Fréttablaðið - 28.11.2017, Blaðsíða 24
Þau giftust inn í konungsfjölskyldu
Katrín Middleton kynntist Vilhjálmi
prins árið 2001 í St. Andrews há-
skólanum í Skotlandi. Þau voru í
sambandi með hléum í um áratug
áður en þau giftu sig árið 2011.
Þau eiga tvö börn og það þriðja er á
leiðinni. NORDICPHOTOS/GETTY
Masako Owada kynntist japanska krón-
prinsinum Naruhito árið 1986, þá var hún
háskólanemi. Það tók prinsinn þrjár til-
raunir áður en hann fékk „já“ frá henni
við bónorði. Þau giftu sig árið 1993
og eiga saman eina dóttur.
Breska konungsfjöl-
skyldan tilkynnti í
gær að Harry Breta-
prins og bandaríska
leikkonan Meghan
Markle væru trú-
lofuð. Meghan mun
þá næsta vor giftast
inn í konungsfjöl-
skylduna. Meðfylgj-
andi er samantekt
um nokkra ein-
staklinga sem sögðu
skilið við venjulegan
lífsstíl og giftu sig inn
í konungsfjölskyldur.
Daníel Westling er eiginmaður
Viktoríu, krónprinsessu Sví-
þjóðar. Þau kynntust þegar
hann var ráðinn einkaþjálfari
hennar. Þau hafa verið gift
síðan árið 2010 og eiga saman
tvö börn. NORDICPHOTOS/GETTY
Kvikmynda-
stjarnan Grace
Kelly giftist
Rainier fursta
af Mónakó
árið 1956.
Þau eignuðust
þrjú börn
saman.
Fyrrverandi fréttakonan Letizia
Ortiz Rocasolano varð spænsk
prinsessa þegar hún giftist Filipp-
usi Spánarprins árið 2004. Í dag er
Letizia Spánardrottning þar sem
Filuppus tók við völdum af föður
sínum árið 2014.
María Elísabet Donaldson kynntist
Friðriki krónprins Dana í Sydney
árið 2010. Hann kynnti sig sem
„Fred“ og sagði henni seinna að
hann væri prins. Þau giftu sig árið
2004 og eiga saman fjögur börn.
Silvía Svíadrottning kynntist
eiginmanni sínum, Karli Gústafi,
árið 1972 á Ólympíuleikunum í
München. Þar var hún að störfum
sem túlkur. Silvía og Karl gengu
í hjónaband árið 1976 og eiga
saman þrjú börn.
Lífið
Díana prinsessa var
fyrsta eiginkona Karls
Bretaprins. Hún var
tvítug þegar hún giftist
Karli, árið 1981. Þau
voru gift til ársins
1996. Díana og Karl
eignuðust tvö börn,
Vilhjálm og hinn
nýtrúlofaða Harry. Meghan Mark
le og Harry ha
fa
átt í ástarsam
bandi síðan í
júní í fyrra. Þa
u munu ganga
í
það heilaga næ
sta vor.
0 kr. fyrsti mánuðurinn!
Verið vel tengd
2 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 Þ r I Ð J U D A G U r24 l í f I Ð ∙ f r É T T A b l A Ð I Ð