Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 ✝ Guðjón Jó-hannes Guð- jónsson (Gutti) frá Patreksfirði, lengst af búsettur í New Plymouth á Nýja-Sjálandi, fæddist hinn 21. ágúst 1957 á Pat- reksfirði. Hann lést á heimili sínu á Nýja-Sjálandi hinn 13. september 2019 eftir erfið veikindi. Foreldrar hans voru Erla Guðjónsdóttir húsmóðir, f. 17. maí 1922, d. 25. nóvember 1997, og Guðjón Jóhannesson byggingameistari, f. 28. janúar 1911, d. 13. september 1993. Systkini hans eru Friðrik Vagn, f. 23. desember 1950, Hermann, f. 17. október 1952, Björgvin, f. 20. febrúar 1959, og Dýrleif, f. 16. mars 1963. Gutti kvæntist 11. febrúar á Akureyri en hætti þar á þriðja vetri og fór aftur til Pat- reksfjarðar og lauk þar námi í rafvirkjun. Á Patreksfirði kynnist Gutti konu sinni, Vivi- enne Iveson (Viv), en hún kom þangað til að vinna. Gutti og Viv hófu búskap á Patreksfirði en fluttu síðan til heimabæjar Viv á Nýja-Sjálandi árið 1980. Þegar þangað kom hóf Gutti að vinna sem rafvirki hjá olíu- og gasframleiðslufyrirtæki og bætti fljótlega við sig námi í stýritækni, m.a. í Taranaki Polytechnic-skólanum. Eftir það vann hann sem kerfisstjóri hjá stóru raforkufyrirtæki við uppsetningu og rekstur tölvu- stýrikerfa í orkuverum þess. Allt frá barnæsku var tón- listin samofin lífi Gutta. Hann spilaði undir söng skólafélag- anna á menntaskólaárunum, spilaði með hljómsveitum á Patreksfirði og var í hljómsveit á Nýja-Sjálandi allt fram undir það síðasta og spilaði þar á klúbbum og við ýmsar athafn- ir. Útför Gutta fer fram í New Plymouth á Nýja-Sjálandi í dag, 18. september 2019. 1981 Vivienne Ive- son matráði, f. 21. júlí 1955, frá New Plymouth á Nýja- Sjálandi. Börn þeirra eru: 1) Thor, f. 11. febr- úar 1982, löggiltur endurskoðandi á Nýja-Sjálandi. Maki Hamish Ro- gers. 2) Benjamin, f. 4. desember 1983, mælingaverkfræðingur í Ástralíu. 3) Lena Rose, f. 17. mars 1989, starfar á leikskóla á Nýja-Sjálandi. Maki Jeremy Hawkes. Barn þeirra er Murphy Odinn, f. 2. maí 2019. Gutti ólst upp í Urðargöt- unni á Patreksfirði. Á ung- lingsárunum var hann í sveit á sumrin á Látrum eða stundaði almenn störf á Patró, bæði á sjó og landi. Haustið 1973 hóf hann í nám í Menntaskólanum Þegar við systkinin minnumst bróður okkar, Gutta, kemur ým- islegt upp í hugann. Orð eins og glaðværð, frelsi, traust, sannur vinur og klettur lýsa honum vel. Snemma vaknaði áhugi hans á tónlist. Þegar hann var um það bil sex ára stóð hann í fyrsta sinn á sviði í Skjaldborg frammi fyrir „mörgum“ áhorf- endum og spilaði á harmóník- una sína. Honum varð svo mikið um fagnaðarlætin að þegar hann kom heim fór hann að há- gráta og taldi víst að nú væri hann orðinn svo frægur að hann yrði tekinn frá foreldrum sínum og sendur til útlanda til að spila á skemmtunum. Seinna átti hann reyndar eftir að verða „heimsfrægur“ á Patró ásamt spilafélögunum í hljómsveitinni Lóu léttlyndu. Vinskapur þeirra var einstakur og órjúfanlegur alla ævi. Eftir eril dagsins settist Gutti oft niður við eldhúsborðið og spilaði af fingrum fram á gít- arinn fyrir mömmu, og saman nutu þau tónlistarinnar. Aðrir fjölskyldumeðlimir bættust oft í hópinn og úr varð núvitund þess tíma. Atvikið þegar Gutti fékk í fyrsta skipti útborguð laun lýsir honum líka vel. Hann afhenti mömmu peningaumslagið með þeim orðum að nú skyldi hún kaupa sér flík sem hana hafði svo lengi langað í. Hún hefði miklu meiri not fyrir peninga en hann. Gutti þráði alltaf