Fréttablaðið - 23.06.2016, Qupperneq 24
Árið 2012 kynnti nýsköpunarfyrirtækið Línudans ehf. (www.facebook.com/green
grids) Landsneti nýja mastursgerð
sem byggir á nýrri hugmyndafræði
um hönnun og þróun raforku
flutningskerfa (sjá mynd). Þetta
er afrakstur Rannísverkefnis
sem fjármagnað var með íslensku
skattfé. Fjöldi annarra íslenskra og
erlendra aðila hefur fjárfest tíma og
fjármuni í verkefni Línudans. Nýja
mastursgerðin var kynnt nokkrum
starfsmönnum Landsnets, þar á
meðal þáverandi forstjóra, Þórði
Guðmundssyni. Einnig fóru fram
kynningar í ýmsum miðlum.
Á haustdögum 2015 kynnti
núverandi forstjóri Landsnets,
Guðmundur Ingi Ásmundsson,
„nýja kynslóð háspennumastra“ í
tímaritinu Sóknarfæri (sjá mynd).
Svo vill til að þessi möstur hafa
sömu ásýnd og Línudansmöstrin
sem kynnt höfðu verið ríkisfyrir
tækinu þremur árum fyrr. Fram að
þessu hafa möstur Landsnets haft
allt aðra ásýnd en eiga nú skyndi
lega að taka á sig sömu mynd –
án samráðs við Línudans. Einnig
vill svo merkilega til að Landsnet
kaupir ráðgjöf um þessa svokölluðu
nýju kynslóð háspennumastra af
nýjum vinnuveitanda Þórðar Guð
mundssonar – fyrrverandi forstjóra
Landsnets.
Enn önnur „tilviljun“ lýsir sér í því
að hin nýja mastursgerð Þórðar Guð
mundssonar og félaga hefur fengið
fastan stað í nýrri áætlun um flutn
ingskerfi framtíðarinnar. Þannig er
notkun í miklu magni nánast gull
tryggð, sem ætti nú ekki að rýra gildi
samninganna sem Þórður og félagar
hafa gert við Landsnet. Hér kunna
menn aldeilis til verka, enda bara rétt
rúmt ár síðan Þórður Guðmundsson
lét af störfum sem forstjóri Lands
nets. Ennfremur er það ótrúleg til
viljun að Landsnetsmastursgerðin
nýja – sem er eins og Línudansmast
ursgerðin sem kynnt var Þórði Guð
mundssyni þá sem forstjóra Lands
nets – fær skírskotun í dansþema
og heitir Ballerína. Línudans og
Ballerína. Þetta hlýtur að vera merki
um einstaklega frjótt ímyndunarafl
hinna útvöldu ráðgjafa Landsnets,
svona burtséð frá augljósum sam
eiginlegum útlitseinkennum.
Hann er aldeilis „heppinn“ hann
Þórður Guðmundsson að fá svona
fína samninga hjá Landsneti, í gegn
um fyrirtæki félaga síns. Og það bara
örstuttu eftir að hann hættir sem for
stjóri Landsnets. Það hefur vafalaust
ekki skaðað að núverandi forstjóri,
Guðmundur Ingi Ásmundsson, var
aðstoðarforstjóri í tíð Þórðar Guð
mundssonar sem forstjóra. Hver þarf
á samkeppni að halda þegar „góð
tengslanet“ eru annars vegar?
Allt eru þetta hreint makalausar til
viljanir auðvitað, við hljótum öll að
sjá það? Og ekki allt upptalið enn, því
tímasetning samninganna svona rétt
við upphaf stærstu fjárfestingarhrinu
Íslandssögunnar á þessu sviði hefði
ekki getað verið betri fyrir þá félaga;
100 milljarða uppbygging nýrra raf
orkuflutningskerfa á Íslandi. Gera
má ráð fyrir að Þórður Guðmunds
son hafi nú haft sitt að segja við inn
leiðingu þessarar risafjárfestingar
ríkisfyrirtækisins sem forstjóri þess,
hann er jú bara nýhættur sem slíkur.
