Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 30

Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 30
Framleiðsla á eldislaxi hefur verið ævintýri líkust í Noregi undanfarna áratugi. Fram- leiðslan hefur aukist um nærri 10% á ári að meðaltali síðastliðin 20 ár og fór yfir milljón tonn í fyrra. Iðnaðurinn skapar mikinn fjölda starfa um allan Noreg og eru þau sérstaklega kærkomin í mörgum minni samfélögum norður eftir allri og langri stönd landsins. Eðli lax- eldis er nefnilega með þeim hætti að flest störf verða að vera þar sem framleiðslan á sér stað, nefnilega í strjálbýli á strandsvæðum. Á síðasta ári nam verðmæti eldisfisks í Noregi rúmlega 700 milljörðum íslenskra króna og fjöldi beinna starfa við matfisk- og seiðaeldið var 6.241. Eru þá ótalin öll þau störf sem skapast við fóðurframleiðslu, slátrun, flutn- inga ýmiss konar og aðra þjónustu sem eldið þarfnast. Nú er svo komið að vöxturinn hefur minnkað vegna vandræða með sérstaklega laxalús sem hefur verið erfitt að halda í skefjum og hafa matvælayfirvöld látið slátra Nýting sóknarfæra í laxeldi á Íslandi H V ÍT A H Ú SI Ð / S ÍA fiski þar sem vandræðin eru hvað mest og sett skorður við framleiðslu á einstöku svæðum. Norsk stjórn- völd eru samt staðráðin í að greinin haldi áfram að vaxa og er markið sett hátt. Ekki minna en 5 milljónir tonna af laxi er áætlað að framleiða árið 2050 – og byggist þessi spá á helmingi minni vexti en verið hefur undanfarin ár, „aðeins“ fimm pró- sent  á ári. Til að ná þessum vexti er aðalatriðið fyrir Norðmenn að minnka áhrif laxalúsarinnar og eins að stuðla að rannsóknum og áfram- haldandi þróunarvinnu á öllum sviðum eldis. Þegar eru komin fram svokölluð þróunarleyfi þar sem áhersla er lögð á nýjungar í fram- leiðslutækni og verða þau væntan- lega mörg og margvísleg þegar fram líða stundir. Ólíkt umhverfi á Íslandi Íslensk strandsvæði eru að mörgu leyti hentug fyrir laxeldi á sama hátt og strandsvæði Noregs. Líffræði- legar forsendur eru góðar og þó að sjávarhiti sé hér lægri og vöxtur fisksins þar af leiðandi hægari, þá er sjávarhiti við Íslandsstrendur að jafnaði of lágur til þess að laxa- lúsin nái fótfestu og geti orðið til vandræða. Í Noregi er það aðallega villtur lax og ætluð áhrif eldislaxins á genamengi hans sem eru helsta áhyggjuefnið þegar rætt er um aukið eldi. Þess vegna hafa ákveðin svæði með fjörðum og flóum verið lokuð fyrir eldi. Samt eru það að verulegu leyti margar aðrar ástæður sem hafa staðið villta laxinum fyrir þrifum í Noregi, til dæmis vatnsaflsvirkjanir og áhrif þeirra ásamt súru regni og eyðileggingu gotsvæða í ánum af völdum flóða og mannvirkjagerða. Íslenska varúðarreglan Á Íslandi hafa stjórnvöld þegar lokað miklum meirihluta strand- svæða sem að óbreyttu þættu afar hentug til laxeldis. Þar má nefna fjölda flóa: Faxaflóa ásamt Breiða- firði, og mestallt Norðurland, svo sem Húnaflóa, Skagafjörð og Skálfanda. Á Austurlandi eru Þistil- fjörður og svæðið frá Langanesi allt suður til Glettinganess einnig lokuð fyrir strandeldi. Íslendingar hafa gengið talsvert lengra með setningu strangra reglna en Norð- menn hafa gert til verndar villtum laxastofnum. Í raun er tilefni til að spyrja sig hvort íslenska leiðin sé það ströng að hún standi eðlilegum vexti greinarinnar fyrir þrifum. Um það má að sjálfsögðu deila, en af þeim sökum er þó afar mikilvægt að nýta sem best þau svæði hérlendis sem þó eru aðgengileg og henta vel til strandeldis, það er Vestfirði og Austfirði. Sé rétt á haldið munu frekari sóknarfæri skapast í atvinnu- greininni á Íslandi. Langtímahvíld eldissvæðanna Það er eflaust til mikils láns fyrir íslensk eldisfyirtæki að norski bún- aðarstaðallinn skuli hafa verið inn- leiddur fyrir eldiskvíar og tengdan búnað. Norski búnaðarstaðallinn dregur verulega úr líkum á slysa- sleppingum sem bæði er áhyggju- efni varðandi villtu stofnana og eins getur valdið umtalsverðu fjárhagstjóni fyrir eldisfyrirtækin. Einnig fá eldissvæðin hér á landi ákveðna langtímahvíld með reglu- legu millibili á milli þess sem fiskur er í kvíunum, sem einnig er að norskri fyrirmynd og sem hefur gefist vel. Með þessu fær lífríki svæðanna tíma til að jafna sig að fullu hafi eldið haft áhrif sem ekki eru æskileg til lengri tíma litið. Aukið eldi á hentugum svæðum, svæðastýring, góður búnaður og virkt eftirlit eru góðar forsendur fyrir því að skapa arðbær störf á landsbyggðinni með atvinnugrein sem bæði er vistvæn og á sér mikla möguleika í framtíðinni. Sjá nánar fyrirlestur sem fluttur var nýlega á Ísafirði (smellið á „show all con- tent“ þegar vafri biður um leyfi til að sjá kort): bit.ly/fiskelditroms. Aukið eldi á hentugum svæð- um, svæðastýring, góður bún- aður og virkt eftirlit eru góðar forsendur fyrir því að skapa arðbær störf á landsbyggðinni með atvinnugrein sem bæði er vistvæn og á sér mikla mögu- leika í framtíðinni. Gunnar Davíðsson sjávarútvegs­ fræðingur M. Sc. og deild­ arstjóri atvinnu­ þróunardeildar fylkisstjórnar Tromsfylkis í Norður­Noregi 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R30 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.