Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 11

Morgunblaðið - 18.09.2019, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Ísland lendir í 6. sæti af 149 þjóðum heims á lista stofnunarinnar Social Progress Imperative (SPI) þegar mæld eru lífsgæði og styrkur fé- lagslegra framfara. Norðmenn eru efstir á listanum, annað árið í röð, og fyrir neðan þá koma Danir, Sviss- lendingar, Finnar og Svíar. Fyrir neðan Ísland á topp-10 listanum eru Nýsjálendingar, Þjóðverjar, Kan- adabúar og Japanir. Úttekt þessi hjá SPI er nú gerð í sjötta sinn. Í ár er tekið mið af því hvar þjóðir heims standa þegar kem- ur að Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Vísitalan hjá SPI segir til um hæfni samfélaganna til að mæta grunnþörf- um borgaranna, stuðla að og viðhalda lífsgæðum þeirra og veita einstak- lingum tækifæri til betra lífs. Í til- kynningu frá SPI á Íslandi er vísital- an sögð endurspegla heildstæða mynd af samfélagslegum og um- hverfislegum þáttum og aðgreini sig þannig frá öðrum mælikvörðum. Ísland í 1. sæti í 15 flokkum SPI mælir alls 51 undirþátt í sinni vísitölu. Þegar horft er til allra þess- ara þátta hafa 137 þjóðir af 149 verið að bæta sig frá árinu 2014, þegar fyrsta mæling SPI fór fram. Sem fyrr segir skorar Noregur hæst, fær núna 90,95 stig af 100 mögulegum og sýnir framfarir á öll- um sviðum. Ísland er í sjötta sætinu með 89,29 stig og hefur síðan 2014 sýnt nokkurn stöðugleika í mæling- unum. Hefur Ísland ekki verið með betri útkomu í mælingum SPI. Af þessum 51 undirþætti er Ísland í 1. sæti í 15 flokkum. Þannig er Ísland númer eitt þegar kemur að aðgengi að rafmagni. Þá er hvergi í heim- inum t.d. meira umburðarlyndi gagnvart minnihlutahópum en á Ís- landi, þátttaka þeirra í samfélaginu er mest hér og ofbeldi í þeirra garð hvergi minna. Ísland er líka í efsta sætinu þegar kemur að jákvæðu við- horfi til samkynhneigðra. Einn helsti veikleiki Íslands sam- kvæmt úttekt SPI er í undirþáttum sem mæla málefni umhverfisgæða, vatns og hreinlætis. Þar erum við eftirbátar þeirra þjóða sem hafa sambærilegar tekjur. Lægsta skor Íslands, eða 62,36, er síðan gagnvart framhaldsmenntun. Lífsgæði og félagslegar framfarir á Íslandi Árið 2019 skv. lista Social Progress Imperative-stofnunarinnar Heimild: Social Progress Imperative Grunnþarfir 98,30 Grunnstoðir velferðar 87,91 Tækifæri 81,66 Heilbrigði 98,74 Vatn og hreinlæti 99,70 Húsnæði 98,63 Öryggi 96,13 Grunnmenntun 97,05 Upplýsingar og samskipti 90,09 Heilsa og líðan 87,88 Umhverfisgæði 76,61 Borgaraleg réttindi 95,17 Persónufrelsi 87,14 Þátttaka 81,97 Framhaldsmenntun 62,36 Í 6. sæti félags- legra framfara  Ísland ekki náð hærra í mælingu SPI Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Íbúum hér á svæðinu fjölgar sem er ánægjulegt. Sem dæmi má nefna að hér er minnst fækkun barna í dreif- býli á landinu og börnum í skólanum fjölgar. Sú staðreynd veit á gott um framtíðina,“ segir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, nýr sveitarstjóri í Húnaþingi vestra. Hún kom til starfa nyrðra 15. ágúst. Það segir nokkuð um stöðu mála á svæðinu að henni var þá ómögulegt að fá húsnæði á Hvammstanga, þar sem skrifstofur sveitarfélagsins eru. „Ég er svo sem ekki á flæðiskeri stödd. Bý um þessar mundir í fínni íbúð frammi í Miðfirði, sem er um það bil 15 kílómetra frá Hvamms- tanga og ek þaðan til vinnu, sem þykir ekki mikið miðað við vega- lengdir á höfuðborgarsvæðinu. Svo er ég alin upp í sveit og líkar vel í því umhverfi,“ segir Ragnheiður Jóna sem á síðasta ári var framkvæmda- stjóri hátíðahalda í tilefni af aldar- afmæli fullveldis Íslands. Fram á mitt þetta ár sinnti hún ýmsum verkefnum fyrir stjórnvöld í tilefni af 75 ára lýðveldisafmæli. Fyrr á árum starfaði hún hjá Ey- þingi, samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi eystra, og þekkir