Fréttablaðið - 28.11.2017, Side 21
Ari Bragi leikur einleik með Lúðrasveit verkalýðsins en í kvöld verða kveðju-
tónleikar Kára Húnfjörð, stjórnanda sveitarinnar. FréttABLAðið/SteFán
ur yfir. Hresst og skemmtilegt fólk
mun sýna brot af þeim fatnaði sem
fæst í Herrafataverzlun Kormáks
& Skjaldar og Kvenfataverzlun
Kormáks & Skjaldar. Á milli tísku-
sýninga verða tónlistaratriði, uppi-
stand og óvæntar uppákomur í
höndum velunnara verzlananna.
Hvað? Skyggnilýsingarfundur
Hvenær? 19.30
Hvar? Deiglan, Akureyri
Sue Carrol heldur skyggnilýsingar-
fund í Deiglunni. Viðburðurinn
verður á ensku og aðgangseyrir er
1.600 krónur.
Hvað? Kvöldstund með Víkingi í
Eldborg
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar
Íslands stendur fyrir fræðandi og
skemmtilegri kvöldstund með
Víkingi Heiðari Ólafssyni píanó-
leikara í Eldborg í samvinnu við
Íslenska erfðagreiningu. Víkingur
Heiðar mun fjalla um píanókons-
ert nr. 24 í c-moll eftir Mozart
sem hann flytur ásamt Sinfóníu-
hljómsveit Íslands undir stjórn
Dima Slobodeniouk 30. nóvember
næstkomandi. Konsertinn verður
endurtekinn í Föstudagsröðinni
1. desember en á þeim tónleikum
leikur Víkingur einleik og stjórnar
hljómsveitinni frá flyglinum rétt
eins og tíðkaðist á dögum Mozarts.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 21Þ R i ð J U D A g U R 2 8 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
Borgarbókasafnið ætlar að telja niður
til jóla með jóladagatali annað árið í
röð og birtist fyrsti hluti þess þann
1. desember. Jóladagatalið verður í
formi sögu sem birtist smátt og smátt
á hverjum degi fram að jólum.
Í ár er það rithöfundurinn Þórarinn
Leifsson sem skrifar söguna en hún
nefnist Jósi, Katla og jólasveinarnir
og segir hún af vinunum Jósa og Kötlu
og samskiptum þeirra við jólasveina.
Jóladagatalið verður hægt að nálg-
ast á heimasíðu Borgarbókasafnsins
á hverjum degi í desember fram að
aðfangadegi en þá birtist sagan í heild
sinni og einnig verður hægt að hlusta
á hana í hlaðvarpi Borgarbókasafns-
ins í lestri höfundar.
Í fyrra var það Sigrún Eldjárn sem
sá um dagatalið og nefndist sú saga
Varúð, varúð, jólin eru á leiðinni.
Þórarinn hefur sent frá sér barna-
bækur og skáldsögur auk þess að
hafa myndskreytt bæði bækur og
blöð. Hann hlaut Barnabókaverðlaun
menntaráðs Reykjavíkurborgar árið
2010 fyrir Bókasafn ömmu Huldar
og var tilnefndur til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna fyrir Maðurinn
sem hataði börn árið 2014. – sþh
Jóladagatal
Borgarbókasafnsins
Þórarinn Leifsson er höfundur jóla-
dagatalsins í ár. FréttABLAðið/VALLi
Tónastöðin • Skipholti 50d • Reykjavík • sími 552 1185 • tonastodin.is
2i2 Studio
kr. 32.900
L-Mesitran
Náttúruleg
sáragræðsla
með hunangi
- Fæst í apótekum -
Hunangsplástur og sárakrem með
hunangi. Hentar á allar tegundir sára.
Plásturinn hentar vel á lítil yfirborðssár.
Nauðsynlegur á sára hæla eftir göngur.
www.wh.is