Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 23.06.2016, Blaðsíða 68
Ber er hver að baki nema sér bróður eigi Kosningabaráttan um forsetaembættið er harður slagur og í slíkum bardögum er að sjálf- sögðu ómetanlegt að eiga góða stuðningsmenn. Fréttablaðið fór á stúfana og heyrði hljóðið í yfirlýstum stuðningsmönnum og vinum nokkurra frambjóðendanna sem þar takast á. Guðni Th. Jóhannesson Jóhanna Vigdís Arnardóttir leik- kona er yfirlýst stuðningskona Guðna og það er alls ekki að ástæðulausu. Þekkist þið Guðni persónu- lega? „Ég er búin að þekkja hann alla ævi, við erum nágrannar og ég var með honum í skóla og ég þekki hann bara að góðu. Mér finnst hann hógvær og klár … ég gæti haldið alveg endalaust áfram.“ Kött Grá Pjé rappari og skáld er ekki mikill aðdáandi forsetaembættisins en hann hefur þó ekki farið leynt með aðdáun sína á kollega sínum í skáld- skapnum. „Mér finnst Andri afbragðsfínn náungi og hafði gaman af sögutím- unum hjá Guðna þokulúðri Jó en Elísabet er bara svo mögnuð týpa, kjaftfor, fyndin og óútpæld. Skáld og sprellari. Svo er manifestóið hennar stórfallegt plagg. Mann- eskjulegt og blátt áfram. Í sem skemmstu máli finnst mér hún æði.“ Þau þekkjast ekki persónu- lega en hann segir mér þó að þau hafi eitt sinn verið stödd á sama stað á sama tíma og að hann hafi ekki þorað að heilsa henni, verið „starstruck“ – svo mikil er sú aðdáun. Halla Tómasdóttir Svavar Örn Svavarsson, hárgreiðslu- maður og tískulögga, er aðdáandi Höllu Tómasdóttur enda hefur hann klippt á henni hárið síðastliðin 20 ár. „Það eru mjög margir fram- bærilegir þarna en þetta er persónuleg vinátta líka sem ræður svolítið mikið för. Það sem hún hefur verið að gera – þessi Ted-fyrir- lestur, að hafa verið með V-ráðstefnu á síðasta ári, þjóðfundurinn – allt þetta. Hún er búin að vera að vinna að þessum málefnum sem prýða góðan for- seta.“ Unnsteinn Manuel Stefánsson tón- listamaður er eitilharður stuðnings- maður Andra Snæs. „Ég hitti Andra fyrst fyrir 10 árum, þá vorum við nokkur í Austurbæjarskóla áhugasöm um aktívisma. Við vorum nýbúin að lesa Drauma- landið og við fengum hann til að flytja smá fyrirlestur fyrir okkur um náttúruvernd og framtíðina. Í s l e n d i n g u m hefur sjaldan staðið til boða j a f n h u g - myndaríkur og nýsköp- u n a r s i n n - aður maður í þ e t t a e m b æ t t i . Jóhanna Vigdís Arnardóttir hefur þekkt Guðna Th. í mörg ár. Ég á erfitt með að ímynda mér annan frambjóðanda sem hefur jafn mikið nýtt fram að færa fyrir Bessastaði. Hann hefur verið ómaklega gagnrýndur fyrir að vera á listamannalaunum og fyrir að hafa skoðanir á náttúrunni. Ef það væri ekki fyrir fólk hér á landi sem til- einkar líf sitt ritlistinni þá væri ég ekki að hylla Andra Snæ í þessu töluðu orðum á íslensku. Ef við getum ekki kosið eitt- hvað nýtt og ferskt á Bessa- staði, til hvers þá að halda þessu embætti gangandi?“ Andri Snær MagnasonElísabet Jökulsdóttir Dásamleg frönsk súkkulaðikaka 4 egg 6 dl sykur 3 dl hveiti 9 msk. kakó ½ msk. vanillusykur Smá salt 200 g smjör Súkkulaðikaramellukrem 75 g smjör ½ dl sykur ½ dl síróp 1 msk. kakó 1½ dl rjómi 200 g mjólkursúkkulaði Botninn: Hrærið lauslega saman egg og sykur. Blandið hveiti, kakói, vanillusykri og salti saman og hrærið saman við eggjablönd- una. Bræðið smjörið og hrærið því saman við. Setjið deigið í smurt form (um 24 cm) og bakið við 175°C í um 40 mínútur. Látið kökuna kólna. Kremið: Bræðið smjör í potti og bætið sykri, sírópi, kakói og rjóma saman við. Látið suðuna koma upp á meðan þið hrærið í blöndunni og látið síðan sjóða við vægan hita í 5-10 mínútur. Takið pott- inn af hitanum og bætið hökkuðu súkkulaði í hann. Hrærið þar til súkkulaðið hefur bráðnað. Hellið kreminu yfir kökuna og látið hana síðan standa í ísskáp svo að kremið stífni. Uppskriftin er fengin af ljufmeti.is Taylor Swift og Tom Hiddleston sáust kyssast í seinustu viku nálægt heimili Swift á Long Island, New York. Ekki leið á löngu þar til allt sprakk upp og allir fjölmiðlar vestanhafs fóru að fjalla um málið. Sambandið hefur fengið töluvert meiri athygli en önnur sambönd þar sem aðeins eru tvær vikur síðan Tay- lor Swift og plötusnúðurinn Calvin Harris hættu saman eftir 15 mánaða samband. Fyrir tveimur dögum sást aftur til Taylor og Tom en þá voru þau tvö saman á tónleikum hjá Selenu Gomez, bestu vinkonu Taylor. Þar dönsuðu þau saman og virtust skemmta sér vel. Það verður áhugavert að sjá hversu lengi sam- bandið muni endast með alla þessa fjöl- miðlaathygli á byrjunar- stiginu. Eitt er víst, þau munu ekki fá neinn frið. Hitnar í kolunum hjá Taylor Svavar Örn hefur átt í löngu viðskipta- og vinasambandi við Höllu Tómas- dóttur. Unnsteinn Manuel hefur lengi dáðst að Andra Snæ. Kött Grá Pjé hefur dálæti á Elísabetu Jökulsdóttur en er feiminn við að heilsa henni. 2 3 . j ú n í 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R56 L í F I ð ∙ F R É T T A B L A ð I ð Lífið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.