsstyrjöldina síðari.
Nýlendurnar í Afríku og Asíu tóku
sér þá allar sjálfstæði, fyrst Indland
1947 og önnur Asíulönd, síðan
Gana 1956 og önnur Afríkulönd.
Um hnignun Bretlands miðað
við önnur Evrópulönd eftir stríð má
hafa margt til marks. Hér skulum
við skoða þjóðartekjur á hverja
vinnustund, öðru nafni framleiðni
vinnuafls, einn skásta lífskjara-
kvarða sem völ er á. Dragðu nú
andann djúpt, lesandi góður, og
búðu þig undir talnahríð. Heimildin
er hagtölur hagfræðinga í Gronin-
gen-háskóla í Hollandi sem hafa
sérhæft sig í slíkum tölum.
Árið 1950 voru tekjur á hverja
vinnustund á Bretlandi 41% hærri
en í Frakklandi og 85% hærri en
í Þýzkalandi sem hafði tapað
stríðinu. Brezka ljónið hafði líka
komið laskað út úr styrjöldinni en
bar samt af Frökkum og Þjóðverjum
í efnahagslegu tilliti. Eftir 1950 dróg-
ust Bretar hratt aftur úr Frökkum og
Þjóðverjum. Árið 1962 fóru tekjur á
hverja vinnustund í Frakklandi fram
úr Bretlandi og 1965 fóru tekjur
á hverja vinnustund í Þýzkalandi
einnig fram úr Bretlandi. Hnign-
unin vatt upp á sig. Þegar Bretar
gengu inn í ESB 1973 voru tekjur á
hverja brezka vinnustund komnar
niður í 81% af tekjum á hverja
franska vinnustund og niður í 90%
af tekjum á hverja þýzka vinnu-
stund. Tuttugu árum síðar, 1992,
voru tekjur á hverja vinnustund á
Bretlandi aðeins 76% af tekjum á
hverja vinnustund í Frakklandi og
Þýzkalandi. Hlutföllin hafa haldizt
nær óhögguð frá þeim tíma.
Margréti Thatcher að þakka? Nei
Einhverjir kynnu að halda að ríkis-
stjórn Íhaldsflokksins undir forustu
Margrétar Thatcher og Johns Major
1979-1997 hafi átt mestan þátt í
að stöðva hnignun Bretlands, en
hagtölur styðja ekki þá skoðun. Töl-
fræðiathuganir brasilíska hagfræð-
ingsins Nauros Campos, prófessors
í London, og samverkamanna hans
tímasetja umskiptin um 1973 þegar
Bretar gengu í ESB, ekki 1979 þegar
Thatcher tók við landstjórninni.
Campos og félagar miða við þjóðar-
tekjur á mann frekar en vinnustund
eins og ég geri að framan.
Samanburður við Bandaríkin
Árið 1950 voru tekjur á hverja
brezka vinnustund 61% af tekjum
á hverja vinnustund í Bandaríkj-
unum. Kaninn stóð með pálmann í
höndunum eftir stríð. Þegar Bretar
gengu í ESB 1973 hafði hlutfallið
milli Bretlands og Bandaríkjanna
mjakazt upp í 63%. Síðan þá hafa
Bretar smám saman dregið á
Bandaríkjamenn. Tekjur á hverja
vinnustund á Bretlandi 2015 voru
75% af tekjum á hverja vinnustund
í Bandaríkjunum líkt og 1992 og
78% af tekjum á hverja vinnu-
stund í Frakklandi og Þýzkalandi.
Hlutföllin milli Bretlands annars
vegar og Bandaríkjanna, Frakk-
lands og Þýzkalands hins vegar hafa
því haldizt nær óbreytt í aldar-
fjórðung. Evrópa hefur eigi að síður
dregið á Bandaríkin frá stríðslokum.