frelsi og það kom vel fram þegar hann, mjög ungur að árum, skreið undir garðhliðið heima til að leita nýrra ævintýra utan girðingar. Því kom það ekki á óvart að hann settist að í fjarlægu landi með unnustu sinni. Það var þó með miklum trega að foreldrar okkar kvöddu Gutta og Viv í desember 1980, þegar þau fluttu til Nýja-Sjálands. Þau vissu sem var að þau myndu lítið hitta Gutta í framtíðinni þar sem vegalengdir voru miklar og dýrt var að ferðast. Pabbi sá hann aðeins einu sinni eftir þetta og mamma þrisvar sinnum. Á Nýja-Sjálandi leið honum vel. Þar átti hann góða fjöl- skyldu og eignaðist stóran og traustan vinahóp. Hann vann lengst af við kerfisstjórn og var vel liðinn á vinnustað sínum. Hann átti einnig fjölmörg áhugamál, svo sem garðrækt en þar voru rósirnar líf hans og yndi. Tónlistin var að sjálfsögðu áfram stór þáttur í lífi hans og hann spilaði í ýmsum hljóm- sveitum við margvísleg tæki- færi. Hann saknaði þó ættingja og vina á Íslandi og hélt ávallt góð- um tengslum við þá. Hann kom nokkrum sinnum í heimsókn hingað og er okkur sérstaklega minnisstætt þegar hann kom með alla fjölskylduna til að halda upp á fimmtugsafmælið sitt. Þá fórum við systkinin með fjölskyldum okkar vestur á Patró, styrktum fjölskyldubönd- in enn frekar og rifjuðum upp gamlar minningar. Gutti var, ásamt konu sinni Viv, kletturinn í stóru nýsjá- lensku fjölskyldunni og andlát hans skilur eftir sig stórt skarð. Hann elskaði fjölskyldu sína og kappkostaði að búa hana undir framtíðina. Hann fékk uppfyllta ósk sína um að vera heima allt til enda og naut ástríkrar umönnunar sinna nánustu. Fyrir það erum við ævinlega þakklát. Við send- um þeim okkar innilegustu sam- úðarkveðjur og erum hjá þeim í huganum. Við kveðjum góðan dreng og bróður með þakklæti í hjarta. Friðrik Vagn, Hermann, Björgvin og Dýrleif. Gutti var ávallt glaður og sér- fræðingur í að sjá ljósu hlið- arnar á öllum málum rétt eins og mamma hans var. Hann tal- aði aldrei illa um annað fólk eða slúðraði nema þá í gríni eða smá stríðni sem allir máttu heyra. Á yngri árum þegar Gutti átti mótorhjól var stundað að skjót- ast í sund t.d. til Tálknafjarðar og þá var jafnvel skotist fyrir bíó sem var á fimmtudagskvöld- um. Þetta voru frábærir tímar; þegar mönnum datt eitthvað í hug þá var það framkvæmt. Eitt sinn endaði einn mótor- hjólatúrinn óvænt við Reykja- fjarðarlaug í Arnarfirði. Hand- klæðalausir og í nærbuxunum var farið í sund. Þegar kom að því að þurrka sér dóu menn ekki ráðalausir því þá var stigið á hjólin á nærbuxunum einum fata og keyrt fram og til baka í fjörunni til að láta vindinn þurrka sig. Ég man ekki eftir að hafa farið með Gutta í fatabúð að kaupa ný föt; stuttermabolur, Álafossúlpa og gallabuxur virk- uðu í allt. T.d. man ég ekki eftir að hafa séð Gutta í jakka. Hann var í raun langt á undan sinni samtíð þegar kemur að rifnum gallabuxum. Einar þeirra mátti mamma hans stagbæta því alls ekki mátti henda þeim þótt gamlar væru, þær voru svo þægilegar að vera í. Í dag væru þessar buxur gulls ígildi og hæstmóðins. Gutti lærði á orgel sem ung- lingur en spilaði ekki mikið á slíkt hljóðfæri opinberlega. Tón- fræðin hins vegar sem hann nam í orgelnáminu kom að góð- um notum síðar í hljómsveit- arbransanum bæði við gítar- og bassaleik þegar grufla þurfti upp hljóma í lögum. Gutti hafði gaman af ýmis- konar sprelli. Eitt sinn er hann vann hjá Vegagerðinni og það var Jónsmessa stakk hann upp á því að menn færu