Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019 Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Gítarleikarinn Andrés Þór Gunn- laugsson sendi nýverið frá sér sína sjöttu plötu, hljómplötuna Paradox sem Dimma gefur út. Af því tilefni heldur hann útgáfutónleika í Frí- kirkjunni í Hafnarfirði í kvöld kl. 20.30. Platan inniheldur níu frumsamda djassópusa sem sækja áhrif úr poppi, djassi og þjóðlagatónlist. „Innblásturinn kemur víða að,“ segir Andrés en andagift tónsmíðanna kom m.a. úr skammtafræði. „Þarna eru nokkur lög sem eru samin út frá eðlisfræðikenningu sem heitir Schrödinger’s cat. Það er ekki vegna þess að ég sé eitthvað sérstaklega vel að mér í eðlisfræði. Þetta er hug- mynd sem kom til mín þegar ég fór að sjá vin minn Sigurð Inga Erlings- son halda fyrirlestur þegar hann var að verða prófessor. Þessi vinur minn er eðlisfræðingur og það var ýmis- legt í þessum fyrirlestri sem ég skildi ekkert í en þetta með köttinn hans Schrödingers stóð einhvern veginn eftir.“ Milli lífs og dauða Umrædd tilraun er kennd við austurríska eðlisfræðinginn Erwin Schrödinger. Hún var framlag hans til skammtafræði. Í þessari tilraun „er sundrun frumeindakjarna í geislavirku efni látin koma af stað atburðarás sem endar með því að köttur lætur lífið af blásýrueitrun. Engin leið er hins vegar að segja til um hvenær sundr- unin verður og þessi óvissa veldur því að samkvæmt skammtafræði er kötturinn lengst af í eins konar milli- bilsástandi milli lífs og dauða“, segir á Vísindavefnum. „Mér fannst þetta skemmtilegur titill á lagi og sam- nefnt lag var akkúrat að verða til á þeim tíma sem ég fór á fyrir- lesturinn,“ segir Andrés. Þverstæða í ketti og tónlist Ketti Schrödingers er stundum lýst sem þverstæðu. Það helst í hendur við titil plötunnar, Paradox. „Það er í raun tengingin í þessa skammtafræðipælingu sem býr að baki titlinum. Paradox er í raun þverstæða eða þversögn og þessi kenning er það sömuleiðis,“ segir Andrés. Þverstæður leynast á fleiri sviðum Paradox. „Þverstæðuna er líka að finna í tónlistinni. Á plötunni er ég að vinna með ólík form djassins, eitt- hvað sem minnir mig á evrópskan djass en á sama tíma eitthvert riff sem gæti verið í einhverju rokklagi. Ég leyfi ólíkum hlutum að mætast þarna.“ Þrír hljóðfæraleikarar spila með Andrési á plötunni; Agnar Már Magnússon á píanó og tveir tónlist- armenn frá New York, þeir Orlando Le Fleming á bassa og Ari Hoenig á trommur. Andrés kveðst hafa ein- blínt á að skapa tónlist sem myndi henta allri hljómsveitinni. „Alltaf þegar ég sem efni sem ég ætla mér að setja á plötu einbeiti ég mér að því að finna einhvern sameig- inlegan þráð, eitthvað sem passar saman og fyrir tónlistarmennina sem ég er að fara að spila með,“ seg- ir Andrés. Platan tekin upp í New York Andrés hefur unnið mikið með Agnari og fóru þeir félagar til New York í þeim tilgangi að taka Paradox upp með Orlando og Ara. „Þeir eru hátt skrifaðir í senunni úti. Ari spilaði líka á síðustu plötunni minni. Ég hef ekki unnið með Or- lando áður en þetta eru menn sem ég hef hlustað á lengi og þeir spila mikið með þeim músíköntum sem ég sæki áhrif í og hlusta á.“ Andrés segir plötuna sjálfstætt framhald af plötunni Ypsilon sem hann sendi frá sér 2016. „Þar var ég líka að semja fyrir alþjóðlegt band en maður er svo tengdur þessum verkefnum sjálfur að ég held að tím- inn þurfi að leiða í ljós hvort mér finnist ennþá að hún sé framhald af Ypsilon seinna meir,“ segir Andrés. Á útgáfutónleikunum á morgun, fimmtudag, verður annar trommu- leikari en sá sem spilaði á plötunni, Colin Stranahan, sem einnig kemur frá New York. Á tónleikunum mun hljómsveitin spila plötuna í heild sinni. Einnig munu þeir koma fram í Bókasafni Sandgerðis á vegum Jazzfjélags Suðurnesja í kvöld kl. 20. Miða á útgáfutónleikana er hægt að nálgast á Tix.is. Fjárfesta má í plötunni á tónleikunum sjálfum, hjá Dimmu eða í helstu plötubúðum. Innblásinn af skammtafræði  Níu frumsamdir djassópusar eru á breiðskífu Andrésar Þórs