Morgunblaðið - 16.09.2019, Qupperneq 24
24 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 2019
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is
ULTRA
KATTASANDUR
– fyrir dýrin þín
■■■ Sporast lítið
■■■ Lyktarlaus
■■■ Frábær lyktareyðing
■■■ Náttúrulegt hráefni
■■■ 99.9% rykfrír
■■■ Klumpast vel
Í LAUGARDAL
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Víkingur úr Reykjavík tryggði sér
annan bikarmeistaratitil sinn í sög-
unni og þann fyrsta síðan 1971 er
liðið vann FH, 1:0, í úrslitaleik
Mjólkurbikars karla í fótbolta á
Laugardalsvelli á laugardag.
Sigur Víkings var algjörlega
verðskuldaður, þar sem liðið hafði
undirtökin í leiknum nánast allan
tímann. Víkingsliðið var búið að
brenna af þónokkrum færum, þegar
Óttar Magnús Karlsson skoraði
loks úr víti á 58. mínútu. Víkingar
gerðu virkilega vel í að hægja á
bestu mönnum FH-inga, sem urðu
fyrir vikið fljótt pirraðir og Vík-
ingur gekk á lagið. Besti kafli FH
kom eftir að Pétri Viðarssyni var
vikið af velli með rautt spjald á 60.
mínútu, en vörn Víkings stóð vel og
sigldi verðskulduðum bikarmeist-
aratitli í höfn.
Það var hvergi veikan blett að
finna hjá Víkingi í leiknum. Allt frá
Þórði Ingasyni í markinu til Óttars
Magnúsar Karlssonar í framlínunni,
voru Víkingar sterkari og unnu öll
sín einvígi. Spennustigið var hárrétt
hjá lærisveinum Arnars Gunnlaugs-
sonar úr Fossvoginum.
Stórskemmtileg blanda
FH-ingar voru allt annað en sátt-
ir við dómarateymi leiksins og þá
sérstaklega eftir að Pétur fékk
rautt spjald, en FH getur engum
kennt um nema sjálfu sér. FH tap-
aði fyrir betra liði og verður að líta í
eigin barm.
Blandan í Víkingsliðinu er stór-
skemmtileg. Í bland við reynda
heimamenn eru ungir leikmenn sem
flestir eiga það sameiginlegt að hafa
farið út í atvinnumennsku, lítið
fengið að spila, og þakkað fyrir
traustið í Fossvoginum. Það er
gredda í ungu leikmönnunum, sem
ætla sér að sanna sig hér heima og
fara aftur út. Arnar Gunnlaugsson
fékk mikla gagnrýni framan af á
tímabilinu þegar illa gekk að ná í
úrslit og var liðið um tíma í fallsæti
í úrvalsdeildinni. Víkingur hefur
spilað skemmtilegan sóknarbolta í
allt sumar, en stigin stóðu á sér til
að byrja með. Voru þá margir á því
að Arnar ætti að leggja meiri
áherslu á varnarleikinn, en það
fannst honum aldeilis ekki. Arnar
treysti sinni hugmyndafræði og hef-
ur Víkingum vaxið ásmegin eftir því
sem liðið hefur á sumarið. Fótbolt-
inn er nú bæði skemmtilegur og ár-
angursríkur. Stundum þegar plan A
virkar ekki, þá er lausnin að gera
plan A betur.
FH hefur nú ekki unnið titil þrjú
tímabilið í röð, sem þykir ekki boð-
legt í Hafnarfirði. FH hefur verið í
fremstu röð síðan 2004 og eru
væntingarnar meiri hjá FH en
flestum öðrum félögum á Íslandi.
FH verður að klára tímabilið með
sæmd og allavega ná í Evrópusæti,
annað væri stórslys.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Loksins Eftir 48 ára bið eru Víkingar bikarmeistarar á ný og Sölvi Geir Ottesen fyrirliði lyfti bikarnum eftir sigurinn gegn FH á Laugardalsvellinum.
Víkingur gat loks fagnað
Fyrsti bikartitill Víkinga í 48 ár Óttar skoraði sigurmarkið Víkingur
betri en FH á öllum sviðum Skemmtilegur og árangursríkur sóknarbolti
England
Bournemouth – Everton......................... 3:1
Gylfi Þór Sigurðsson lék fyrstu 70 mín-
úturnar með Everton.
