Morgunblaðið - 18.09.2019, Blaðsíða 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 2019
Selma Sól Magnúsdóttir, landsliðs-
kona í knattspyrnu, verður frá keppni í
langan tíma þar sem hún er með slitið
fremra krossband í vinstra hné. Selma
meiddist í leik Breiðabliks og Vals síð-
astliðinn sunnudag. Þorsteinn Hall-
dórsson, þjálfari Breiðabliks, staðfesti
tíðindin við Fótbolta.net í gær. Ein um-
ferð er eftir af Pepsi Max-deildinni og
Breiðablik á seinni leikinn gegn Spörtu
Prag í 32-liða úrslitum Meistaradeild-
arinnar eftir í næstu viku.
Þorgils Jón Svölu Baldursson, leik-
maður handknattleiksliðs Vals, var í
gær úrskurðaður í eins leiks bann af
aganefnd HSÍ. Hann var rekinn af velli
í leik Vals og FH á sunnudaginn. Þor-
gils verður í banni þegar Valur fær Sel-
fyssinga í heimsókn.
Handknattleiksmaðurinn Darri Ar-
onsson verður ekki meira með Hauk-
um í vetur vegna meiðsla sem hann
varð fyrir í leik gegn KA í Olísdeildinni
á sunnudaginn var. Vísir.is greindi frá.
Darri er með slitið krossband.
Ítalska A-deildarfélagið Cagliari fær
ekki refsingu fyrir apahljóð stuðnings-
manna sinna sem
beindust að Ro-
melu Lukaku í
leik Cagliari og
Inter. Ítalska
knattspyrnu-
sambandið
rannsakaði mál-
ið en ákvað að
láta málið niður
falla vegna skorts á
sönnunum.
Eitt
ogannað
Titilvörn Liverpool í Meistaradeild
Evrópu í knattspyrnu byrjaði ekki
vel í gær þegar liðið tapaði fyrir Na-
pólí 2:0 á Ítalíu. Dries Mertens og
Fernando Llorente, fyrrverandi
samherji Gylfa Þórs Sigurðssonar,
skoruðu fyrir ítalska liðið á lokakafla
leiksins. Jürgen Klopp, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, getur vænt-
anlega fest svefn þrátt fyrir þessi úr-
slit því í fyrra tapaði Liverpool
einnig fyrir Napólí í þessari sömu
keppni en stóð að lokum uppi sem
sigurvegari.
Senuþjófurinn í Meistaradeildinni
í gærkvöldi var Norðmaðurinn Er-
ling Braut Håland sem skoraði
þrennu fyrir austurríska liðið Salz-
burg í fyrri hálfleik gegn belgíska
liðinu Genk. Salzburg vann 6:2 en að
loknum fyrri hálfleik var staðan 5:1.
Þessi lið leika í E-riðlinum með Na-
pólí og Liverpool. Genk sem Þórður
Guðjónsson fór á kostum með undir
lok síðustu aldar þarf greinilega að
skoða hjá sér varnarleikinn. Håland
er aðeins 19 ára gamall og ljóst að
frammistaðan í gær var mikil aug-
lýsing fyrir hann. Framherjinn er
sonur Alf-Inge Håland sem var
norskur landsliðsmaður og lék í
ensku úrvalsdeildinni um árabil.
Ajax sem var sekúndum frá úr-
slitaleiknum síðasta vor byrjaði vel
og lagði Lille að velli 3:0 í Amst-
erdam. Liðin leika í H-riðli ásamt
Chelsea og Valencia sem mættust í
London og Spánverjarnir höfðu bet-
ur 1:0. Frábær byrjun fyrir Valencia
og þessi riðill gæti orðið strembinn
fyrir Chelsea. Lille er þekkt fyrir að
vera öllu sterkara á heimavelli sín-
um í norðurhluta Frakklands en á
útivelli og því ekkert áberandi veikt
lið í þessum riðli.
Stórliðin Dortmund og Barcelona
mættust í Þýskalandi en þessi
skemmtilegu lið létu markalaust
jafntefli nægja. Eru þau í F-riðli
með Inter og Slavía Prag sem gerðu
1:1 jafntefli í Mílanó. Fín byrjun hjá
Tékkunum. kris@mbl.is
Napólí vann Liverpool aftur
19 ára gamall norskur sóknarmaður sló í gegn Rólegt hjá Barcelona
AFP
Þrenna Erling Braut Håland baðaði sig í sviðsljósinu í gær þegar hann skoraði þrennu fyrir Salzburg.