út til að velta sér upp úr dögginni. Um miðnættið fóru nokkrir karlar út ásamt Gutta í þann leiðang- ur. Þegar halda átti heim skaust Gutti á undan og tók föt gömlu karlanna svo þeir þurftu að hlaupa naktir í búðirnar við mikinn fögnuð viðstaddra. Þegar Gutti stundaði nám í Menntaskólanum á Akureyri var mikið hlegið og gert enda- laust grín. Þegar hann og vinir hans komu sprellandi og hlæj- andi inn í matsalinn lifnaði yfir öllum í salnum bara við að heyra smitandi hlátur Gutta. Gutti var eldklár og átti auð- velt með að læra. Það sannaðist vel þegar tveir verkfræðingar í orkuverinu á Nýja-Sjálandi þar sem hann vann voru sendir á námskeið til Singapúr að læra á nýjustu græjurnar. Gutti hafði unnið mikið við uppsetningu á alls konar búnaði, var hann því látinn fljóta með á námskeiðið. Að námskeiðinu loknu þurfti að þreyta próf. Niðurstöðurnar úr prófinu urðu þær að Gutti brill- eraði þannig að stjórnendurnir í orkuverinu færðu hann upp í stöðu verkfræðings sem hann sinnti allar götur síðan. Í orkuverinu voru mörg krefjandi verkefni sem leysa þurfti bæði að nóttu sem degi og skoraðist Gutti aldrei undan og tók fullan þátt í því að leysa þau. Gutti, þú munt ávallt lifa með mér og takk fyrir allar frábæru stundirnar sem við höfum átt saman. Fjölskyldu þinni bæði á Nýja-Sjálandi og hér heima votta ég mína dýpstu samúð. Davíð Hafsteinsson. Enginn slítur þau bönd, sem hann er bundinn heimahögum sínum. Móðir þín fylgir þér á götu, er þú leggur af stað út í heiminn, en þorpið fer með þér alla leið. (Jón úr Vör) Nú hefur hann Gutti okkar, Guðjón Jóhannes Guðjónsson, lagt upp í sitt síðasta ferðalag. Hann kvaddi veröldina á Nýja- Sjálandi hinn 13. september sl. eftir erfið veikindi. Hann bjó þar í landi síðustu 40 árin en var þó alla tíð Íslendingur og var alltaf Patreksfirðingur. Hann tapaði ekki íslenskunni, beygingarnar voru réttar og framburðurinn þannig að það heyrðist ekki að hann hefði búið lengur annars staðar en á Ís- landi. Við vorum bekkjarfélagar frá upphafi skólagöngu okkar í Barnaskóla Patreksfjarðar þar til skólagöngu okkar lauk í þorpinu eftir skyldunámið, 3. bekk eða landspróf. Eftir að skólagöngu okkar lauk á Pat- reksfirði skildi leiðir, ýmist vegna náms, vinnu eða búsetu, og hópurinn dreifðist um víða. Öll eigum við minningar um Gutta sem við drögum nú fram, glaðværan mann, hláturmildan, lífsglaðan, námfúsan, tónelskan hljómsveitarstrák sem var í „böndum“ og spilaði á böllum í den, ein þeirra hljómsveita bar það skemmtilega nafn Lóa létt- lynda. Gutti spilaði líka í nýja landinu sínu. Hann var vinsæll maður og við minnumst hans með söknuði. Gutti flutti með Vivienne sinni til Nýja-Sjálands og áttu þau þar heimili ásamt börnun- um sínum þremur, komu nokkr- um sinnum í heimsóknir til Ís- lands. Eina slíka kom hann í 2011 þegar við fermingasystkin héldum upp á fjörutíu ára ferm- ingarafmæli okkar, margur leggur nú minna á sig en ferða- lag yfir hálfan hnöttinn og alla leið heim í þorpið okkar til að mæta í gott partí en Gutta mun- aði ekkert um það, – þessi heimsókn er meðal þeirra góðu minninga sem við eigum um kæran vin. Þessi orð Stephans G. Steph- anssonar eiga líka vel við Gutta: Þó þú langförull legðir sérhvert land undir fót, bera hugur og hjarta samt þíns heimalands mót, frænka eldfjalls og íshafs! sifji árfoss og hvers! dóttir langholts og lyngmós! sonur landvers og skers! Yfir heim eða himin hvort sem hugar þín önd, skreyta fossar