Morgunblaðið - 16.09.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 16.09.2019, Síða 32
Hjólafærni, Listasafn Reykjavíkur og Landssamtök hjólreiðamanna bjóða upp á hjólatúr með leiðsögn í dag, mánudag. Lagt er af stað frá Ásmundarsafni við Sigtún kl. 18 og hjólað um Laugardalinn og Foss- vog. Ferðin endar síðan við Mathöll Höfða. Aðgangur er ókeypis. Þátt- takendur eru hvattir til að klæða sig eftir veðri. Listin og náttúran í umhverfinu á hjóli MÁNUDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Valskonur voru aðeins nokkrum sekúndum frá því að tryggja sér Ís- landsmeistaratitil kvenna í knatt- spyrnu í gærkvöld. Heiðdís Lillýj- ardóttir jafnaði fyrir Breiðablik með síðustu snertingunni í uppbótartíma leiksins í uppgjöri toppliðanna á Kópavogsvelli. Valur stendur þó mun betur að vígi með tveggja stiga forskot fyrir loka- umferðina næsta laugardag. »27 Valskonur sekúndum frá meistaratitlinum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Haukar, Afturelding og ÍBV hafa öll unnið tvo fyrstu leiki sína í Olísdeild karla í handknattleik en fimm leikir af sex í annarri umferð fóru fram í gær. FH fékk sín fyrstu stig með sigri á Valsmönnum þar sem frábær byrj- un lagði grunninn að sigri Hafnarfjarð- arliðsins. Haukar knúðu fram sigur á KA norður á Ak- ureyri. »25 Hafnarfjarðarliðin fögnuðu sigrum Á ENDANUM VELUR ÞÚ COROLLU VERÐUR ÞÚ HEPPINN ÁSKRIFANDI sem verður dreginn út 16. október? Allir áskrifendur Morgunblaðsins eru með í leiknum. Hér má sjá valkostina sem einn af áskrifendum okkar fær að velja um þegar hann fær að gjöf nýja og glæsilega Toyota Corolla.* Fylgstu með. *Heppinn áskrifandi fær að velja á milli Corolla Hatchback, Corolla Touring Sports og Corolla Sedan; þriggja glæsilegra Hybrid-bíla með 1,8 lítra vél í Active-útfærslu. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ég er appelsínugulur og grænn í gegn,“ segir Bjartur Aðalbjörns- son, fyrirliði karlaliðs Einherja á Vopnafirði í knattspyrnu. Bjartur hefur undanfarin miss- eri unnið að því að skrásetja sögu félagsins. Við þá vinnu komst hann að því að Einherji var í raun stofnaður árið 1929 en ekki 1925 eins og jafnan hefur verið talið. Félagið fagnar því 90 ára afmæli síðar á árinu en söguritunin er ekki komin það langt hjá Bjarti að nokkuð verði gefið út af því tilefni. „Ég hef alltaf verið mikill áhugamaður um gamla Einherja- tíma og langaði að vita við hvað var fengist áður en knattspyrnan fór á fullt árið 1974,“ segir Bjart- ur sem hefur sótt sér fróðleik á Héraðsskjalasafn Austurlands, í tímarit og dagblöð auk þess sem félagatöl og fundargerðabækur hafa varðveist. Annars hefur illa verið haldið utan um sögu félags- ins að mati fyrirliðans sem rennur blóðið til skyld- unnar. Verkefnið lagðist á sálina „Ég tók ákvörðun um það á síðasta ári að hægja á og safna heim- ildum bara í rólegheit- um. Þetta var orðið svo stór hluti af lífi mínu og farið að leggjast svo á sál- ina að ég ætlaði ekki að gera sjálfum mér það að stressa mig um of. Þetta var bara orðið of stórt verkefni,“ segir Bjartur sem sér fyrir sér að búa til ramma sem hann eða einhver annar geti unnið eftir og mögu- lega skilað af sér sögu félagsins á hundrað ára af- mælinu. Sjálfur væri hann spenntastur fyrir að gera heim- ildarmynd um sögu Einherja. Bjartur hvetur þá sem luma á góðum sögum, fróðleik eða ljós- myndum úr sögu Einherja að hafa samband við sig, til að mynda í gegnum netfangið bjart- ur@einherji.net. Bjartur á ekki langt að sækja áhugann á Ein- herja. Pabbi hans, Að- albjörn Björnsson, er annar leikjahæsti leik- maður félagsins og sat í stjórn þess um áratugaskeið auk þess að þjálfa liðið. Mamma hans, Adda Tryggva- dóttir, lék með kvennaliðinu á tíunda áratugnum og yngri bróð- irinn Heiðar er varafyrirliði Einherja í dag. Bjartur segir að gullaldarár Einherja hafi verið á níunda ára- tugnum. Þá spilaði liðið sex tíma- bil í næstefstu deild og var hárs- breidd frá því að komast upp í efstu deild árið 1986. Liðið var þá eingöngu skipað heimamönnum fyrir utan markmann og þjálfara sem verður að teljast markvert í ekki stærra bæjarfélagi en Vopnafjörður er. Félagið byggði sundlaugina Fyrirliðinn segir að annað at- riði í sögu Einherja hafi vakið sérstaka athygli sína. „Það stærsta sem þetta félag hefur gert var þegar það byggði sund- laugina í Selárdal,“ segir hann en sú laug þykir ein sú skemmtileg- asta á landinu og er bæði róm- aður samkomustaður heimamanna og vinsæll viðkomustaður ferða- manna. Bjartur er 25 ára gamall en er samt að ljúka ellefta tímabili sínu í meistaraflokki með Einherja. Hann segist aðspurður vera að nálgast 150 leiki með félaginu. „Markmiðið er auðvitað að ná pabba sem spilaði 251 leik,“ segir fyrirliðinn. Fyrirliðinn skráir sjálfur sögu félagsins  Bjartur Aðalbjörnsson uppgötvaði að Einherji var stofnaður 1929 Ljósmynd/Jóhann Árnason Einherji Aðalbjörn Björnsson, faðir Bjarts, í leik gegn Skallagrími 1984. L jó sm yn d/ Jó n R ag na r H el ga so n Fyrirliðinn Bjartur Aðalbjörnsson hefur leikið í ellefu ár með Einherja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.