Fréttablaðið - 23.06.2016, Side 36
Sólseturshátíðin í Garði hefst
formlega í dag og stendur alla
helgina en þetta verður í tólfta
sinn sem hátíðin fer fram. Dag-
skráin verður fjölbreytt og
skemmtileg og má þar nefna
stuttar gönguferðir, menningar-
og sögutengda fræðslu fyrir börn
og fullorðna, fjöruferð fyrir börn-
in, leiki og leiktæki, tónlistar-
atriði, málverkasýningar og varð-
eldur kveiktur.
„Sólseturshátíðin er fjöl-
skylduhátíð sem við Garðbú-
ar getum verið stolt af,“ segir
Guðlaug Helga Sigurðardótt-
ir, formaður Knattspyrnufélags-
ins Víðis sem sem sér um fram-
kvæmd hátíðarinnar en Víðir
fagnar einmitt áttatíu ára af-
mæli í ár. „Sólseturshátíð var
haldin í fyrsta skipti árið 2005 en
þetta er sjötta árið í röð sem við
stöndum að framkvæmd henn-
ar. Hátíðin hefur farið stækk-
andi og er þetta þriðja árið í röð
sem við erum með dagskrá alla
vikuna en á mánudag var karla-
kvöld í sundlauginni, í fyrrakvöld
var kvennakvöld þar og í gær-
kvöld var farin fróðleiksganga
um Garðinn með Herði Gíslasyni
frá Sólbakka.“
Hverfin skreytt
Bærinn verður settur í hátíðar-
búning af íbúum í hverri götu og
honum skipt upp í hverfi. Hvert
hverfi skreytir svo í sínum lit,
Rauða hverfið, Gula hverfið,
Appelsínugula hverfið og Græna
hverfið, og verða veitt verðlaun
fyrir best skreytta húsið. „Íbúar
hverfanna eru hvattir til að gera
þetta saman. Þetta er skemmti-
legt og samkenndin í bænum
eykst. Á laugardaginn hittast
síðan allir bæjarbúar í götugrilli
og hafa gaman saman,“ segir
Guðlaug.
eittHvað fyrir alla
Dagskráin heldur svo áfram í
dag við íþróttahúsið þar sem
Brúðubíllinn kemur meðal ann-
ars, boccia-mót fyrir fjölskyld-
una verður haldið og Sólset-
urshátíðar-spinning. „Á hátíðinni
verður líka golfmót og blakmót
fyrir bæði vana og byrjendur,
miðnætur messa sem alltaf er vel
mætt í og ýmislegt fleira. Aðal-
hátíðin verður á laugardag þar
sem byrjað verður strax klukk-
an tíu með Sólseturshátíðar-
hlaupi. Svo verður dagskrá úti
við Garðskagann frá klukkan tvö
yfir allan daginn og aftur klukk-
an hálf níu um kvöldið þar sem
koma fram meðal annarra Bjart-
mar Guðlaugsson, Ingó Veðurguð,
Hljómsveitin Valdimar, Herra
Hnetusmjör og Eldeyjarkórinn
sem er kór eldri borgara á Suður-
nesjum. Þetta er mjög vegleg og
fjölbreytt dagskrá hjá okkur og
við reynum að hafa hana þannig
að hún höfði til allra aldurshópa,“
útskýrir Guðlaug.
einstök sólsetur
Á Garðskaga er góð aðstaða fyrir
tjöld, tjaldvagna og húsbíla. „Við
höfum verið svo ótrúlega hepp-
in með veður síðustu ár, það hafa
komið á milli tvö og þrjú þús-
und manns að heimsækja okkur
og alltaf bætist við fjölda þeirra
sem gista.“
Sólsetrið á Garðskaga er ein-
stök sjón og gerist ekki víða feg-
urra en við Garðskagavita. Tíma-
setning hátíðarinnar er vel við
hæfi þar sem sumarsólstöður
eru nýafstaðnar og sólsetrið gyll-
ir hafið á meðan. „Það er algjör-
lega ómissandi fyrir alla að sjá
sólsetrið hér, það er algjört sjón-
arspil hérna stundum,“ segir Guð-
laug og brosir.
liljabjork@365.is
eittHvað fyrir alla
á sólsetursHátíð
Allir geta fundið sér eitthvað til skemmtunar á Sólseturshátíðinni sem
haldin verður um helgina í Garði. Hátíðin er haldin á Garðskaga við
góðar aðstæður, í fallegu umhverfi með fjölbreyttri dagskrá.
Það verður margt um að vera á Sólseturshátíðinni í Garði og allir ættu að finna sér
þar eitthvað til skemmtunar.
Sólsetrið á Garðskaga er einstök sjón og gerist ekki víða fegurra en við Garðskagavita.
Guðlaug Helga Sigurðardóttir, for-
maður Knattspyrnufélagsins Víðis,
ásamt nöfnu sinni.
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R6 F ó l k ∙ k y n n I n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X X
Bæjarlind 1-3
201 Kópavogur
s: 571-5464
Vertu einstök – eins og þú ert
stærðir 38-52
my styleStærðir 38-52
Netverslun á tiskuhus.is
Smart föt fyrir
smart konur
Fa
rv
i.i
s
//
0
61
6
KIMONO
7.495 kr.
VIÐ FLYTJUM ÞÉR
Fréttir Stöðvar 2, í opinni dagskrá alla daga vikunnar, alla daga ársins, kl. 18.30. FRÉTTASTOFA
FRÉTTIRNAR
ALLA DAGA VIKUNNAR Í OPINNI DAGSKRÁ KL. 18.30
∙ k y n n I n G A R b l A ð v I ð b U R ð I R