Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 8. S E P T E M B E R 2 0 1 9
Stofnað 1913 219. tölublað 107. árgangur
MARTEINN
FINNUR SINN
STAÐ Í HEIMINUM
MERKJA VÖXT Í
KVIKMYNDA-
FRAMLEIÐSLU
ENN Á FULLU Í
LEIKHÚSINU
OG SKRIFUM
VIÐSKIPTAMOGGINNSVEINN EINARSSON 22 ÚTGÁFUTÓNLEIKAR 28
Heiðar Guðjónsson, forstjóri Sýn-
ar, telur ástæðulaust að hafa
áhyggjur af því að Huawei gæti
komist í stjórnkerfi á Íslandi í
gegnum „bakdyr“ fyrirhugaðs 5G-
kerfis.
Tilefnið er að Mike Pence, vara-
forseti Bandaríkjanna, varaði í
heimsókn sinni íslensk stjórnvöld
við að nota búnað frá kínverska
fjarskiptarisanum Huawei. Þá
meðal annars af öryggisástæðum.
Svo vill hins vegar til að Voda-
fone og Nova nota að hluta búnað
frá Huawei. Unnið er að innleið-
ingu 5G-kerfisins á Íslandi og seg-
ir Margrét Tryggvadóttir, forstjóri
Nova, að stefnt sé að því að taka
nýja kerfið í notkun 2020. Nova
taki öryggismálin mjög alvarlega.
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri
Póst- og fjarskiptastofnunar, segir
ESB vera að móta stefnu varðandi
5G-kerfið sem hafi ekki verið inn-
leidd í EES-samninginn.
Hrafnkell segir aðspurður að
svonefndar birgjakeðjur og öryggi
þeirra sé til umræðu um allan
heim. Til að tryggja öryggi þurfi
að skoða allan búnaðinn. Það komi
m.a. til greina að horfa til flugiðn-
aðarins og vottunar allra íhluta í
fluginu. Slík vinnubrögð geti hugs-
anlega gagnast fyrir fjarskipta-
kerfi. Hann telji rétt að horfa á
málið í stóru samhengi en ekki
einskorða umræðuna við einstök
félög. baldura@mbl.is » 10
Ástæðulaust að
óttast Huawei
Forstjóri Sýnar hafnar bakdyraleið
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Það sem af er þessu ári hefur orðið
481 atvik á bráðamóttöku Landspít-
alans þar sem eitthvað hefur farið
úrskeiðis við meðhöndlun sjúklinga.
Hefur slíkum atvikum fjölgað síð-
ustu ár. Sem dæmi má nefna að allt
árið 2009 urðu 318 atvik.
Spurð um ástæður þess að atvik-
um hefur fjölgað segir Elísabet
Benedikz, yfirlæknir á gæða- og
sýkingarvarnadeild Landspítalans,
að augljósar orsakir sé að finna í
umhverfi bráðamóttökunnar; örtröð
sjúklinga á bráðamóttökunni og
aukið álag á starfsfólk, hindrun á
flæði á viðeigandi þjónustustig
(legudeildir, gjörgæslu) vegna ör-
traðar á legudeildum og skorts á
plássum og starfsfólki á þessum ein-
ingum.
Alvarleg atvik sem skráð eru í
flokki 3 á sjúkrahúsinu, það er að
segja tilvik þar sem sjúklingur hefur
orðið fyrir varanlegum miska eða
látist, eru 18 á tíu ára tímabili. Þar
af hafa 12 þeirra orðið á sl. þremur
árum og tvö það sem af er þessu ári.
Fjöldi meðalalvarlegra atvika, í
flokki 2, hefur haldist nokkuð svip-
aður sl. fimm ár. Fjölgunin er mest í
flokki 1 þar sem minna alvarleg at-
vik eru skráð. Atvikum sem tengjast
lyfjameðferð hefur fjölgað mjög síð-
ustu ár og þá hefur byltum einnig
fjölgað á bráðamóttökunni. »4,14
Örtröð og álag valda
atvikum á bráðamóttöku
Mistökum í lyfjameðferð og byltum hefur fjölgað
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Bráðamóttaka Mikið er að gera við
aðhlynningu veikra og slasaðra.
Lítil eins hreyfils flugvél brotlenti á Skálafelli um miðjan dag
í gær. Eldur kom upp í vélinni og er hún illa brunnin. Flug-
maðurinn var einn í vélinni og var hann fluttur á bráða-
móttöku. Fulltrúar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu og rannsóknarnefndar samgönguslysa luku
athugun á flaki vélarinnar og umhverfi seint í gærkvöld. »2
Morgunblaðið/Hari
Sérfræðingar rannsaka flak flugvélar sem brotlenti á Skálafelli