Morgunblaðið - 16.09.2019, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
595 1000
Gran Canaria
22. október í 3 vikur
Verð frá kr.
179.995
Jón Birgir Eiríksson
Teitur Gissurarson
Borið hefur á því meðal íbúa á Sel-
tjarnarnesi að þeim berist reikningar
frá Hitaveitu Seltjarnarness, sumir
hverjir fyrir yfir 100 þúsund krónur,
þar sem borið er við vanreiknaðri
orku aftur í tímann.
Íbúi vakti athygli á þessu í íbúahópi
Seltirninga á Facebook, en hann fékk
reikning sem hljóðaði upp á 135 þús-
und krónur vegna vanreiknaðrar
orku frá 2015-2019. Kvaðst íbúinn
ekki hafa fengið neina beiðni um af-
lestur af mæli á þessu tímabili, hvað
þá að starfsmenn hitaveitu hefðu
komið og beðið um að fá að lesa af
mæli fyrr en 30. júlí sl., þegar tveir
menn hefðu komið til að lesa af mæli.
Í bréfi hitaveitunnar segir að útgef-
inn uppgjörsreikningur sé miklu
hærri en áætlunarreikningar á und-
an. „Hann er byggður á álestri og er
um leið uppgjör á þeim áætlunar-
reikningum sem sendir hafa verið.
Mismunurinn er reiknaður út og ef þú
hefur notað meiri orku en áætlunin
segir til um hækkar reikningurinn
sem því nemur,“ segir í bréfinu.
Íbúinn ýjar að því að hitaveitan hafi
ekki sinnt starfi sínu við álestur í hús-
um bæjarins. Undir færsluna ritar
fjöldi fólks sem hefur svipaða sögu að
segja og furðar sig á málinu. Reikn-
ingar námu allt frá 50-180 þúsund
krónum.
Í bréfi hitaveitunnar eru íbúarnir
beðnir að lesa af mæli til að byrja
með, til að staðfesta skráðan álestur.
Einnig segir að skýringin gæti verið
eðlileg og eru móttakendur bréfsins
beðnir að athuga hvort bilun gæti ver-
ið í kerfum þeirra og mælst til þess að
fagaðilar athugi hitaveitukerfið og
meti hvort um bilun sé að ræða.
Gunnar Lúðvíksson, fjármálastjóri
hjá Seltjarnarnesbæ, hafði nýheyrt af
málinu þegar Morgunblaðið talaði við
hann og þekkti því ekki einstök mál.
Hann fullyrti að allir væru heimsóttir
af álestrarmönnum, farið væri í hvert
einasta hús og oft væri farið oftar en
tvisvar til að reyna að lesa á mæla. Þá
væri öllum sent bréf, og sagði hann að
ef einstaklingar fengju reikninga
vegna tímabila langt aftur í tímann
væru þeir líklega búnir að fá margar
heimsóknir og bréf, en hefðu ekki
sinnt því að senda inn álestur.
Seltirningum barst
óvænt rukkun
Tugþúsundir fyrir vanreiknaða orku
Leitarmenn á Holtavörðuheiði fengu leiðinlegt veður.
Vatnavextir og úrkoma tafði þá mjög við reksturinn í
Þverárrétt. Þurftu þeir frá að hverfa við Hvassá í ná-
grenni Fornahvamms en ær sem stökk út í drapst í
ánni. Féð var síðan rekið yfir ána á brú. Miklir vatna-
vextir voru einnig í Hellisá niður undir Sveinatungu og
voru leitarmenn að velta fyrir sér að fara gamla veginn
yfir Grjótháls. Þegar stytti upp sjatnaði fljótt í ánni og
var hægt að reka féð yfir hana í gærmorgun. Það
seinkaði þó því að hægt yrði að hefja réttarstörf.
Ljósmynd/María Gunnarsdóttir
Úrfelli og vatnavextir tafði rekstur
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Erfitt er að tryggja fullkomlega ör-
yggi allra sjúklinga á bráðamóttöku
þegar margir sjúklingar eru tepptir
þar og komast ekki á legudeildir, að
mati yfirlæknis bráðamóttöku
Landspítalans.
Svonefndum at-
vikum hefur farið
fjölgandi á deild-
inni, að hluta til
vegna álagsins,
það er að segja að
eitthvað hefur
farið úrskeiðis við
meðhöndlun
sjúklinga.
Lengi hefur
verið mikið álag á bráðamóttökunni
en það hefur verið sérstaklega mikið
að undanförnu. Páll Matthíasson
forstjóri gat um það í pistli sem
hann skrifaði á vef spítalans sl.
föstudag að vafasamt „aðsóknar-
met“ hefði verið slegið í vikunni.
Sömuleiðis hefðu aldrei jafn margir
beðið innlagnar á spítalann og ein-
mitt þann dag. Föstudagurinn sem
bar upp á 13. dag mánaðarins var
sérstaklega erfiður. Þá voru lagðir
inn 40 sjúklingar en aðeins eru skil-
greind 34 legupláss, að sögn Jóns
Magnúsar Kristjánssonar yfirlækn-
is. Því voru innlagðir sjúklingar
fleiri en deildin getur tekið við í
rými sem til þess eru ætluð. Málið
var leyst með sjúkrarúmum á göng-
um og meðferðarstólum og auka-
vöktum starfsfólks.