Þjóðartekjur á hverja vinnustund
í Frakklandi sem höfðu verið 43%
af tekjum á hverja vinnustund í
Bandaríkjunum 1950 voru t.d.
orðnar jafnháar og í Bandaríkj-
unum 1988 og hafa verið hærri en
þar vestra síðan þá ef allra síðustu
ár sem hafa verið Evrópu erfið eru
undan skilin (Frakkland liggur nú
4% undir Bandaríkjunum á þennan
kvarða). ESB-löndin njóta skjóls
hvert af öðru og hafa því flest tekið
svipuðum framförum undangeng-
inn aldarfjórðung.
Efnahagsmál eða stjórnmál?
Yfirgnæfandi hluti brezkra hag-
fræðinga mun í dag greiða atkvæði
gegn úrsögn Breta úr ESB í samræmi
við túlkun hagsögunnar hér að
framan. Fleira hangir þó á spýtunni
en efnahagssjónarmið. Evrópa
hefur undangengna áratugi tekið
stakkaskiptum á flestum sviðum.
Aukin viðskipti innan álfunnar fyrir
tilstilli ESB bæta lífskjör á heildina
litið. Fyrir tilstuðlan ESB hefur
tekizt að leysa upp einokunarhringa
sem einstök lönd réðu ekki við.
Ferðalög og fólksflutningar ganga
mun greiðar en áður. ESB-löndum
hefur tekizt að halda friðinn. Stríður
straumur flóttamanna til Evrópu
vitnar um sterkt aðdráttarafl
álfunnar en hefur einnig ýtt undir
þjóðrembu og daður við fasisma.
Fari svo að Bretar kjósi í dag að
ganga úr ESB munu Skotar varla una
því að Englendingar dragi þá með
sér út úr ESB. Norður-Írar munu
einnig hugsa sinn gang. Ef Eng-
land byrjar aftur að dragast aftur úr
Frakklandi og Þýzkalandi, verður
Norður-Írlandi þá ekki betur borgið
ef það sameinast Írlandi til að geta
verið áfram í ESB? Hvað gerir Wales
þá? Þessu þurfa brezkir kjósendur
að velta fyrir sér og einnig hættunni
á að úrsögn Bretlands úr ESB leiði
til úrsagnar annarra landa. Fækkun
aðildarlanda ESB myndi veikja
Evrópu inn á við jafnt sem út á við
og auka hættuna á ýfingum og jafn-
vel ófriði.
Bretar kjósa um ESB
Þorvaldur
Gylfason
prófessor
Í dag
Fari svo að Bretar kjósi í
dag að ganga úr ESB munu
Skotar varla una því að
Englendingar dragi þá með
sér út úr ESB. Norður-Írar
munu einnig hugsa sinn
gang. Ef England byrjar aftur
að dragast aftur úr Frakk-
landi og Þýzkalandi, verður
Norður-Írlandi þá ekki betur
borgið ef það sameinast Ír-
landi til að geta verið áfram í
ESB? Hvað gerir Wales þá?
Björgvin
Guðmundsson
viðskipta
fræðingur
Mannréttindamál eru í ólestri hér á landi. Ég hef bent á það í greinum
mínum, að það sé brot á mann-
réttindum að skammta öldruðum
og öryrkjum svo nauman lífeyri, að
þeir geti ekki lifað af honum; þeim
sem eingöngu hafa tekjur frá TR.
Nú hefur það verið staðfest af
mannréttindafulltrúa Evrópu-
ráðsins, Nils Muiznieks, að Ísland
stendur langt að baki grannlönd-
unum í mannréttindamálum.
Hann var hér á ferð fyrir skömmu
og gagnrýndi þá ástand mannrétt-
indamála hér. Gagnrýndi hann,
að Ísland hefði enn ekki fullgilt
samning Sameinuðu þjóðanna
um réttindi fatlaðra. Ísland undir-
ritaði þennan samning fyrir níu
árum. Nær öll grannríki okkar hafa
fullgilt hann. 164 ríki hafa fullgilt
samninginn.