og fjallshlíð öll þín framtíðar lönd! Fjarst í eilífðar útsæ vakir eylendan þín: Nóttlaus voraldar veröld þar sem víðsýnið skín. Það er óskaland íslenskt, sem að yfir þú býr – aðeins blómgróin björgin, sérhver baldjökull hlýr, frænka eldfjalls og íshafs! sifji árfoss og hvers! dóttir langholts og lyngmós! sonur landvers og skers! Eiginkonu Gutta, börnum, tengdabörnum og barnabarni, systkinum hans og fjölskyldum vottum við samúð okkar og minningin um Gutta lifir áfram. F.h. bekkjar- og fermingar- systkina, árgangs 1957, frá Pat- reksfirði, Sólveig. Guðjón Jóhannes Guðjónsson Kveðja frá Skátafélaginu Klakki Akureyri Ingólfur Ár- mannsson gekk ungur til liðs við Skátafélag Akureyrar og varð mjög virkur í starfi félags- ins. Hann var áberandi í for- ystusveit skátanna í bænum og var um árabil félagsforingi Skátafélags Akureyrar og gegndi ótal trúnaðarstörfum fyrir skátahreyfinguna. Ingólf- ur hafði mikil áhrif á þróun skátastarfs í bænum og á landsvísu. Hann var framkvæmdastjóri og erindreki Bandalags ís- lenskra skáta árin 1960-1964 og mótsstjóri landsmótsskáta 1966. Þótt hann væri lengstum eini starfsmaður bandalagsins tókst honum eindæma vel að standa fyrir og hafa forystu um öflugt fræðslustarf með nám- skeiðshaldi og ritun fræðsluefn- is. Áhersla Ingólfs á foringja- þjálfun, námskeiðshald og starfsemi tengda þjálfun skát- anna var í takt við ævistarf hans við kennslu, skólastjórn og starf menningarfulltrúa Ak- ureyrarbæjar. Þegar Ingólfur kom til bæj- Ingólfur Ármannsson ✝ Ingólfur Ár-mannsson fæddist 22. desem- ber 1936. Hann lést 1. september 2019. Útför Ingólfs fór fram 13. september 2019. arins aftur árið 1966 eftir nám og störf annars staðar varð hann á ný mjög virkur í starf- semi skátanna. Þau eru ófá verkefnin sem Ingólfur tók að sér að leiða fyr- ir skátahreyf- inguna stór og smá, bæði við upp- byggingu fé- lagsstarfsins og aðstöðu fyrir skátastarfið. Hann var m.a. einn af aðalskipuleggjendum umfangsmikilla hátíðarhalda í tilefni 50 ára afmælis skáta- starfs í bænum árið 1967. Árin þar á eftir voru mikil upp- gangsár í skátastarfi á Akur- eyri og naut þá skátafélagið ríkulega áhuga og starfskrafta Ingólfs. Þeir sem störfuðu með Ingólfi á þessum árum muna hugmyndaauðgi og þrautseigju hans við úrlausn verkefna. Ing- ólfur hafði marga kosti sem leiðtogi og fyrirmynd skátanna og var óhræddur við að fara ótroðnar slóðir í starfinu. Hann kenndi foringjum félagsins að sparka ó-inu framan af orðinu ómögulegt og breyta því í mögulegt og vinna samkvæmt því. Skátafélagið Klakkur og skátar á Akureyri þakka Ing- ólfi ríkulegt framlag til skáta- starfs í bænum og landinu öllu. Við vottum Hrefnu, eftirlifandi eiginkonu Ingólfs, og börnum þeirra innilega samúð. Skátakveðja, Tryggvi Marinósson. Sálm. 9.11 biblian.is Þeir sem þekkja nafn þitt treysta þér því að þú, Drottinn, bregst ekki þeim sem til þín leita. Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA MARÍA GUÐBJÖRNSDÓTTIR, Tjaldhólum 19, Selfossi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 1. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sérstakar þakkir viljum við senda til starfsfólks HSU fyrir einstaka umönnun og velvild. Auðunn Jónsson Sigríður Jóakimsdóttir Kjartan Viðar Sigurjónsson Jenný Jóakimsdóttir Þórdís Dögg Auðunsdóttir Árni Þór Kjartansson Arnar Ingi Þórsson Ellert Andri Þórsson Rósa Maren Vinson Askur Andri Árnason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.