Fréttablaðið - 28.11.2017, Síða 16
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á
auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Af bókarbaki...
Frá Miklahvelli til mannheima er ekki
bara saga alheimsins eða lífsins eða
mannfólksins. Með því að horfa á
tilveruna sem eina órofa heild, eina
alsögu, sjáum við betur af hverju
við urðum þær manneskjur sem við
erum í dag, með örlög jarðarinnar í
höndum okkar vegna áður óþekkts
máttar til að meðhöndla efni og orku.
V ið köllum þetta alsögu sem er í raun og veru nýtt heiti. Á ensku er það Big History – Saga frá byrjun alheimsins til okkar daga. Ég veit
ekki um neina aðra sambærilega bók á
Íslandi,“ segir Lúðvík Gústafsson jarð-
fræðingur um nýja bók þeirra Ólafs
Halldórssonar líffræðings, Frá Mikla-
hvelli til mannheima. „Það væri hægt
að skrifa heilan bókaflokk um hvern
kafla, hvort sem er um alheiminn, jarð-
fræðina, lífið almennt eða mannkynið
og þróun þess. En
þegar svona lang-
ur tími er tekinn
fyrir verður að
stikla á stóru.“
Lú ð v í k s e g i r
ritun bókarinnar
hafa verið algert
gæluverkefni hjá
þ e i m f é l ö g u m
og að ekkert hafi
legið á eða knúið
þá áfram annað en
áhugi.
Ó l a f u r t e ku r
undir það. „Ég
kalla þetta verk-
efni smíðisgripinn
okkar. Það er búið
að taka nokkur ár.
Við byrjuðum að
ræða það fyrir um
það bil áratug, svo
fórum við að viða í
það einni og einni
s pý t u . H i tt u m st
reglulega á Kringlukránni í hádeginu,
einu sinni til tvisvar í mánuði og bárum
saman bækur okkar. Skrifuðum fyrst
hvor sína kaflana, eftir því hverju við
vorum skástir í, svo hefur efnið verið að
veltast milli okkar, þannig að svolítið
erfitt er að segja hvor á hvað – þannig á
það líka að vera.“
Lúðvík kveðst hafa fengið fyrsta
stjörnukíkinn 14 ára gamall og haft
gífurlegan áhuga á alheiminum síðan.
„Ég er með fyrstu kaflana í bókinni um
alheiminn og reikistjörnurnar og svo
lokakaflann um framtíðina og leitina
að lífi á öðrum hnöttum. Ólafur er með
stærri hluta bókarinnar, um lífið og
mannkynið en ég hef oft farið í gegnum
hans efni og hann mitt.“
Lúðvík starfar sem sérfræðingur á
vegum Sambands íslenskra sveitar-
félaga og Ólafur er kominn á eftirlaun.
Þeir kenndu báðir við Verslunarskólann
um skeið, Lúðvík eðlis- og efnafræði,
Ólafur líf- og efnafræði. „Ég er á svokall-
aðri 95 ára reglu og hætti kennslu um
leið og tækifæri gafst, til að geta sinnt
ritstörfum,“ segir Ólafur sem kveðst
fyrst hafa sest niður og skrifað kennslu-
bók í líffræði eins og honum fannst hún
eiga að vera, eftir alla reynsluna. „Ég
er svo heppinn að líffræðibókin hefur
fengið bara fína dreifingu og er notuð
til kennslu í um helmingi framhalds-
skólanna,“ segir hann.
En þótti þeim félögum vanta bók eins
og þá sem þeir hafa nú skrifað, þegar
þeir voru að kenna? „Já, og bara almennt.
Bókin okkar er skrifuð á mannamáli
og fólk þarf ekki endilega að lesa hana
spjaldanna á milli heldur getur gripið
niður í hana hér og þar. Efnið á að skilj-
ast hverjum þeim sem hefur áhuga,“
segir Lúðvík og heitir því að þeir Ólafur
muni ekki láta staðar numið heldur
fylgja bókinni eftir á netinu. „Það eru
stöðugt nýjar uppgötvanir á öllum þeim
sviðum sem við fjöllum um, ég get nefnt
læknavísindin, í sambandi við erfða-
efnin.“
Þeir segjast hafa látið stærð bókar-
innar nokkuð ráðast. „Það var bara eitt
atriði sem við vorum ósammála um og
verðum alltaf, það er hvort líf sé annars
staðar en á jörðinni,“ segir Ólafur. „Við
leystum það með því að ræða málin á
þremur, fjórum síðum og niðurstaðan
var auðvitað sú sama og áður.“
Lúðvík brosir. „Við köllum kaflann
Symposium, eða Samdrykkju. Ég er
sannfærður um að ég muni lifa það
að lífverur finnist víðar en á jörðinni
en Ólafur telur líf í alheiminum aldrei
munu finnast og í þessum kafla rök-
styðjum við báðir okkar skoðanir en þær
haggast ekkert.“ gun@frettabladid.is
Það var bara eitt sem við
vorum ósammála um
Erum við einu geimverurnar? Eru ættareinkenni erfð eða áunnin? Lúðvík Gústafsson jarðfræð-
ingur og Ólafur Halldórsson líffræðingur leita svara við ótal spurningum í bókinni Frá Miklahvelli
til mannheima. Þeir hafa hist reglulega á Kringlukránni í hádeginu undanfarin ár og rætt efnið.
Lúðvík flettir bókinni á stofuborðinu heima. „Ég kalla þetta verkefni smíðisgripinn okkar. Það er búið að taka nokkur ár. Við byrjuðum
að ræða það fyrir um það bil áratug, svo fórum við að viða í það einni og einni spýtu,“ segir Ólafur sem er til hægri. FrÉttabLaðið/SteFán
Bókin okkar er
skrifuð á
mannamáli og
fólk þarf ekki
endilega að lesa
hana spjald-
anna á milli
heldur getur
gripið niður í
hana hér og
þar. Efnið á að
skiljast
hverjum þeim
sem hefur
áhuga.
Lúðvík
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Guðrún M. Sigurbergsdóttir
Gunna skó,
Skólavegi 22, Keflavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
fimmtudaginn 23. nóvember.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju mánudaginn
11. desember klukkan 13.
Jón Björgvin Stefánsson
Sigurberg Jónsson Dagbjört Nanna Jónsdóttir
Stefán Jónsson María Sigurðardóttir
Jóhanna Jónsdóttir
Ásbjörn Jónsson Auður Vilhelmsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Júlíus Sigurðsson
pípulagningameistari og
hljómlistarmaður,
Dynsölum 10, Kópavogi,
lést 18. nóvember. Útförin fer fram frá
Digraneskirkju fimmtudaginn 30. nóvember kl. 13. Þeim
sem vilja minnast hans er bent á Grensásdeild.
Jóhanna Ellý Sigurðardóttir
Hildur Júlíusdóttir Þorleifur Rúnar Örnólfsson
Júlíus Þór Júlíusson Íris Guðrún Ragnarsdóttir
Davíð Júlíusson Kristín Inga Guðmundsdóttir
Guðrún Stephensen
og barnabörn.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.