Fréttablaðið - 23.06.2016, Síða 30
Framleiðsla á eldislaxi hefur verið ævintýri líkust í Noregi undanfarna áratugi. Fram-
leiðslan hefur aukist um nærri 10%
á ári að meðaltali síðastliðin 20
ár og fór yfir milljón tonn í fyrra.
Iðnaðurinn skapar mikinn fjölda
starfa um allan Noreg og eru þau
sérstaklega kærkomin í mörgum
minni samfélögum norður eftir allri
og langri stönd landsins. Eðli lax-
eldis er nefnilega með þeim hætti
að flest störf verða að vera þar sem
framleiðslan á sér stað, nefnilega í
strjálbýli á strandsvæðum. Á síðasta
ári nam verðmæti eldisfisks í Noregi
rúmlega 700 milljörðum íslenskra
króna og fjöldi beinna starfa við
matfisk- og seiðaeldið var 6.241. Eru
þá ótalin öll þau störf sem skapast
við fóðurframleiðslu, slátrun, flutn-
inga ýmiss konar og aðra þjónustu
sem eldið þarfnast.
Nú er svo komið að vöxturinn
hefur minnkað vegna vandræða
með sérstaklega laxalús sem hefur
verið erfitt að halda í skefjum og
hafa matvælayfirvöld látið slátra
Nýting sóknarfæra í laxeldi á Íslandi
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
fiski þar sem vandræðin eru hvað
mest og sett skorður við framleiðslu
á einstöku svæðum. Norsk stjórn-
völd eru samt staðráðin í að greinin
haldi áfram að vaxa og er markið
sett hátt. Ekki minna en 5 milljónir
tonna af laxi er áætlað að framleiða
árið 2050 – og byggist þessi spá á
helmingi minni vexti en verið hefur
undanfarin ár, „aðeins“ fimm pró-
sent á ári. Til að ná þessum vexti
er aðalatriðið fyrir Norðmenn að
minnka áhrif laxalúsarinnar og eins
að stuðla að rannsóknum og áfram-
haldandi þróunarvinnu á öllum
sviðum eldis. Þegar eru komin fram
svokölluð þróunarleyfi þar sem
áhersla er lögð á nýjungar í fram-
leiðslutækni og verða þau væntan-
lega mörg og margvísleg þegar fram
líða stundir.
Ólíkt umhverfi á Íslandi
Íslensk strandsvæði eru að mörgu
leyti hentug fyrir laxeldi á sama hátt
og strandsvæði Noregs. Líffræði-
legar forsendur eru góðar og þó
að sjávarhiti sé hér lægri og vöxtur
fisksins þar af leiðandi hægari, þá
er sjávarhiti við Íslandsstrendur
að jafnaði of lágur til þess að laxa-
lúsin nái fótfestu og geti orðið til
vandræða. Í Noregi er það aðallega
villtur lax og ætluð áhrif eldislaxins
á genamengi hans sem eru helsta
áhyggjuefnið þegar rætt er um aukið
eldi. Þess vegna hafa ákveðin svæði
með fjörðum og flóum verið lokuð
fyrir eldi. Samt eru það að verulegu
leyti margar aðrar ástæður sem hafa
staðið villta laxinum fyrir þrifum í
Noregi, til dæmis vatnsaflsvirkjanir
og áhrif þeirra ásamt súru regni og
eyðileggingu gotsvæða í ánum af
völdum flóða og mannvirkjagerða.
Íslenska varúðarreglan
Á Íslandi hafa stjórnvöld þegar
lokað miklum meirihluta strand-
svæða sem að óbreyttu þættu afar
hentug til laxeldis. Þar má nefna
fjölda flóa: Faxaflóa ásamt Breiða-
firði, og mestallt Norðurland,
svo sem Húnaflóa, Skagafjörð og
Skálfanda. Á Austurlandi eru Þistil-
fjörður og svæðið frá Langanesi
allt suður til Glettinganess einnig
lokuð fyrir strandeldi. Íslendingar
hafa gengið talsvert lengra með
setningu strangra reglna en Norð-
menn hafa gert til verndar villtum
laxastofnum. Í raun er tilefni til að
spyrja sig hvort íslenska leiðin sé
það ströng að hún standi eðlilegum
vexti greinarinnar fyrir þrifum. Um
það má að sjálfsögðu deila, en af
þeim sökum er þó afar mikilvægt að
nýta sem best þau svæði hérlendis
sem þó eru aðgengileg og henta
vel til strandeldis, það er Vestfirði
og Austfirði. Sé rétt á haldið munu
frekari sóknarfæri skapast í atvinnu-
greininni á Íslandi.
Langtímahvíld eldissvæðanna
Það er eflaust til mikils láns fyrir
íslensk eldisfyirtæki að norski bún-
aðarstaðallinn skuli hafa verið inn-
leiddur fyrir eldiskvíar og tengdan
búnað. Norski búnaðarstaðallinn
dregur verulega úr líkum á slysa-
sleppingum sem bæði er áhyggju-
efni varðandi villtu stofnana og
eins getur valdið umtalsverðu
fjárhagstjóni fyrir eldisfyrirtækin.
Einnig fá eldissvæðin hér á landi
ákveðna langtímahvíld með reglu-
legu millibili á milli þess sem
fiskur er í kvíunum, sem einnig er
að norskri fyrirmynd og sem hefur
gefist vel. Með þessu fær lífríki
svæðanna tíma til að jafna sig að
fullu hafi eldið haft áhrif sem ekki
eru æskileg til lengri tíma litið.
Aukið eldi á hentugum svæðum,
svæðastýring, góður búnaður og
virkt eftirlit eru góðar forsendur
fyrir því að skapa arðbær störf á
landsbyggðinni með atvinnugrein
sem bæði er vistvæn og á sér mikla
möguleika í framtíðinni. Sjá nánar
fyrirlestur sem fluttur var nýlega á
Ísafirði (smellið á „show all con-
tent“ þegar vafri biður um leyfi til
að sjá kort): bit.ly/fiskelditroms.
Aukið eldi á hentugum svæð-
um, svæðastýring, góður bún-
aður og virkt eftirlit eru góðar
forsendur fyrir því að skapa
arðbær störf á landsbyggðinni
með atvinnugrein sem bæði er
vistvæn og á sér mikla mögu-
leika í framtíðinni.
Gunnar
Davíðsson
sjávarútvegs
fræðingur
M. Sc. og deild
arstjóri atvinnu
þróunardeildar
fylkisstjórnar
Tromsfylkis í
NorðurNoregi
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R30 s k o ð U n ∙ F R É T T A B L A ð I ð