Brighton – Burnley ................................. 1:1
Jóhann Berg Guðmundsson lék ekki með
Burnley vegna meiðsla.
Liverpool – Newcastle ............................. 3:1
Manchester United – Leicester .............. 1:0
Sheffield United – Southampton ............ 0:1
Tottenham – Crystal Palace.................... 4:0
Wolves – Chelsea...................................... 2:5
Norwich – Manchester City .................... 3:2
Watford – Arsenal .................................... 2:2
Staðan:
Liverpool 5 5 0 0 15:4 15
Manch. City 5 3 1 1 16:6 10
Tottenham 5 2 2 1 11:6 8
Manch. Utd 5 2 2 1 8:4 8
Leicester 5 2 2 1 6:4 8
Chelsea 5 2 2 1 11:11 8
Arsenal 5 2 2 1 8:8 8
Bournemouth 5 2 1 2 8:9 7
West Ham 4 2 1 1 6:7 7
Southampton 5 2 1 2 5:6 7
Everton 5 2 1 2 5:7 7
Crystal Palace 5 2 1 2 3:6 7
Norwich 5 2 0 3 9:12 6
Burnley 5 1 2 2 6:7 5
Sheffield Utd 5 1 2 2 5:6 5
Brighton 5 1 2 2 5:8 5
Newcastle 5 1 1 3 4:8 4
Aston Villa 4 1 0 3 4:6 3
Wolves 5 0 3 2 6:10 3
Watford 5 0 2 3 4:10 2
B-deild:
Blackburn – Millwall............................... 2:0
Jón Daði Böðvarsson lék allan leikinn
með Millwall.
A-deild kvenna:
Reading – Manchester City.................... 0:2
Rakel Hönnudóttir kom inn á hjá Read-
ing á 79. mínútu.
Þýskaland
Augsburg – Eintracht Frankfurt .......... 2:1
Alfreð Finnbogason lagði upp fyrra
mark Augsburg og lék allan leikinn.
Wolfsburg – Hoffenheim ........................ 3:0
Sara Björk Gunnarsdóttir kom inn á á
78. mínútu hjá Wolfsburg.
Bayern München – Leverkusen............. 1:2
Sandra María Jessen kom inn á hjá Lev-
erkusen á 70. mínútu.
Búlgaría
Levski Sofia – Cherno More................... 3:0
Hólmar Örn Eyjólfsson lék allan leikinn
með Levski Sofia.
Grikkland
Panionios – Larissa ................................. 1:0
Ögmundur Kristinsson varði mark Lar-
issa.
Noregur
Rosenborg – Lilleström .......................... 3:1
Arnór Smárason lék allan leikinn með
Lilleström.
Kongsvinger – Aalesund ........................ 1:1
Aron Elís Þrándarson skoraði mark
Aalesund og lék allan tímann.
KNATTSPYRNA
Arsenal fór illa að ráði sínu í ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær
þegar liðið missti niður 2:0 forystu
gegn botnliði Watford á útivelli og
leikurinn endaði 2:2.
Eftir tvö mörk snemma leiks frá
Pierre-Emerick Aubameyang virt-
ist Arsenal vera komið á þægilega
braut. Tom Cleverley og Robert Pe-
reyra jöfnuðu fyrir Watford í seinni
hálfleik og liðið fékk dauðafæri til
að tryggja sér sigur í blálokin.
Liverpool er með fimm stiga for-
skot í deildinni, vann Newcastle 3:1
á laugardaginn, þar sem Sadio
Mané skoraði tvívegis, á meðan
Manchester City tapaði óvænt fyrir
nýliðum Norwich, 3:2. Þar skoraði
Finninn Teemu Pukki sitt sjötta
mark fyrir Norwich á tímabilinu.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í
Everton máttu sætta sig við ósigur
gegn Bournemouth á útivelli, 3:1,
og er með sjö stig. Gylfi fór af velli
eftir 70 mínútna leik þegar staðan
var 2:1. Callum Wilson innsiglaði
síðan sigur Bournemouth með sínu
öðru marki. vs@mbl.is
AFP
Mark Roberto Pereyra fagnar jöfnunarmarki Watford gegn Arsenal.
Arsenal missti niður
forskotið í Watford