því vel til sveitarstjórnarmála. Íbúðarhúsnæði í byggingu „Nú er verið að byggja talsvert af íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu, bæði á Hvammstanga og í dreifbýl- inu,“ segir Ragnheiður Jóna. „Hér í Húnaþingi vestra hefur verið hús- næðisskortur sem kemur auðvitað til af því að atvinnuástandið er gott. Landbúnaður, ferðaþjónusta, önnur þjónusta og ýmis starfsemi í tengslum við landbúnaðinn er undir- staðan í atvinnulífinu hér og þar hafa góðir hlutir verið að gerast að undanförnu. Því er óhætt að segja að atvinnulíf, þjónusta, menning og mannlíf sé gott í sveitarfélaginu og því sækir fólk hingað.“ Í Húnaþingi vestra búa í dag 1.204 manns og hefur fjölgað um 22 frá sl. áramótum. Þetta er víðfeðmt sveit- arfélag; nær frá sunnanverðum Ströndum og Hrútafirði að Gljúfurá í Hópi í austri – og svo á hinn veginn frá ströndinni og langt inn til dala. Sveitirnar eru grösugar og þar eru meðal annars rekin stór og afurða- góð sauðfjárbú. Þá hefur vakið at- hygli að ungt fólk er að taka við bú- skap á allmörgum bæjum í Húna- þingi vestra sem endurspeglast í þjónustu sem snýr að ungu fólki; það er skólar, íþróttaaðstaða og fleira. Flóttafólkið samlagast „Rekstur sveitarfélagsins er í góðu jafnvægi. Við höfum ágætt svigrúm til þess að sinna öllum helstu lögboðnum verkefnum og rekum trausta velferðarþjónustu, sem gerði okkur mögulegt að taka á móti 23 flóttamönnum frá Sýrlandi sem komu hingað í vor. Því fólki gengur mjög vel að samlagast sam- félaginu.“ Staðreynd sem veit á gott  Fólksfjölgun í Húnaþingi vestra  Reksturinn í jafnvægi, segir nýi sveitarstjórinn, Ragnheiður Jóna Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hvammstangi Íbúum Húnaþings vestra hefur verið að fjölga enda er góður gangur í atvinnulífi á svæðinu. Mikill uppgangur hefur verið í Skot- veiðifélagi Íslands undanfarna 18 mánuði og hefur félögum fjölgað um yfir 800 manns á tímabilinu. Á þriðjudag í liðinni viku gekk Skotvís í Evrópska skot- veiðisambandið og aðildinni fylgir meðal annar samningur við Bird Life Int- ernational. Áki Ármann Jónsson, formað- ur Skotvís, minn- ir á að Skotvís sé náttúruverndar- og umhverfis- samtök. Unnið sé að því að endur- heimta votlendi, raska ekki líffræði- legum fjölbreytileika og vernda búsvæði dýra. Evrópska skotveiði- sambandið sé málsvari um sjö millj- ón veiðimanna í Evrópu og berjist meðal annars gegn ágengum inn- fluttum dýrategundum. Hérlendis sé minkurinn helsti skaðvaldurinn en á meginlandinu séu mun fleiri ágengar tegundir eins og til dæmis marð- hundur og villisvín. Með aðildinni hefur Skotvís að- gang að sérfræðingum sem vinna hjá Evrópska skotveiðisambandinu og hefur rödd þar. Þó að tegundir eigi undir högg að sækja á tilteknum svæðum sé það ekki algilt. Því skipti miklu máli að vita hvað sé verið að gera í alþjóðasamningum hverju sinni svo hægt sé að bregðast við og gera fyrirvara ef á þarf að halda. Þannig hafi Ísland, Grænland og Færeyjar gert fyrirvara við algjöru banni við lunda- og álkuveiðum, því nóg sé af þessum tegundum á nefnd- um svæðum, þó að lundinn sé nær horfinn á Bretlandi og í Skandinavíu. Samstarfið við Bird Life ber með sér fuglaverndunarstefnu. Áki segir að Skotvís leggi áherslu á hóflegar veiðar. „Villtir stofnar eiga ekki að standa undir atvinnuveiðum,“ árétt- ar hann. „Skotvís er sportveiði- samtök, þar sem menn veiða hóflega og njóta náttúrunnar, upplifunin er mikilvægari en fjöldi veiddra dýra.“ Þegar Áki tók við formennsku í fé- laginu í febrúar 2018 voru um 1.100 manns í því en nú eru yfir 1.900 fé- lagsmenn. Boðið hafi verið upp á fyrsta árið frítt í samstarfi við veiði- verslunina Hlað og tilboðið hafi sleg- ið í gegn. steinthor@mbl.is Félögum fjölg- ar ört í Skotvís  Aukin þátttaka í alþjóðasamstarfi Áki Ármann Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.