Fréttablaðið - 23.06.2016, Qupperneq 58
2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R46 M e n n I n G ∙ F R É T T A B L A ð I ð
bíó
Á þessu ári verður stórmyndin Space
Jam tuttugu ára. Myndin er enn
tekjuhæsta körfuboltakvikmynd
sem hefur verið gerð, en hún hefur
aflað 230 milljóna dollara í gegnum
tíðina. Hún er þriðja tekjuhæsta
íþróttakvikmynd allra tíma, á eftir
Rocky IV og The Blind Side.
Körfuboltastjarnan Micheal
Jordan fer með aðalhlutverkið í
myndinni ásamt helstu teikni-
myndakarakterum Looney Tunes,
sem Warner Brothers framleiðir.
Þrátt fyrir að kvikmyndin sé fyrst
og fremst ætluð börnum þá er hún í
miklu upphaldi hjá fullorðnum.
Í kvikmyndinni er mikið af
skemmtilegum karakterum, leikn-
um og teiknuðum, sem hafa þótt
heldur eftirminnilegir. Bill Murray
kemur fram í myndinni sem og
margir af frægustu körfuboltaleik-
mönnum þess tíma, eins og Larry
Bird, Muggsy Bogues og Patrick
Ewing. Swackhammer, eigandi
Moron Mountain skemmtigarðsins í
kvikmyndinni, var leikinn af Danny
DeVito.
Myndin fjallar um Micheal Jordan
sem ætlar sér að hætta í körfubolta
og snúa sér að hafnabolta. Á meðan
hann skiptir um starfsvettvang er
ýmislegt í gangi í skemmtigarðinum
Moron Mountain sem er úti í geimi.
Stjórnandi garðsins, Swackhammer,
skipar fylgisveinum sínum að fara til
jarðar til þess að sækja Kalla kanínu
og Looney Tunes vini hans þar sem
hann ætlar að nota þá sem nýjasta
aðdráttaraflið fyrir skemmtigarðinn.
Í kjölfar ýmissa viðburða hittir
Jordan Looney Tunes persónurnar
í teiknimyndaheimi í miðju jarðar.
Þar keppa þeir við vondu verurnar
úr geimnum í æsispennandi leik en
fyrir leikinn stela verurnar körfu-
boltahæfileikum ýmissa frægra
NBA-leikmanna.
Space Jam verður 20 ára á þessu ári
Körfuboltamyndin vinsæla kom út árið 1996. Með aðalhlutverk fara Michael Jordan, sem á
þessum tíma var vinsælasti íþróttamaður Bandaríkjanna, ásamt Looney Tunes karakterum.
Körfuboltastjarna, skóhönnuður og leikari. Micheal Jordan var á
toppi ferilsins árið 1996.
Micheal Jordan er sannkallaður konungur og ekki hefur Space Jam skemmt fyrir.
Bugs Bunny og Daffy Duck eru með stjörnuleik í myndinni Space Jam.
Frumsýningar
Ævintýramynd
Aðalhlutverk: Bill Hader,
Rebecca Hall og Ólafur Darri
Ólafsson
Frumsýnd: 1. júlí
IMDb: 7,8
The Purge
elecTion Year
Spennumynd
Aðalhlutverk: Frank Gillo, Eliza-
beth Mitchell og Mykelti
Williamson
Frumsýnd: 1. júlí
goodnighT MoMMY
Drama, Hrollvekja
Aðalhlutverk: Lukar Schwarz,
Elias Schwarsz og Susanne Wuest
Frumsýnd: 1. júlí
IMDb: 6,7
The BFg