Og svo eins og fyrir kraftaverk er
hann bara hinum megin við borðið
að taka við verkefnum frá fyrrverandi
aðstoðarmanni sínum, Guðmundi
Inga Ásmundssyni – varðandi sömu
risafjárfestingu. Aldeilis heppnir þeir
félagar. Er ríkisábyrgð á nýju 100
milljarða kökunni sem þessir kappar
eru búnir að malla saman? Án þess að
sagt sé að þetta sé drullumall.
Án útboðs og samkeppni
Við hin erum ekki eins „heppin“ og
Þórður og vinir hans. En þrátt fyrir
alla „heppnina“ setja þessir menn
í krafti stöðu sinnar markvisst
öðrum stólinn fyrir dyrnar – undir
verndarvæng ráðherra nýsköpunar,
Ragnheiðar Elínar Árnadóttur. Við
í Línudansi höfum þurft að berjast
fyrir tilverurétti okkar allt frá árinu
2009 – vegna andstöðu Þórðar Guð
mundssonar í tíð hans sem forstjóra.
Jú, mikið rétt, enn ein tilviljunin.
Hvað eru þetta þá orðnar margar
tilviljanir? Undirstrikað skal hér að
Landsnet er eini kaupandi vörunnar
sem íslenska nýsköpunarfyrirtækið
Línudans hefur varið átta árum í að
þróa. Viðbrögð ráðherra nýsköp
unar við þessari 100 milljarða fjár
festingu; fullkomið skilningsleysi.
Frá upphafi hefur Línudans
komið að lokuðum dyrum hjá
Landsneti. Tilviljun? Kannski ekki,
eftir allt saman. Enda eru Þórður
Guðmundsson, fyrrverandi for
stjóri Landsnets, og vinur hans og nú
vinnuveitandi, Árni Björn Jónasson,
í dag í hópi „hinna útvöldu“; þeir
völdu sig sjálfir til þess hlutverks
að færa Íslendingum „nýja kynslóð
háspennumastra“. Án útboðs og án
samkeppni. Og með því að traðka á
öðrum í leiðinni.
Ef þetta er ekki röð tilviljana,
hvað er þetta þá? Bara „venjuleg
spilling“? Eða verulega útpæld og
skipulögð spilling á sérsviði sem
hefur miklar og víðtækar afleiðingar
fyrir umhverfi og efnahag Íslands?
Getum við hin ekki líka valið okkur
sjálf til stórverkefna og fengið vel
greitt fyrir, óháð því hvort um sé að
ræða góðar eða vondar tæknilegar
lausnir?
Hvernig skilgreinir maður aftur
spillingu? Ég veit það ekki lengur.
Miðnæturhlaup Suzuki fer fram að kvöldi
23.júní 2016 í tuttugasta og órða sinn.
Hlaupið hefst og endar í Laugardalnum. Að því
loknu er öllum þátttakendum boðið í sund.
Skráning og afhending hlaupagagna fer fram í
Laugardalshöll í dag frá kl.16 og þar til 45
mínútum fyrir hverja ræsingu.
UPPLÝSINGAR Á MARATHON.IS
MIÐNÆTURHLAUP
SUZUKI Í KVÖLD
Suzuki er stoltur samstarfsaðili Miðnæturhlaups Suzuki og Reykjavíkurmaraþons
2 1 km
Ræst kl.21:20
10 km
Ræst kl.22:00
5 km
Ræst kl.21:50
Landsnet: Stjórnendur í friðhelgi sérhagsmuna
Magnús
Rannver
Rafnsson
verkfræðingur
Myndir af umræddum möstrum: Vinstra megin er mynd af „nýrri kynslóð háspennumastra“, sem var kynnt haustið 2015 af
forstjóra Landsnets, Guðmundi Inga Ásmundssyni. Hægra megin er mynd af Línudans-háspennumöstrum sem kynnt voru
Landsneti 2012. Við vitum öll hvernig möstur Landsnets hafa litið út hingað til.
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R24 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð