Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Við framleiðum lausnir Sími 577 6700 / islandshus@islandshus.is / www.islandshus.is UMFERÐAREYJAR Sérlausnir fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki Henta vel til að stýra umferð, þrengja götur og aðskilja akbrautir. Til eru margar tegundir af skiltum, skiltabogum og tengistykkjum sem passa á umferðareyjarnar. Angel Gurria, framkvæmdastjóriOECD, átti leið til landsins og Morgunblaðið ræddi við hann af því tilefni. Athyglisvert er fyrir Íslend- inga að sjá hvernig framkvæmda- stjórinn horfir á stöðu efnahags- mála og lífskjara hér á landi og er óhætt að segja að augu gestsins sjái stöðuna með nokk- uð öðrum hætti en sumir þeir lands- menn sem tjá sig um sömu mál.    Gurria ræddiójöfnuð og ókosti hans, en sagði Ísland vont dæmi til að taka um ójöfnuð, enda væri Ísland það land „sem hefur einna lægstan Gini-stuðul og hér er lítill ójöfnuður almennt. Hér er launajöfnuður og munur hámarks- og lágmarkslauna er ekki svo mik- ill“. Hann sagði einnig að staða Ís- lands væri góð með hliðsjón af landsframleiðslu og að Íslendingar hefðu endurheimt fyrri styrk eftir efnahagskreppuna 2008.    Og hann bætti við: „Út frásjónarhóli fjölskyldna, jöfn- uðar o.fl. er Ísland eitt allra best stadda land OECD, t.d. hvað varðar atvinnuleysi. Í samanburði við önn- ur OECD-lönd gengur Íslandi vel, hér eru lífsgæði mikil.“    Við þetta má bæta þeirri stað-reynd að hér á landi fer mun hærra hlutfall landsframleiðsl- unnar í að greiða laun en þekkist innan OECD. Það þýðir með öðrum orðum að íslenskir launþegar fá í sinn hlut stærri sneið af þjóðarkök- unni gómsætu en launþegar ann- arra landa.    Mikilvægt er að hafa þetta íhuga þegar umræður um ójöfnuð, misrétti og jafnvel arðrán fara á flug. Angel Gurria Lífsgæði eru mikil á Íslandi STAKSTEINAR Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæð- inu hefur hafnað lögbannskröfu Neytendasamtakanna á innheimtu- fyrirtækið Almenna innheimtu ehf. og forsvarsmann þess, Gísla Kr. Björnsson. Breki Karlsson, formaður Neyt- endasamtakanna, staðfesti þetta í samtali við mbl.is í gær. Samtökin kröfðust lögbannsins vegna þess að þau telja fyrirtækið beita ólögmætum aðferðum við innheimtu krafna fyrir smálán þannig að hlutfallstala kostn- aðar sé mun hærri en lög heimili. Áfrýjað og fer fyrir dóm Breki segir að rökstuðningur sýslumanns hafi verið á þá leið að fólk geti sjálft sótt kröfur sem það eigi inni hjá fyrirtækinu. „Við ætlum að áfrýja þessu og fara með málið fyrir dóm,“ segir Breki. „Við unum þessu ekki og teljum almannaheill vera undir.“ Krafa Neytendasamtakanna var sett fram með aðstoð VR. Von er á frekari aðgerðum gegn smálánafyrir- tækjunum og þeim fyrirtækjum sem aðstoða þau við að viðhalda ólöglegri starfsemi gegn neytendum sem eiga erfitt með að bera hönd fyrir höfuð sér. Sýslumaður hafnaði lögbannskröfu  Neytendasamtökin áfrýja niðurstöðu sýslumanns vegna smálánafyrirtækja Morgunblaðið/Eggert Neytendur Breki Karlsson er for- maður Neytendasamtakanna. Hafin er landssöfnun á birkifræjum og er söfnunin liður í verkefni sem snýr að endurheimt birkiskóga, sem eru mikilvægur þáttur í uppgræðslu lands og kolefnisbindingu. Fjallað er um átakið á heimasíðu Land- græðslunnar og segir þar að 2019 sé ekki gott fræár fyrir birki. Víða megi þó finna tré með gott fræ. Stóraukin útbreiðsla innlendra trjá- tegunda sé mjög öflug leið til að draga úr og aðlagast áhrifum lofts- lagsbreytinga. „Slakt fræár ætti að vera enn meiri hvatning fyrir fólk til að fara á stúfana og leita uppi falleg tré með gott fræ. Með fræsöfnun hjálpum við náttúrunni til að hjálpa sér sjálf. Söfnun birkifræs er góð ástæða til að komast út og njóta fallegra haustdaga. Auk þess er fræsöfnun prýðileg fjölskylduskemmtun og er full ástæða til að hvetja vinnufélaga til að fara í fræsöfnunarferðir,“ seg- ir á heimasíðunni. Umhverfisvæn verðlaun Fræið þarf að vera þurrt í pokun- um og best er að koma pokunum sem fyrst á söfnunarstaði. Ef söfn- unarpokum er ekki skilað strax þarf að geyma þá í kæli. Nöfn þeirra sem safna þurfa líka að fylgja fræpok- unum. Átakinu lýkur um miðjan október og þá verður dregið úr nöfnum þeirra sem söfnuðu fræi og umhverfisvæn verðlaun verða veitt. Landgræðslan, Olís og Heklu- skógar standa fyrir átakinu. Söfn- unarpokar eru fáanlegir víða á Olís- stöðvum, sem einnig taka við pok- unum þegar fólk er búið að safna fræi í þá. Heimasíða átaksins er: www.olis.is/birkifrae. Landssöfnun hafin á birkifræjum  Ekki gott fræár, en samt má víða finna góð birkitré Ljósmynd/Landgræðslan Birkifræ Fræsöfnun þykir vera prýðileg fjölskylduskemmtun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.