Gunnlaugssonar gítarleikara  Hann segir kött Schrödingers hafa blásið sér andagift í brjóst Ljósmynd/Ólafur Már Svavarsson Tónar Hér mundar Andrés gítarinn og Agnar leikur á flygilinn. Þeir hafa oft unnið saman í gegnum tíðina. Íslandsdeild ICOMOS efnir til mál- þings um verndun menningarminja í þéttbýli í Norræna húsinu í dag milli kl. 13 og 17. „Fornleifarann- sóknir í þéttbýli eru í flestum til- vikum vegna framkvæmda. Fram- kvæmdarannsóknir vekja gjarnan mikla athygli og í tengslum við þær vakna ýmis álitamál er snerta laga- umhverfi og framkvæmd slíkra rannsókna. Á málþinginu verða kynnt sáttmálar og samþykktir ICOMOS sem snerta verndun minja í þéttbýli. Í sex erindum verður fjallað um ýmsa þætti sem fengist hefur reynsla af með framkvæmda- rannsóknum síðari ára, sem hafa aðallega verið í Reykjavík,“ segir í tilkynningu. Erindin flytja Guðný Gerður Gunnarsdóttir, formaður Íslandsdeildar ICOMOS; Agnes Stefánsdóttir, sviðstjóri rannsókna og miðlunar hjá Minjastofnun Íslands; Orri Vésteinsson, prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands; Anna Lísa Guðmundsdóttir, verk- efnastjóri fornleifa hjá Borgar- sögusafni Reykjavíkur; Lísabet Guðmundsdóttir fornleifafræð- ingur hjá Fornleifastofnun Íslands, Kristín Huld Sigurðardóttir, for- stöðumaður Minjastofnunar Ís- lands; og Hjörleifur Stefánsson arkitekt. Að erindum loknum verða pallborðsumræður. Málþing um verndun menningarminja Ljósmynd/Fornleifastofnun Íslands Minjar Fornleifauppgröftur í Lækjargötu. Þorskafjörður nefnist sýning sem Pétur Halldórsson hefur opnað í Listhúsi Ófeigs á Skólavörðustíg 5. „Sýning, minningar úr sveitinni. Fjársjóður Gull Þóris; Skjólin niður að Kýrskaðagili; þingstaður á leir- unum; Skógar Mathíasar og berg- hnjúkar Vaðalfjalla handan fjarð- arins. Blandað efni og minningar úr sveitinni á bylgjupappa (kassalok) sem skilar þeim betur til áhorfenda en að loka þær í kassa,“ segir í til- kynningu frá listamanninum. Sýn- ingin stendur til 9. október. Minningar úr sveitinni hjá Ófeigi Kassalok Verk eftir Pétur Halldórsson. Listhópar úr öllum listgreinum geta sótt um að vera útnefndir List- hópur Reykjavíkur á næsta ári en við það val verður sérstaklega horft til viðfangsefna er tengjast áherslum Reykjavíkurborgar á evr- ópskar kvikmyndir í menningar- starfi sínu á árinu 2020 undir yfir- skriftinni „Reykjavík, hin kvika borg“, skv. tilkynningu. Tilefnið er að Evrópsku kvikmyndaverðlaunin, EFA, verða veitt í Hörpu í desem- ber á næsta ári og mun hópurinn sem verður fyrir valinu hljóta allt að þremur milljónum króna til að útfæra hugmynd sína. Þetta er í fyrsta sinn sem Listhópur Reykja- víkur fær þema til að vinna með. „Sótt er um að verða Listhópur Reykjavíkur með því að færa inn at- hugasemd þess efnis í hefðbundinni styrkumsókn um styrk úr borgar- sjóði Reykjavíkur á sviði menning- armála á Rafrænni Reykjavík, en umsóknarfrestur er til hádegis hinn 1. október nk.,“ segir í tilkynn- ingu og að EFA séu viðamikið sam- starfsverkefni ríkis og borgar og stefnt að því að samhliða hátíðinni verði margir hliðarviðburðir sem tengist evrópskum kvikmyndum. Kvikmyndir þema listhóps næsta árs Heimspekikaffi með Gunnari Her- sveini hefur göngu sína á ný í kvöld kl. 20 á Borgarbókasafninu í Gerðubergi. Þar munu Gunnar Hersveinn og Elsa Björg Magn- úsdóttir heimspekingar pæla í sjálfsmyndum og heimsmyndum á tímum alnetsins, hvort við höfum nógu sterk bein til að standast áreitið sem fylgir sítengingu og hvort hraði samtímans kaffæri gagnrýna hugsun sem þarfnast bæði einveru og uppbyggilegs sam- tals. Aðgangur er ókeypis. Sjálfið rætt yfir heimspekikaffi Spjall Gunnar Hersveinn og Elsa Björg. POTTAR OG PÖNNUR Fagmaðurinn velur AMT en þú? Þýsk hágæðavara Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi | Sími 540 3550 progastro.is | Opið alla virka daga kl. 9–17. Allir velkomnir einstaklingar og fyrirtæki Vefverslunokkarprogastro.iser alltaf opin! Allt fyrir eldhúsið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.