Á meðan mannréttindafulltrúi
Evrópuráðsins dvaldist hér var
rætt við Eygló Harðardóttur félags-
málaráðherra um það hvað liði full-
gildingu samningsins um réttindi
fatlaðra. Hún sagði, að unnið hefði
verið að lagasetningu til undirbún-
ings fullgildingu. Ýmis ríki hefðu
fyrst fullgilt samninginn en síðan
sett nauðsynleg lög. Var að heyra á
henni að fara mætti þá leið. Málið
heyrði undir innanríkisráðherra.
Getur enn dregist í langan tíma
Haft er eftir Ólöfu Nordal innan-
ríkisráðherra að unnið verði að
setningu nauðsynlegra laga til þess
að fullgilda i samning SÞ. Var ljóst,
að hún mundi leggjast gegn því
að fullgilda fyrst samninginn. Það
þýðir, að enn getur það dregist í
langan tíma, að samningur SÞ um
réttindi fatlaðra verði fullgiltur hér.
Ég tel að fara eigi þá leið, sem Eygló
minntist á: Að fullgilda samninginn
fyrst og setja síðan nauðsynleg lög.
Evrópusambandið og grannlönd
okkar hafa lögfest samninga, sem
banna hvers konar mismunun.
Fyrir fjórum árum var hér mann-
réttindafulltrúi á ferð, sem lagði
áherslu á, að lögfestur yrði sams
konar samningur hér. Það hefur
ekki verið gert enn.
Mikil mismunun hér
Mismunun er mikil hér og ekki
síst gegn öldruðum og öryrkjum.
Það er stöðugt verið að mismuna
þeim á öllum sviðum, í heilbrigðis-
stofnunum, í starfsmannamálum,
í kjaramálum og á fleiri sviðum.
Aldraðir sæta afgangi í heilbrigðis-
stofnunum. Þeir yngri ganga fyrir
þar. Aldraðir á hjúkrunarheimilum
fá ekki alltaf sömu spítalameðferð
og þeir, sem vistaðir eru á spítölum.
Skilja aldraða eftir
Í kjaramálum gera stjórnvöld sér
lítið fyrir og skilja aldraða eftir
þegar allir aðrir fá miklar kaup-
hækkanir eins og gerðist árið 2015.
Heita má, að allar stéttir og hópar
nema aldraðir og öryrkjar hafi þá
fengið 14-40 prósenta kauphækk-
un. Aldraðir og öryrkjar voru einir
skildir eftir í átta mánuði. Það var
hreint mannréttindabrot.
Mannréttindamál í ólestri
hér á landi
Nú hefur það verið staðfest
af mannréttindafulltrúa Evr-
ópuráðsins, Nils Muiznieks,
að Ísland stendur langt að
baki grannlöndunum í
mannréttindamálum.
Gleraugnaverslunin þín
MJÓDDIN
S: 587 2123
FJÖRÐUR
S: 555 4789
SELFOSS
S:482 3949
2015 POSTER/DURATRAN IMAGE CHOICES
Imagery expires December 31, 2015
UNITED STATES OR INTERNATIONAL
VW IMAGE 5
Styles featured: Nolita
*Vera Wang Salon- Available at
select locatons.
VW IMAGE 5
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 5
Styles featured: V367
VW IMAGE 1
Styles featured: Inanna
VW IMAGE 2
Styles featured: V430
V
43
0
ST
Y
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
VW IMAGE 3
Styles featured: V368
O
LY
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
V
36
7
ST
Y
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
IN
A
N
N
A
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
N
O
LI
TA
S
TY
LE
S
H
O
W
N
. V
ER
A
W
A
N
G
.C
O
M
PI
PA
R\
TB
W
A
•
S
ÍA
•
1
61
57
8
Sólgler
með styrkleika
fylgja kaupum
á gleraugum
í Augastað
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 2 3 . j ú n Í 2 0 1 6