Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 1

Morgunblaðið - 16.09.2019, Side 1
M Á N U D A G U R 1 6. S E P T E M B E R 2 0 1 9 Stofnað 1913  217. tölublað  107. árgangur  MEÐ SALT- BAKTERÍUNA Í ÞRJÁTÍU ÁR 48 ÁRA BIÐ Á ENDA SKAFFA ATVINNU- LÍFINU DÝRMÆT VERKFÆRI VÍKINGAR BIKARMEISTARAR 24 FORRIT SKILJI ÍSLENSKU 12EGILL EINARSSON 11 Þótt hryssingslegt veður væri við Reykjavíkurtjörn í gær voru börn og fullorðnir á ferðinni og sumir gáfu fuglunum brauð. Á sumrin er mælst til þess að brauði sé ekki dreift því það getur dregið að máva sem í leiðinni hirða gjarnan upp unga. En nú er sá tími liðinn og gott að gefa fuglunum eitt- hvað í gogginn í veðri eins og var í gær. Veðurstofan spáir smáskúrum nú í morgunsárið á höfuðborgarsvæðinu og að vindinn lægi í kvöld. Hitinn er alveg þokkalegur miðað við árstíma að deginum en áfram kalt á nóttunni. Á morgun er spáð hægri norðlægri eða breytilegri átt og víða bjartviðri. Síðan snýr hann sér í suðaustan- og sunnanáttir með rigningu í flestum landshlutum. Óhætt að gefa Tjarnarfuglunum brauð í haust og vetur Morgunblaðið/Árni Sæberg  Staða Íslands er góð, en fylgj- ast þarf með þró- un í tilteknum geirum á borð við ferðaþjón- ustu og sjávar- útveg. Þetta seg- ir Angel Gurria, framkvæmda- stjóri OECD, sem kynnir í dag Economic Survey fyrir Ísland. „Hér gengur vel, en þið megið ekki verða sjálfumglöð og sofna á verðinum,“ segir Gurria. Hann vill að horft sé til fleira en hefðbundinna mæli- kvarða við mælingar á velsæld í OECD-ríkjum. »10 Staðan góð en vel þarf að fylgjast með Angel Gurria  „Við erum með allskonar upp- skriftir í pípunum, allt frá endur- gerð á gömlum gosdrykkjarstílum sem ekki hafa sést í áratugi hér- lendis, yfir í nýjar og framsæknari hugmyndir. Við höfum verið að gera tilraunir með íslenskt hráefni og erum virkilega spennt yfir því að klára þær,“ segir Sturlaugur Jón Björnsson bruggmeistari sem er einn aðstandenda Öglu gosgerðar sem nú hyggst ryðja sér til rúms. Fyrsta tilraunalögun Öglu gos- gerðar er íslenskur engiferbjór sem kallast Djöflarót. »8 Nota íslenskt hrá- efni í nýrri gosgerð Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Atvikum hefur farið fjölgandi á bráðamóttöku Landspít- alans þar sem eitthvað hefur farið úrskeiðis við meðhöndl- un sjúklinga. Mikið álag hefur verið á bráðamóttökunni að undanförnu, sérstaklega vegna þess að ekki hefur verið hægt að vísa sjúklingum sem fengið hafa þjónustu á aðrar deildir spítalans. Um þverbak keyrði síðastliðinn föstudag þegar leggja þurfti inn 40 sjúklinga þótt aðeins séu 34 skilgreind legu- pláss á deildinni. „Meginálagið liggur ekki í þeim fjölda sem kemur á bráðamóttökuna heldur í því að búið er að loka það mörgum rúmum á spítalanum vegna skorts á hjúkrunarfræðingum að sjúklingar komast ekki í viðeig- andi úrræði eftir að hafa fengið þjónustu á bráðamót- tökunni. Þetta er að versna vegna þess að ekki hafa öll rúm verið opnuð eftir sumarlokanir,“ segir Jón Magnús Krist- jánsson, yfirlæknir bráðamóttöku. Embætti landlæknis er að taka út stöðuna á deildinni. Jón Magnús segir það mat stjórnenda á bráðamóttöku að erfitt sé að tryggja fullkomlega öryggi allra sjúklinga þeg- ar margir sjúklingar eru inniliggjandi. „Okkar áhyggjur snúa að því að ástandið fer stöðugt versnandi og það þýðir að á einhverjum tímapunkti verði bráðamóttakan óstarf- hæf, nema til komi einhverjar breytingar.“ »4 Álagsatvikum fer nú fjölgandi  Mikið álag á bráðamóttöku Landspítalans  Ástand versnar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Aðstaða Lítið má út af bera til að sjúkrarými bráða- móttökunnar fyllist. Mörg rúm á spítalanum eru lokuð. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis- ráðherra segir í samtali við Morgun- blaðið að nýlegar fréttir um lungna- sjúkdómafaraldur í Bandaríkjunum, sem virðist tengjast rafrettunotkun, séu mikið áhyggjuefni en rúmlega 450 manns þar í landi hafa greinst með sjúkdóminn og fimm látið lífið. Svandís staðfestir að þessar nýju upplýsingar um skaðsemi rafrettna verði ræddar á næsta samráðsfundi hennar með landlækni og segir þær tilefni til að skoða hvort nýleg lög um rafrettur, sem tóku gildi í byrjun mars á árinu, séu fullnægjandi. »6 Morgunblaðið/Hari Veip Rafrettur eru vinsælar í dag. Rafrettur valda áhyggjum  Óvíst hvort ný lög eru fullnægjandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.