Davíð Þór Viðarsson, fyrirliði
knattspyrnuliðs FH um árabil,
leggur skóna á hilluna að þessu
tímabili loknu en þetta staðfesti
hann við 433.is í gær. Þar með hætt-
ir einn sigursælasti leikmaðurinn í
íslenskum fótbolta á seinni árum en
Davíð hefur sjö sinnum orðið Ís-
landsmeistari með FH, þar af fjór-
um sinnum sem fyrirliði og einu
sinni bikarmeistari. Þá er hann
þriðji leikjahæsti FH-ingurinn í
efstu deild með 238 leiki fyrir félag-
ið þrátt fyrir að hafa leikið erlendis
í fimm ár á ferlinum. vs@mbl.is
Davíð Þór hættir
eftir tímabilið
Morgunblaðið/Eggert
Hættir Davíð Þór Viðarsson á þrjá
leiki eftir með FH-ingum.
Dagbjartur Sigurbrandsson, úr GR,
lék í gær fyrsta hringinn á 1. stigi
úrtökumótanna fyrir Evrópu-
mótaröðina í golfi. Dagbjartur lék á
75 höggum, eða á fjórum höggum
yfir pari, en hann leikur á Eng-
landi. Mjög hvasst er á svæðinu sem
gerði kylfingum erfitt fyrir. Dag-
bjartur er í 60. sæti ásamt nokkrum
öðrum kylfingum. Rúnar Arn-
órsson, Andri Þór Björnsson og
Bjarki Pétursson eru þegar komnir
á 2. stigið en þar eiga Birgir Leifur
Hafþórsson og Guðmundur Ágúst
Kristjánsson einnig keppnisrétt.
Á 75 höggum við
erfiðar aðstæður
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stigameistarinn Dagbjartur reynir
við Evrópumótaröðina.
Halldór Jóhann Sigfússon hefur verið ráðinn aðstoðar-
þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik.
Halldór þjálfaði síðast U-21 og U-19 ára lið karla hjá
Barein en var sagt upp í upphafi mánaðarins. Arnar Pét-
ursson er landsliðsþjálfari, en hann tók við af Axel Stef-
ánssyni fyrr á árinu. Halldór hefur þjálfað kvennaliðin
hjá bæði Fram og FH en lið Fram gerði hann að Íslands-
meisturum árið 2013. Hann gerði auk þess karlalið FH
að bikarmeisturum síðasta vetur.
Gísli Guðmundsson hefur verið ráðinn markvarða-
þjálfari A-landsliðs kvenna. Gísli hefur áður komið að
markmannsþjálfun hjá HSÍ en hann hafði yfirumsjón
með markvarðaþjálfun yngri landsliða HSÍ 2012-2016, síðastliðið sumar
var Gísli markvarðaþjálfari U-21 árs landsliðs karla.
A-landslið kvenna hefur leik í undankeppni EM í næstu viku. Liðið leikur
fyrst gegn Króatíu ytra miðvikudaginn 25. september en svo koma Frakk-
ar í heimsókn sunnudaginn 29. september og leika gegn íslensku landsliðs-
konunum að Ásvöllum í Hafnarfirði. sport@mbl.is
Var ekki lengi verkefnalaus
Halldór Jóhann
Sigfússon
Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ úrskurðaði tvo mikilvæga
leikmenn Kópavogsliðanna Breiðabliks og HK í bann í
gær. Brynjólfur Darri Willumsson verður ekki með
Breiðabliki sem mætir ÍBV í 21. umferð Pepsi Max-
deildarinnar. Hann fékk sitt fjórða gula spjald á leiktíð-
inni gegn Stjörnunni. Björn Berg Bryde úr HK fékk
rautt spjald gegn KA og verður því í leikbanni þegar HK
fær ÍA í heimsókn. Spánverjinn Gonzalo Zamorano verð-
ur ekki með ÍA vegna fjögurra áminninga.
FH-ingurinn Pétur Viðarsson fékk rautt spjald í bik-
arúrslitaleiknum við Víking. Hann missir af fyrsta bik-
arleiknum á næstu leiktíð. Óttar Magnús Karlsson fékk
sitt annað gula spjald í bikarkeppninni í sumar og verður ekki með í fyrstu
umferð á næstu leiktíð. Þórdís Elva Ágústsdóttir hjá Fylki fékk eins leiks
bann fyrir rauða spjaldið sem hún fékk í leik gegn ÍBV. Hún missir af leik
Fylkis og Breiðabliks í lokaumferð Pepsi Max-deildarinnar á laugardag.
HK verður án lykilmanns
Björn Berg
Bryde
Opið virka daga 10.00-18.15, laugardaga 11.00-14.00 | Gnoðarvogi 44, 104 Reykjavík | Sími 588 8686
Gómsætir og girnilegir réttir
í fiskborði beint í ofninn
Þorskhnakkar
Glæný lúða
Klausturbleikja
Glæný línuýsa
Nýlöguð
humarsúpa