Ástandið versnar stöðugt
„Meginálagið liggur ekki í þeim
fjölda sem kemur á bráðamóttökuna
heldur í því að búið er að loka það
mörgum rúmum á spítalanum vegna
skorts á hjúkrunarfræðingum að
sjúklingar komast ekki í viðeigandi
úrræði eftir að hafa fengið þjónustu
á bráðamóttökunni. Þetta er að
versna vegna þess að ekki hafa öll
rúm verið opnuð eftir sumarloka-
nir,“ segir Jón Magnús.
Hann segir að í stöðu eins og var á
föstudag sé hugsanlegt að einhver
sjúklingur sé látinn bíða lengur en
æskilegt er vegna plássleysis. Þá sé
erfitt fyrir starfsfólkið að hafa yf-
irsýn yfir alla sjúklinga og öll þau
verk sem þurfi að sinna hjá þeim.
„Stundum skiptir höfuðmáli að þau
sem leita til okkar fái hraða og góða
þjónustu. Við getum ekki tryggt það
þegar svona er,“ segir yfirlæknirinn.
Spurður hvort starfsemi deildar-
innar sé komin að öryggismörkum
segir Jón Magnús að það sé mat
stjórnenda á bráðamóttöku að erfitt
sé að tryggja fullkomlega öryggi
allra sjúklinga þegar margir sjúk-
lingar eru þar og komast ekki á
deildir. Hafi atvikum farið fjölgandi
þar sem eitthvað hafi farið úrskeiðis
við meðhöndlun sjúklinga. Það hafi
þó ekki gerst á föstudag. „Okkar
áhyggjur snúa að því að ástandið fer
stöðugt versnandi og það þýðir að á
einhverjum tímapunkti verði bráða-
móttakan óstarfhæf, nema til komi
einhverjar breytingar,“ segir Jón
Magnús.
Erfitt að tryggja öryggi allra sjúklinga
Mikið álag hefur verið á bráðamóttöku vegna þess að sjúklingar komast ekki á viðeigandi deildir vegna
lokaðra sjúkrarúma Fleiri sjúklingar á deildinni en rúm er fyrir Atvikum hefur farið fjölgandi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bráðamóttaka 40 sjúklingar voru lagðir inn sl. föstudag, í 34 sjúkrarými.
Jón Magnús
Kristjánsson
„[Lögreglan] rakst bara á vegg, að
ég held, og ég hef ekki heyrt að neitt
meira hafi komið út úr því.“ Þetta
segir Jóhann Ágúst Hansen, fram-
kvæmdastjóri hjá Gallerí Fold,
spurður um fölsunarmál vegna
tveggja mynda eftir Stórval, sem
Morgunblaðið flutti fréttir af í vor.
Var í byrjun mars hætt við uppboð á
tveimur verkum eftir Stórval, Stefán
Jónsson frá Möðrudal, vegna gruns
um að verkin væru fölsuð. Sagðist
Ólafur Ingi Jónsson forvörður hand-
viss um að verkin væru fölsuð og að
grunur væri uppi um fleiri nýlegar
falsanir á verkum Stórvals.
Spurður um afdrif verkanna
tveggja segist Jóhann telja þau vera
hjá aðilanum sem keypti þau. Ólafur
Ingi hafi rannsakað verkin og í kjöl-
farið skilað þeim, telur Jóhann. Í vor
sögðust bæði Jóhann og Ólafur vera
hræddir um að verkin tvö væru ein-
ungis hluti af stærra fölsunarmáli,
en Jóhann segir að fleiri viðlíka
verk, sem grunur leikur á að séu
fölsuð, hafi ekki skotið upp kollinum
svo að hann viti til. „Þetta hefur alla-
vega ekki haldið áfram, að mínu
viti,“ segir hann.
Spurður hvort menn í hans geira
þurfi stöðugt að vera á varðbergi
gagnvart fölsunum sem þessum
kveður Ólafur já við og segir að það
sé vegna þess sem Stórvalsfalsmálið
í vor hafi komist upp. Segir hann enn
fremur að stóra fölsunarmálið svo-
kallaða, sem kom upp á tíunda ára-
tug síðustu aldar, hafi áhrif enn í
dag. „Ef þú horfir á stóra föls-
unarmálið sem slíkt, og hvað það
skildi eftir sig, þá munu alltaf vera
að koma inn verk sem eru vafasöm
eða ekki er hægt að sannreyna að
séu eftir þann sem þau eru kennd
við.“ teitur@mbl.is
Hafa ekki fundið fleiri
falsaðar Stórvalsmyndir
Lögregla hafi rekist á vegg í málinu Alltaf á varðbergi
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
List Jóhann Ágúst Hansen, fram-
kvæmdastjóri hjá Gallerí Fold.